Alþýðublaðið - 17.09.1960, Qupperneq 1
t Q
Rætt við
Bedford
sjá 3. síðu
Rétturinn var settur að nýju
í gærmorgun klukkan 9.30 'at
bæjarfógetanum Erlendi Björns
syni. Hann kvaddi fyrst fyrir
réttinn loftskeytamanninn á
gæzluflugvélinni Rán.
Loftskeytamaðurinn stáðfesti
staðsetningu togarans, eins og
henni er lýst í ákæruskjali Land
helgisgæzlunnar. Næstur var ,
kallaður fyrir Ásgeir Þorleifs- i
son, sem var flugstjóri á Rán f
7. júlí. Hann staðfesti einnig að
staðsetning togarans væri rétt.
Guðmundur Kjærnested var
einnig kallaður aftur fyrir rétt- ,
inn til að gefa nánari vitnis-
burð.
Stýrimaðurinn á togaranum
sem er sonur Bedfords skip-
stjóra, og loftskeytamaðurinn
voru báðir kallaðir fyrir rétt-
inn. Þeir báru báðir, að í>eir
liefðu ekki orðið varir við ljós-
merki frá Rán umræddan dag
og studdu vitnisburð skipstjór-
ans. Loftskeytamaðurinn sagði
að hann hlustaði á bylgju-
_____ Framhald á 7. síðu.
RÉTTARHÖLDIN í máli skip-
stjórans á brezka togaranum
Wyre Mariner, sem Landhelg-
isgæzlan hefur kært fyrir að
hafa veitt innan fiskveiðitak-
markanna 7. júlí sl., héldu á-
fram á Seyðisfirði í gær. Dóms
málaráðuneytinu var sent málið
til ákvörðunar í gærkvöldi og
búizt er við, að bæjarfágetinu
á Seyðisfirði kveði upp dóminn
í dag.
SIGNÝ Óladóttir, Prests-
húsabraut 23, Akranesi, var
að ríða net í kjállaranum
heima hjá sér þegar hún
fékk þau skilaboð frá Al-
þýðublaðinu í gærdag, að
hún væri 3,000 kr. ríkari,
Oddný B. Heigadóttir,
Suðurlandsbraut 98 B, Rvík,
var að taka upp Itartöflur
heima hjá foreldrum sínuin
um tvö leytið í gaéri þegar
kona úr næsta húsi kallaði
hana í símann og henni var
tjáð, að hún hefði rétt í þessu
verið að hagnast um 2,000
krónur.
Þannig lauk síldarævin-
týri Alþýðublaðsins í ár.
Signý Óladóttir hlaut 3000
krónur frá blaðinu fyrir
mesta tilkynnta síldarsöltun
á sumrinu. Hún saltaði í 248
tunnur hjá söltunarstöðinni
Norðurborg í Grímsey.
Gunna S. Kristjánsdóttir
Strandaveg 4, Seyðisfirði,
komst næst henni. Hún salt-
aði í 234 tunnur. Það mun-
aði því 14 tunnum að húti
hreppti verðlaunin.
Signý er húsmóðir á Akra
nesi.
Oddný hlaut vinninginn í
síldarstúlknahappdrættinu
okkar. Nafnið hennar kom
upp, þegar dregið var í gær
Framhald á 7. síðu.
Myndirnar voru teknar í gærdag. Áþeirri efri er Oddný í kartöflunum.
Hin sýnir vinningseðilinn í höndunum á henni. ,