Kirkjublaðið - 01.01.1897, Side 4

Kirkjublaðið - 01.01.1897, Side 4
4 kirkju vorri á hinu nýbyrjaða ári, er Jesús vor frelsari. Þegar vjer göngum inn um bið ókunna blið, inn til nýja ársins, þá sjáum vjer hans nafn standa yflr dyrunum. Það er ókunn gata fram undan oss öllum, en hann b(ð- ur vor þar, frelsari vor, og hann vill vera vegbróðir vor á leiðinni óförnu, sem fram undan oss er. Látum þetta vera nýárshugsun vora, efum eigi að hann sje sannarlega nálægur oss hjer í söfnuðinum á þessari stundu, og komum nú til hans, með allar endur minningar vorar og framtiðarhugsanir, með synd voraog veikleika, með sorgir vorar og áhyggjur, með vonir vor- ar og fyrirætlanir á nýju ári. Hjer er inni margur maðurinn í dag og enginn er öðrum líkur. Hjer er gamalmennið, sem vísast á nú ekki eptir nema eitt óstigið spor inn á ókunna landið hinum megin, og ungbarnið, sem nýlega hefir stigið fyrsta sporið inn á hina ókunnu braut lífsleiðinnar hjernamegin; hjer er hraustur og sjúkur; hjer eru smáir og stórir að efnum, metorðum, vitsmunum; hjer er voldugur og ve- sall, hryggur og glaður; enginn lítur sömu augum og aðrir yfir liðið og ófarið skeið, hver á sinn eigin hugar- reit, lifir sínu lífi. Eitt tekur þó til vor allra, er vjer nú í byrjun ársins mætum frelsara vorum hjer í helgidóm- inum: allir erum vjer syndugir, oss vantar alla svo mikið til fjelagsskaparins, til bróðurbandsins sem hann vill festa við oss, vor himueski frelsari. Það er svo ept- irtektavert að í hinum fyrsta kapítula í hinu fyrsta riti hins nýja testamentis, þar sem fyrst er getið nafnsins, sem kristin kirkja setur yflr dyr hins nýja árs, þá er nafnið útlistað með þeim orðum: »Hann mun frelsa sitt fólk frá þess syndum«. Til þess er hann þá í heiminn kominn, hann vill frelsa þig, kristni vin, hver sem þú ert og hvernig sem högum þinum er háttað, hann vill frelsa þig frá syndum þínum. Hann heflr endurleyst þig og vill draga þig að sjer með sfnum kærleika, hann vill draga þig til föðurins og kenna þjer að biðja með sjer: Abba, elskulegi faðir! Hann vill vera lifandi kraptur í sálu þinni, vermandi, lýsandi kraptur, hann vill helga gleði þína, svala þjer í sorg þinni, styrkja þig í vanmætti

x

Kirkjublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.