Sunnanfari - 01.12.1891, Side 2

Sunnanfari - 01.12.1891, Side 2
46 fyrstur vakti eptirtekt Maurers á norrænum fræðum og máli, var Jakob Grimm og mun Maurer skjótt hafa séð, hverja þýðing þekking á þeim mundi hafa fvrir hanr. og þá vísinda- grein, er hann stundaði, og lagði hann því mik- inn áhuga á að kynna sér alt slíkt sem bezt. 1857 ferðaðist hann til Danmerkur til þess að kynnast bæði norrænum söfnum og norrænum vísindamönnum, og komst hann þá í kynni við menn eins og Jón Sigurðsson, Guðbrand Vigfús- son, dómsmálaráðherra Nellemann og geheime- etatzráð Krieger, sem allir gerðust vildar vinir hans. Arið eptir fór Maurer til íslands og .ferð- aðist þar. Datt þá ofan yfir margan mann, því að það reyndist, að maðurinn talaði ekki ein- ungis íslenzku, heldur hana svo góða, að það var eins og kominn væri Sturla þ>órðarson eða aðrir sagnamenn fornir, því Maurer talaði málið eins og það er á sögunum og hafði numið það af sjálfum sér. Voru það einsdæmi síðan Rask leið, að nokkur útlendur maður mælti svo á ís- lenzka tungu, og þó ætlum vér að Maurer hafi talað það því framar að hann nefndi rétt íslenzka r-ið, en á því kokaði Rask, sem flestum dönskum mönnum hættir við. Maurer sneri heim aptur um haustið og kvæntist þá Valerie v. Faulhaber. A þessari ferð hefir hann aukið mikið þekking sína á íslandi, og íslendingum féll hinn þýzki prófessor svo vel í geð, að hann átti vini um alt land, hvar sem hann hafði komið. þ>á safn- aði hann til íslenzku þjóðsagnanna sinna, sem út komu 1860 og ferð hans leiddi einnig til þess, að þjóðsögur Jóns Arnasonar komust á prent. — Að fara að telja hér upp alt það, sem Maurer hefir ritað uin ísland og bókmentir þess að fornu og nýju er ógjörningur, því það er ógrynni og nær í öllum greinum og alstaðar vel og er óhætt að segja, að það hefir víst einginn útlendur maður og fár innlendur verið jafnvel sem hann að sér í öllu, er ísland snertir. Jafnframt því hefir ást hans á landinu lýst sér í hvívetna. Hann hefir áður ritað um stjórnmál íslands og stutt málstað íslendinga, þótt nú þyki honum að vísu ekki ástæða til að fara leingra en komið er, og er hann eingra víta verður fyrir það, því að slíkt verður mörgum gömlum manni, þótt vitur sé og mætur. Auk þess hefir heimili þeirra hjóna í Múnchen nú um 33 ár verið nokkurs konar föður- hús fyrir alla fræðimenn af Norðurlöndum og ekki sízt íslendinga, og hafa margir menn norðan að numið af honum norræna lögspeki og önnur vísendi. Eins og nærri má geta hefir Maurer verið sæmdur mörgum nafnbótum bæði frá Norður- löndum og annarstaðar, auk þess sem hann er heiðursfélagi í fjölda af vísindafélögum og þar á meðal í Bókmentafélaginu. þ>ar að auki er hann Dr. í heimspeki; hann var gerður það í sæmdar skyni af Wúrzburgarháskóla 1882. — Maurer hefir nú í sumar borið sár harmur að höndum, því að hann hefir mist uppkominn son og hinn efnilegasta; hefir það að vonum feingið honum hins mesta trega. Sjálfur er hann nú hátt á sjö- tugsaldri, en þess mega allir íslendingar óska, að honum mætti enn endast leingi aldur og þrek til nýtra starfa. I Hliöarendakoti Fyrr var opt í koti kátt, krakkar léku saman, þar var löngum hlegið hátt, hent að mörgu gaman; úti um stéttar urðu þar einatt skritnar sögur, þegar saman safnazt var sumarkvöldin fögur. Eins við brugðum okkur þá opt á milli bæja til að kánkast eitthvað á eða til að hlæja; mart eitt kvöld og margan dag máttum við í næði æfa saman eitthvert lag eða syngja kvæði. Bænum mínum heima hjá Hlíðar brekkum undir er svo mart að minnast á, margar glaðar stundir. því vill hvarfla hugurinn, heillavinir góðir, heim í gamla hópinn minn, heim á fornar slóðir. J>. E. Kaupamaðurinn. (Ferðaminning.) Seinasti klárinn var að taka sundið, og ferju- maðurinn henti með hrópi og hotti smágrýti úr

x

Sunnanfari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.