Alþýðublaðið - 20.09.1960, Side 13

Alþýðublaðið - 20.09.1960, Side 13
IDGE ★ SPIL það er hér fylgir spilaði Adam Meredith í Ca- vendish Club í New York. Meredith er heimsþekktur brezkur spilari, en Cavendish Club er frægasti bridgeklúbb ur í New York. Spil þetta er svo vel spilað, að „The Brid- ge World“ valdi það sem verðlaunaþraut. Blaðið setti þrautina þann- ig fram: S. K52 H. ÁK4 T. 653 L. KD43 S. ÁD63 H. 752 T. Á74 L. Á62 Suður gaf. N-S á hættu. Sagnir: S. 1 spaði pass 'V. 4 tíglar paas N. 4 spaðar A. pass Útspil vesturs var tígul- kongur. Austur lét tíguláttu. Vestur spilaði næst tígul- drottningu, og austur lét hjartaáttu, en spilarinn tók á tígulás. Spilarinn tók nú ás, kóng og drottningu í trompi. Aust- ur fylgdi lit tvisvar, en lét hjartasex í þriðja trompið. Hvernig á nú suður að spila spilið? Nú skuluð þér athuga hvað þér vilduð gera. Þegar þér hafið lokið því, skulum vér athuga spil austurs og vest- urs. Hér sjáum vér öll spilin: S. K52 H. AK4 T. 653 L. KD43 S. G984 S. 10 7 H. 9 H. D G* 10 8 6 3 T. KDG10 92 T. 8 L. 95 L. G 10 8 7 S, ÁD63 * H. 75 2 T. Á 7 4 L. Á6 2 Ef þér hafið þegar reynt að vinna spilið á lokuðu borði. þá er ég þess nokkuð fullviss, að það hefur ekki heppnast, og er í alla staði eðlilegt. En getið þér unnið spilið, er þér sjáið allar hendurnar? Meredith vissi, að vestur átti 4 spaða og 6 tígla. Hann spilaði því smáhjarta og tók á hjartakóng. Næst tók hann á laufkóng, og spilaði síðan htlu laufi, og tók á laufás. — Báðir mótherjar fylgdu lit. Meredith sá nú hvernig hann ætti að spila spilið áfram. Þér skuluð nú ekki lesa lengra strax, en athuga, hvort þér komið ekki auga á lausn- ina. Meredith spilaði nú þriðja og síðasta laufi sínu- að heim- an. Vestur gat ekkert betra gert en að láta tígul. Lauf- drottning tók slaginn, og nú var síðasta laufinu spilað úr blindum, en austur tók á lauf- gosa. Meredith lét taptígul sinn af hendi! Austur átti nú aðeins hjarta eftir, og spilaði þvi hjarta- drottningu, og vestur gat ekki betur gert en að láta tígul. Blindur fékk því slag á hjarta kóng, Næst var spilað tígli úr blindum, og suður tók á tromp sex, og það var 10 slag- ur hans. Ef vestur hefði átt tvö hjörtu og eitt lauf, væri ekki hægt að vinna spilið. Trompi austur í öðrum slag HLJÓÐ- RÆSTING Philadelphia. BANDARÍKJAMENN velta nú mjög fyrir ser hvernig hægt er að hljóðein angra hús og „hljóðræsta“ þau ef svo mætti að orði komast. Fyrirtæki eitt gerir nú tilraunir með sérstakt efni í loftum, sem minnkar hávaða í íbúðunum og talið er að þetta geti dregið mjög úr hávaða inannhúss. Þá er einnig talið mikilvægt að haga innréttingu þannig að sem mestur hávaði eyðist og eiga svefnherbergi til dæmis, að vera sem f jarst þeim her- bergjum þar, sem hávaðinn er sem mestur. Myndin sýnir stofu búna hinu nýja ,,hljóðdrekkandi“ efni og getur húsbóndinn les ið ótrúflaður af hljóðfæra- WWWWWWWWWWIWIWW (tíguldrottningu), þá verður bezt fyrir hann að spila næst laufi. Spilarinn tekur þann slag, og spilar trompi 4 sinn- um. 'Vestur á fjórða slaginn á trompgosa. Hann á þá ekkert betra útspil en lauf. Staðan verður nú. S. — H. ÁK T. 6 L. 4 3 S. — S. _ H. DG10 H. 9 T. — T. G 10 9 2 L. 10 8 L. —. S. — H. 75 2 T. Á L. Á Tígulútspil sagnhafa setur Austur í dauðadæmda kast- þvingun Framhaltl á 14 síðu. Veiting skólastjóra- stöðu í Kópavogi Alþýðublaðinu hefur borizt eftirfarandi sam- þykkt. „Fundur kennara Gagnfræða skóla Kópavogs, haldinn í Reykjavík 15. sept. 1960 mót mælir einróma setningu Odds A. Sigurjónssonar sem skóla- stjóra við Gagnfræðaskóla Kópavogs, og átelur harð- lega, að gengið hefur verið fram hjá Ingólfi A. Þorkels- syni, sem fékk fjögur at- kvæði af fimm í fræðsluráði, hefur eindreginn stuðning samstarfsmanna sinna, hefur að baki 10 ára starf við skól- ann, var fyrsti kennari skól- ans, hefur náð ágætum ár- angri í starfi, hefur mjög góð meðmæli frá þeim skól- um öðrum, er hann hefur starfað við og eindregin með- mæli fráfarandi skólastjóra og auk þess háskólapróf fram yfir Odd A. Sigurjónsson. Fundurinn vekur athygli á þeirri staðreynd, að með þessari veitingu eru þver- brotnar gildandi reglur um veitingu skólastjóra- og kenn araembætta svo freklega, að ei'nsdæmi mun vera, þar sem sá umsækjandinn, sem ekk- ert atkvæði fær í fræðslu- ráði, er settur skólastjóri, ennfremur bendir fundurinn á, að lítið tillit er tekið til menntunar umsækjenda, þar sem háskólapróf er hundzað, og ekki heldur tekið tillit til ágæts árangurs í starfi né hins langa starfsferils við skólann. Á grundvelli þessara stað- reynda mótmælir fundurinn þessu einstæða gerræði menntamálaráðherra, þessari fáheyrðu misbeitingu valds, svo og niðurstöðunum í um- sögn fræðslumálastjóra, þar sem gengið er fram hjá áður nefndum staðreyndum. Ingólfur A. Þorkelsson sat ekki fundinn.“ Alþýðublaðinu finnst það mannlegt og eðlilegt, að kenn arar eins skóla standi með einum úr sínum hóp, er hann sækir um skólastjórastöðu, og mæli með honum. Það breytir hins vegar ekki þeirri staðreynd, að tveir umsækj- endur um skólastjórastöðuna í Kópavogi, Oddur A. Sigur- jónsson og Jón R. Hjálmars- son, höfðu fram yfir alla hina langa reynslu sem skóla- stjórar. Við veitingu emb- ættisins var ógerningur ann- að en taka höfuðtillit til þess arar staðreyndar, eins og fræðslumálastjóri gerði í um- sögn sinni, er hann tók þessa tvo menn út úr hópi um- sækjenda. Þar eð Jón tók aft- ur umsókn sína, var sjálfsagt að skipa Odd í embættið. Það er algerlega út í höttj að kalla þessa embættisveit-: ingu „gerræði“ og „fáhevrðaj misbeitingu valds.“ Mennta-i málaráðherra er falið það vald, að skipa skólastjóra, þótt álit skólanefndar eigi að liggja fyrir, og fjöldi for-: dæma er fyrir því frá mörg- um ráðherrum, að ekki er far-j ið eftir útnefningu skóla-i nefnda. Furðuleg er frammistaða skólanefndar í þessu máli. Hún hafnar þeim tveimi mönnum, sem augljóslega höfðu mesta kosti til starf- ans. En furðulegastur af öllú er þó sá úlfaþytur, sem kenn- arar skólans viðhafa. Vel mega þeir vita, að þeir eru ekki aðilar þessa máls nema þá sem sjálfboða- liðar. Sem slíkir verða þeir auðvitað að sætta sig við hvorn kostinn sem veitingar- valdið velur, að taka, eða taka ekki tillit til álits þeirra. Látum nú vera, að áhugi þeirra leiði þá svo langt, að þeir sendi ráðherra álits- gerðir sínar, óbeðið. En þegar málið er afgert og þeir halda ennþá áfram ýfingum, verður naumast hjá því komizt að líta á það al- varlegri augum. Vant er að sjá hvaða mai'k- miði slík vinnubrögð þjóna og næsta torvelt að finna samhengið milli þessara að- fara og eðlilegs grundvallar- sjónarmiðs embættismanna, að vinna að og standa vörð um heill þeirrar stofnunar, sem viðkomandi starfar við. Að þessu útræddu vill Al- þýðublaðið hérmeð birta kafla úr bréfi fræðslumála- stjóra um þetta mál, svo að almenningi gefist kostur á að meta frumgögn: —„Um umsækjendur skal það tekið fram, að þrír þeirra hafa ótvíræð réttindi, en það eru Ingólfur Þorkels- son, Jón R, Hjálmarsson og Oddur Sigurjónsson. Af þeim hefur Jón Hjálmarsson tví- mælalaust mesta menntun, þ. e. a. s. cand. philol.-próf eða svokallað lektorspróf — frá Háskólanum í Osló. Um Ingólf Þorkelsson skal það tekið fram, að hann hefur sýnt röskleika og dugnað við nám, þar eð hann hefur lok- ið stúdentsprófi í áföngum og síðan B. A. prófi með fullu kennslustarfi. — Af um sækjendum hefur Oddur Sigurjónsson lengstan starfs- feril og því mesta reynslu, en hann hefur verið skóla- stjóri Gagnfræðaskólans í Neskaupstað um 23 ára skeið. Framhald á 14 síðu. AlþýðublaðiS — 20. sept. 1960 J3

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.