Kirkjublaðið - 01.01.1897, Blaðsíða 5

Kirkjublaðið - 01.01.1897, Blaðsíða 5
5 r þinum. — En hann hinn heilagi og syndlausi, hann get- ur eigi búið þar sem syndin drottnar. Það er hin alvarlega nýárshugsun, sem á að vakna hjá oss, hverjum þeim, sem kýs að haía Jesúm fyrir veg- bróður sinn á riýbyrjuðu ári. — 0 að vjer gætum nú allir sagt eins og lærisveinarnir, sem gengu til Emaus á páskadagsmorgun: »Brann ekki hjarta okkar í okkur, meðan hann talaði við okkur á veginum?« (Lúk. 24. 32). — Hann talar enn stöðugt við oss á veginum, í sínu orði og í sínu dæmi, með öllu lífi sínu, krossdauða, upprisu og himnaför. Hvort brennur þá hjarta vort í oss? Það er sá eldurinn, kærleikseldurinn til hans, sem hreinsar hjarta vort frá syndinni, gefur oss lif af hans lífi. Það eru gjafirnar, sera hann vill gefa oss á nýju ári, vor blessaði vegbróðir, það er fyrirgetning syndanna, friður og fögnuður í heilögum anda. Þú værir eigi hingað kominn, í Drottins hús í dag, kristni vin, ef þú elskaðir eigi nafnið, sem þjer er boð- að frá þessum stað i dag, nafnið Jesú, nafnið frelsara þíns. Má jeg ekki segja það afdráttarlaust við hvern og einn, sem heyrir orðið flutt í dag, hjartafeginn vildi jeg mega segja það sem sannmæli um hvern og einn, en þá vil jeg um leið spyrja þig, biðja þig að leggja þjer þá spurningu á hjarta, hvort þú þá elskar nafnið svo heitt, hvort hann sem það ber er þjer svo kær, að þú hans vegna og með hans fulltingi hverfur frá synd þinni og sjálfselsku og lifir hans lifi, lífi bænarinnar, guðhræðsl- unnar og kærleikans? — Engin nýárshugsun er eins al- varleg og þessi: Á Jesús frelsari minn að vera vegbróð- ir minn á nýbyrjuðu ári, eða á syndin að vera það? — Á slíkri stundu sem þessari eiga hjörtu vor að brenna, svo að vjer eing og lærisveinarnir á göngunni til Emaus biðjum hann, Drottin vorn og frelsara, að vera hjá oss, og sleppum honum cigi fyr en hann hefir tekið sjer bú- stað hjá oss. Einmitt á þessari stund endurminninga og framtíðarhugsana sje það vor heilaga ástundan, sje það nýársblessunin, sem vjer sækjum í hans hús. En innan lítillar stundar göngum vjer hjeðan til heim- ila vorra. Helgidagurinn líöur og á morgun byrja vor

x

Kirkjublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kirkjublaðið
https://timarit.is/publication/137

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.