Sunnanfari - 01.12.1891, Page 10
54
1814 og brá hann við bókasafni hans og kvað
það mest safn vera eystra. Sama ár heimsótti
og Ebenezer Henderson hann og fanst mikið til
um fróðleik og skýrleik Davíðs. Af íslenzkum
Sagnablöðum 1816 má og sjá að Davíð bóndi
á Hofi er einn af þeim, sem strax geingu í
Bókmentafélagið, þegar það var stofnað og
lagði til þess einn dal á ári og Haldór sonur
hans tvo. Ur Oræfunum fluttist Davíð út á
Síðu og mun þá fyrst hafa verið í Bakkakoti
hjá Prestbakka, eptir því sem ráða má af einni
stöku hans:
Lifði frítt, enn lítið sló, reykti tóbak, cliakk og dó
leigði part úr skoti, Davíð í Bakkakoti.
En í Bakkakoti mun hann hafa verið
skamma stund, og varla meira en eitt ár, þvi
að kominn er hann að Brattalandi 1828 og þar
bjó hann upp frá því. þ>ar kvæntist hann
aptur og átti Guðbjörgu Jónsdóttur úr Land-
broti, systur Runólfs bónda í Nýjabæ1). Ekki
er getið barna þeirra. A Brattlandi gekk mjög af
Davíð og var hann nú sjálfur tekinn að eldast og
jörðin afskekt mjög og örðug, og lítur ekki út
fyrir að Davíð hafi unað þar vel hag sínum,
eins og sjá má af kvæðum hans. Davíð and-
aðist á Brattlandi 5. Janúar 1839 og jarðsöng
Páll prófastur í Hörgsdal, móðurfaðir minn, hann
að Kirkjubæjarklaustri í einhverju því versta
drápsveðri er hugsast má, og var það því að
kenna, að Davið hafði verið galdramaður. í
Landskjalasafni Islands (Skaptafellssýsla 6) er
uppskriptargjörð á dánarbúi eptir Davíð gerð
22. Janúar 1839 og eptir henni að dæma, hefir
bú hans verið mjög af sér geingið. þ>að var
alt virt á 175 ríkisdali og 14 skildinga og 12
dala skuld var á því að auki. Alt hans mikla
bókasafn er orðið að öngu svoað segja, og eingin
galdrabók eptir. þ>ar er ekki getið um annað
en »ritjur af Gíslapostillu, skræðu af Herslebs-
prédikunum, Passíusálma í biluðu bandi, sál.
P.spólíns annála, tvær bækur af Sturlungu,
Sögu Olafs kongs Tryggvasonar, Æfisögu con-
ferenzráðs Jóns Bliríkssonar, Klausturpóst,
Tíðindakver af 1795 (= Minnisverð tíðindi),
Sættaskipunarkver, Sunnanpóst árg. II, Lede-
‘) í Sýslumannaæfum segir, að seinni kona Davíðs hafi
verið Ingibjörg JónsdÓttir úr Hornafirði, en það er einhver
misgáningur.
traad for nordisk 01dkyndighed«. Hefði Rask
verið þar við hefði hann líklega mátt segja eins
og þar stendur:
Öðiuvísi mér áðui brá
ofan í þig að líta og sjá.
Snemma lagðist það orð á Davíð, að hann
mundi vita jafnlangt nefi sínu og var hann kall-
aður göldróttur og ákvæðaskáld var hann hald-
inn, og mun það hafa komið af því, að hann
var bæði séður í málum og vel að sér, einkum
í eddu og fornum fræðum og nokkuð einkenni-
legur í lund, meinyrtur og glettinn, og í kveð-
skap mergjaður og opt svo fornyrtur, að al-
þýða manna skildi ekki til hlítar og hélt því
að í orðum hans mundi vera hin rammasta
forneskja. Af málaferlum Davíðs hefir mest orð
farið af málum þeim, er hann átti við þ>órð
Thorlacius sýslumann í Suðurmúlasýslu, en ekki
eru þau mér kunn til hlítar, en margar sögur
hafa geingið um upptök þeirra. Markús Lopts-
son í Hjörleifshöfða, fróður maður og skýr, hefir
sagt mér um þetta efni sögu á þá leið, að þ>órður
sýslumaður hafi tvívegis heimtað skatt af fátækri
ekkju, og þótti Davíð það ranglega gert og mót-
mælti gjörðutn sýslumanns á þingi, og mun það
hafa verið á Berufjarðarþingi um vorið 1802;
harðnaði svo milli þeirra þ>órðar þar á þinginu,
að til handa lögmáls kom og lét sýslumaður
taka hann fastan og færa á kaupskip út, er lá
á Djúpavogi. Segja sumir að Davíð hafi verið
nokkuð ölvaður og víst átti hann ekki heima í
þinghá J>órðar, heldur mun hann hafa verið
í kaupstaðarferð. Um þetta orti Davíð vísur
þessar.
Hugurinn hvorki hló né grét,
hóf er beztur mátinn,
Djúpavogs þá Loptur lét
leiða mig í bátinn.
eg hef þó ekki hingað til
htitið kirkjuþjófur.
Friðarins högum fyrst eg á
friðinn beztan virði
Vildi á mér vita skil eg ólögum leystur frá
vottur process grófur, og Loka í Djúpafirði.
Sýslumann kallar Davíð hér Lopt eða Loka í
Djúpafirði og bregður honum brigzlum fyrir þjófn-
aðinn í Vallaneskirkju, er þá hafði verið framinn
fyrir skömmu og var stolið til 1800 ríkisdala;
sögðu sumir, að sýslumaður mundi hafa verið í
vitorði, en varla er það líklegt. Hitt er satt að
hann þótti ganga línlega í málið, en annars var
þ>órður sýslumaður lítt þokkaður af alþýðu og
þótti einna harðdrægastur allra sýslumanna;
var og allókunnugur landsháttum, því að hann
var uppalinn með Skúla föður sínum í Dan-
mörku. Meðan Davíð var um borð, datt kokks-