Kirkjublaðið - 01.12.1895, Blaðsíða 5

Kirkjublaðið - 01.12.1895, Blaðsíða 5
213 hrópaði til himinsins, hrópaði á svar, ef þar væri nokkur Guð og frelsari. Bænheyrzlan og svarið kom, skýrt og skyndilega. Hann lýsir því með þeim orðum: »Allur efl var horflnn, jeg fullvissaðist í hjarta mínu um náð Guðs í Jesú Kristi, nú gat jeg ekki einungis kallað hann Guð, jeg gat lika kallað hann föður. Öll hryggð, allur kvíði hjartans var á flótta rekinn, mjer var sem steypt væri yflr mig laug einskærrar gleði, af gnægð hjartans varð munnurinn að lofa og vegsama Guð fyrir hina miklu náð. Jeg hafði kropið á knje í sárri neyð og í myrkri efa- semdanna, jeg reis upp með óumræðilegum fögnuði og öruggri trú. Mjer kom það svo fyrir, sem hefði jeg allt líf mitt til þessa hvílt í fasta svefni, og sem að jeg nú vaknaði af draumi. Jeg var viss um það, að heimurinn með öllum sinum unaðsemdum gæti ekki vakið unað sem þennan í mannshjartanu«. Nokkrum dögum síðar prjedikaði hann og lagði út af textanum Jóh. 20, 31. »Upp frá því«, segir hann i æfisögubroti sínu, »var krist- indómurinn mjer alvörumál, og mjer veitti það ljett, að leggja niður óguðlegt athæfi og hafna veraldarfýsnum«. Eptir þetta kynntist hann enn betur Spener, sem þá var í Dresden, og tveim vetrum eptir ræðuna í Lýneborg settist hann að íLeipzig og safnaði að sjer hóp stúdenta til biflíulesturs og varð úr þvi nokkurs konar smásöfn- uður, sem mætti miklu aðkasti, og þá kom upp í Leipzig uppnefnið »píetistar« árið 1689 eða 1690. Hið síðarnefnda ár, er honum var ekki lengur vært i Leipzig, fjekk hann óvænt köllun til prestsþjónustu í Erfurt. Þar hafðist hann við ein 3 missiri og þótti framúrskarandi prjedikari; en það varð honum einmitt til falls, að nokkur katólsk heimili gengu í söfnuð hans, og gátu þá katólsk stór- menni ráðið því, að honum var vikið frá embætti og hann meira að segja rekinn burt úr borginni með sólar- hrings fyrirvara. Samadaginnogþetta skeði, i sept.1691, var sentaf staðbrjef til Franckes frá Berlín, þar sem kjörfurstinn bauð honum embætti við hinn fyrirhugaða háskóla í Halle. Francke fjekk fleiri sæmileg boð, en eptir ráðum vinar síns Spen- ers, sem þá var kominn til Berlínar, þáði hann þetta og

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.