Alþýðublaðið - 20.09.1960, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 20.09.1960, Blaðsíða 4
/' ÁÆTLUNIN er sem kunn- mgt er byggð upp sem keðja af ráðstöfunum, sem vinna að vissu leyti hver gegn annarri. Gengislækkunin sjálf hækk- ar verðlagið og skerðir lífskjör in, en auknar fjölskyldubætur 1 -og niðurgreiðslur koma á móti. Meðalfjölskyldu mun við lækkun tekjuskattsins spar- ast álíka miki'l útgjöld eins og . aukningu vegna hækkunar á sölusatti í innflutningi og söluskatti í smásölu nemur. -Fyrir fjölskyldur með lágar tekjur og mörg börn hafa fjöl- 1 skyldubæturnar sérstaklega mikla þýðingu, en fyrir fjöi- . skyldur með hærri tekiur imuh skattalækkunin vera þýðingarmeiri. Nettóáhrifin verða þannig mismunandi fyr- ir mismunandi fjölskyldur ef ir stærð þeirra, tekjum og i neyzluvenjum. Það hefur reynzt mér ó- ikleift að athuga þessi áhrif Æyrir imismunandi fjölskyld- •ur. En samkvæmt ósk minni hefur Hagstofa íslands sýnt þá velvild að reikna út í krónu- tölu samanlögð áhrif aðgerð- anna á afkomu meðalfjöl- skyldu í Reykjavík. Útreikn- ingurinn er bundinn við fjöl- iskyldu, sem að því er snertir ^tærð, tekjur og neyzluvenj- 'ur má skoða sem meðaltal af almennum fjölskyldum b.æj- arins. Það eru hjdn með 2,2 börn, og nota þau 66 400 krón ur á ári' Fyrir slíka fjölskyldu hafa ráðstafanirnar eftirtalin áhrif: Aukin útgjöld: -Gengislækkun ......... 7900 3% sölusk. -j- hækkun á sölusk. í innflutningi -f- niðurfelling á 9% söluskatti á innlendri' vöru og þjónustu .... 1950 Aðrar ástæður: Ýmsar hækkanir, sem ákveðnar eru í meira eða minna samhengi við gengislækkunina . 980 10830 Sparnaður: Hækkun íjölskyldubóta 5000 Auknar niðurgreiðslur . 760 Lælikun tekjuskatts .. 2090 Aðgerðirnar munu auka út gjöldin um ca. 3000 kr. nettó. Miðað við heildarútgjöldin þýðir þetta 4,5% lækkun kaup máttarins. Áætlunin gerir með öðrum orðum ráð fyrir tilfinnanlegri lífskjaraskerðingu hjá al- mennum launþegum. Áhrifin munu þó, eins og áður var drepið á, vera breyti'leg eftir stærð fjölskyldunnar, útgjöld um vegna húsnæðis, tekjum og því, hvernig tekjunum er varið. Það er kostur við áætl- unina, að reynt er að hlifa barnmörgum fjölskyldum. B'æði skattalækkunin, niður- greiðslurnar og fjölskyldu- bæturnar stefna að því. Eftir opinberum útreikningum ættu aðgerðirnar ekki að breyta afkomu fimm manna fjöl- skyldu með 60 000 kr. tekjur. Ég hef ekki farið yfír þennan útreikning ,en geri ráð fyrir, að þær breytingar, sem gerð- ar hafa verið á áætluninni, hafi fært skurðpunktinn miUi kosta oe galla í átt til stærri fjölskyldna. Fjölskyldur með fjögur börn eða fleiri ættu þó að vera skaðlausar og vel það. Sama er að segja um gamalt fólk og öryrkja, þar sem bæí- ur trygginganna voru hækk- aðar um 44%. Enn fremur tel ég ástæðu til að leggja áherzlu á, að hinar nýju aðgerðir í íélagsmálum eru varanlegar gagnstætt þvl, sem er um sumar þeirra að- gerða, sem eru í óhag. Með hinum nýju fjölskyldubótum og persónufrádrætti við skatt lagningu til ríkisins hefux ís- land í þessu tilliti skipað sér í fremstu röð meðal þjóða heimsins. Bæði fjölskyldubæt urnar og persónufrádráttur- inn eru til dæmis allmiklu hagstæðari en í Noregi. Aftur á móti er hækkun söluskatts í innflutningi úr 7,7 í 16,5% skoðuð sem bráðabirgðaráð- stöfun. Þagar hægt veður að lækka skattinn aftur, mun það, eftir þeim upplýsingum, sem ég hef fengið, hafa í för með sér 3% sparnað fyrir vísitölufjölskylduna. Slík lækkun ætti að mínum dómi að ganga fyrir jafnskjótt og hægt er að framkvæma hana. Ekki sízt vegna þess, að eftir gengislækkunina sit- ur ísland uppi með óvenju 3. grein irrTTr™ma,,,,an.irffjTfjj háa tollvernd, sem ekki aðeins gerir vörurnar dýrari, heldur getur einnig hvatt til frarn- leiðslu og atvinnurekstrar, sem hvorki í bráð eða lengd er hagkvæm fyrir heildina. Á sama tíma sem bæði útgerðina og fiskvinnslustöðvarnar skortir vinnuafl, ber að forð- ast eins og unnt er að opna leiðir fyrir atvinnurekstur, sem aðeins getur þrifizt í skjóli hárra tollmúra. • ri. SKATTA- OG ÚTSVARS- BREYTINGARNAR ; Nær allir munu hafa hag af breytingum reglnanna um rík isskattinn. Fjölskyldur með lágar tekjur og mörg börn greiddu þó lága skatta áður og hlýtur það að takmarka hagnað þeirra af breyting- unni. Hin mikla hækkun fjöl- skyldubótanna mun hafa scr- staklega mikla þýðingu fyrir þesar fjölskyldur. Við skatta breytinguna hefði að mínurn dómi verið hægt að bæta að- stöðu láglaunafólks meira en gert var, með þvi að hækka persónufrádráttínn við áiagn ingu útsvars i stað þess að lækka útsvarsstigann. Þar sem lækkun tekjuskattsins er mest að krónutölu á. meðal- tekjum og hærri tekjum, hlaut það að vera æskilegt, að sveit arfélögin tækju einkum tillit til fjölskyldna með lægri tekj- ur. Mig skortir þekkingu til að geta lagt dóm á réttmæti skattabreytinganna, eins og þær voru framkvæmdar. Það hefur verið útskýrt fyrir mér, að skattakerfið hafi ekki ver- ið lagfært nægilega að und- aníörnu með tilliti til hækk unar tekna að krónutölu vegna verðbólgunnar, þannig að margir launamenn urðu of hart úti. Breytingin frá tekju skatti í söluskatt hefur einnig verið útskýrð sem tilraun til að skipta skattabyrðunum af meira réttlæti á launatekjur og tekjur af sjálfstæðum at- vinnurekstri. Ástæðan er auð vitað sú, að allir verða að greiða söluskatt, en mjög há- ar upphæðir eru dregnar und- an tekjuskattinum. Einmg er á það bent, að erfiðara er fyr- ir atvinnurekendur að korn- ast undan söluskatti en tekju skatti', þar sem skattstigarnir eru svo ólíkir. Atvinnurek- andinn verður að fela miklu hærri upphæðir til að sleppa við 1000 krónur í söluskatti, heldur en hann þarf xil að sleppa við jafnmikinn tekju- skatt. . Mér hefur virzt, án þess að geta athugað það nánar, að sið ferði í skattamálum á íslandi standi á jafnvel ennþá lægra stigi en í Noregi. Þó get ég ekki að pvi gert, áð mér finnst að það megi gera meira til að koma í veg fyrir þennan ó- sóma Ekki sízt vegna þess að hér eru málin minni umfangs og einfaldari en á hinum Norð urlöndunum. Þetta -er mál, sem hefur mikla og almenna þýðingu ✓ fyrir alla launþega á íslandi. í Noregi fer nú fram yfirgrips mikil opinber athugun á hm- um margvíslegu áhrifum alls skattakerfisins. Eftir því, sem ég hef komizt næst, mun slíkr ar athugunar ekki vera síð.ur þörf hér á landi. Yerlcalýðs- hreyfingin ætti að mínum dómi að gangast fyri'1’ því. að nákv.æm rannsókn á áhrifum skattakerfisins færi fram og fá sérfræðinga til að gera til- lögur um hugsanlegar endur- .bætur. í nútíma velferðarríki hljóta skattarnir að vera há- ir, svo að ríkið fái fé til að láta í té þau gæði, sem þegn- arnir eiga kröfu til. Vel skipu lagt og réttlátt skattakerfi er nauðsynlegt skilyrði slíks þjóðfélags á sama hátt og skattsvikin eru ógnun við það. AÐGERÐIRNAR OG FJÁRFESTINGIN Þó að umræður um aðgerð- irnar á öpinberum vettvangi hafi ei'nkum snúizt um þau á- hrif, sem þær haíá strax á verðlag og neyzlu einstak- linga, er það skoðun mín, að þeim sé ekki síður beint að fjárfestingunni. Hin áætlaða lækkun neyzlunnar getur ekki haft í för með sór nema hluta af þeim sparnaði, sem nauð- synlegur -er til að jafnvægl náist í þjóðarbúskap íslend- inga bæði út á við og inn á við. Afgangurinn verður að fást við niðurskurð á fjárfest- 4 20. sept. 1980 — Alþýðublaðið ingunni. Því er haldið fram, að fjárfestingin sé of mikil og að nokkru leyti framkvæmd; af óhagsýni. Mér finnst margt styðja þessa skoðun. Inn- an verkalýðshreyfingarinnar heyrðí ég einnig raddir um, að fjáríestinguna mætti minnka miki'ð. Þrátt fyrir þetta tel ég á- stæðu til að benda á, að fjár- festingin hefur mikia þýð'r.gu1 í athafnalífi laudsins og að of mikill niðurskurður hennaj; gæti haft óheppilegar afleið- ingar í formi minn, atvinnu og þar með veikari samninga- aðstöðu launþega gagavari at vinnurekendum. Ef nauðsyn- legur sparnaður heíði átt að fást eingöngu með því að skera niður fjárfestinguan, sé ég ekki betur en það hefði haft hinar alvarlegustu afleiðingar á vinnumarkaðnum. Á þeim stutta tíma, sem mér gafst til að athuga þessi mál, tókst mér ekki að meta áhrifin af þeirri skiptingu, miUi neyzlu og fjárfestingar, sem valin var. Hér er um að ræða al- vöruþrungið matsatriði, sem hefur hina mestu þýðingu fyr ir launþega og samtök þeirra. Menn verða að gera sér Ijóst, að sá hluti sparnaðarins, sem ekki fæst með lækkun rievzl- unnar, hlýtur að koma fram I minni fjárfestingu og uni ieio daufara athafnalíf; í lanchnu. Við þetta mat verður að sjálf sögðu að taka tillit til þess, að nægileg og hagkvæm íj árfest ing er nauðsynlegt skilyrði fyrir eðlilegrf þróun acvinnu- hátta í landinu, þegar til lengdar lætur. Höluðdr.ættir áætlunarinn- ar bera það með sér, að mjög mikill hluti sparnaðarins verð ur að fást gegnurn fjárfcstirg- una. 'Spurni'ngin er þá sú, að 'hve imiklu leyti því marki verð ur náð með ráðstöfununum. Einfalt svar við þessu er tæplega til. Ekki sízt vegna þess, að framkvæmdir eru á- kveðnar út frá mjög misrnun andi sjónarmiðum. Sumar eru ákveðnar út frá því, hvernig atvinnurekendur meta þróun ina framvegis, aðrar út frá möguleikum á lánum og enn aðrar af beinni nauðsyn. Verulegur hluti fjáríesting- ar á íslandi er framkvæmdur eða styrktur af ríki og sveit- arfélögum. Það gefur að sjálf- ■sögðu mikia möguleika til að hafa hönd í bagga, ef pólitísk ur vilji til þéss er fyrir hendi. Sumir virðast leggja mikla áherzlu á háa vexti sem úr- ræði til að draga úr fjárfest- ingu. Mér er ekki kunnugt um reynslu frá nokkru landi, sem heíur búið við e’ns háa vexti og ísland nú. En mér virðist að í Noregi og öðrum löndum, þar sem ástandið er nokkurn veginn eðUIegt, hafi vextirnir ekki veruleg áhrif á fjárfestinguna. Reynsla ís- lendinga frá stríðslokum virð ist heldur ekki benda til þess. Vextirnir hafa áður verið til- tölulega háir hér, án þess það hafi komið í veg fyrir met í Framhald á 10. síðu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.