Alþýðublaðið - 29.09.1960, Page 2

Alþýðublaðið - 29.09.1960, Page 2
■íRÍtRtjórar? Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúar rit- | iitjórnar; Sigvaldi Hjálmarsson og Indriði G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri: | •4Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasíw : I Í14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfis- g 2fata 8—10. — Áskriftargjald: kr. 45,00 á mánuði. í lausaselu kr. 3,00 eint. I0tgefandi.: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Sverrlr Kjartansson. | Vetða verzlunarmenn I < teknir inn í A.S.Í.? I | FYEIR miðstjórn Alþýðusambands íslands liggur nú inntökubeiðni frá Landssambandi ís :j lenzkra verzlunarmanna en í þeim samtökum er i nú nær allt skrifstofu og verzlunarfólk í landinu. i Segi i. má, að samtök verzlunar og skriístofufólks : haf). verið skipulögð alveg að nýju og eru þau nn eingöngu launþegasamtök en sem kunnugt er vom bæði kaupmenn og afgreiðslufólk áður í Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur. Eftir endur skípuíagningu samtaka i'erziunar og' skrifstofu fólks uppfylla þau öll skilyrði til inntöku í Alþýðu samband Islands. Félög verzlunar og skrifstofu fólks hafa stofnað sitt eigið samband, sem vill nú fá aðiid að Alþýðusambandi íslands alveg á sama hátí og t. d. Landssamband vörubifreiðastjóra og Sjómannasamband íslands. Ekki verður séð, að 1 nokkvr leið sé fyrir Alþýðusambandið að neita I Liandssambandi íslenzkra verzlunarmanna um upp i töku. í Landssambandi ísl. verzlunarmanna eru nú um 3500 félagar og mundu samtökin því fá um 35 full tréa á. Alþýðusambandsþing. Kommúnistar munu . þvf ekki vera ákafir í að fá hin nýju samtök í A1 þýðusambandið. Undanfarið hafa kommúnistar haldið fjölda manna utan við kjörskrár í hinum ; einstöku verkalýðfsélögum til þess að þeir gætu : haldxð þar völdum. En ætla kommúnistar einnig : að haida stórum nýjum launþegasamtökum utan við ALþýðusambandið svo að þeir geti haldið völd 1 um þar? Því verður ekki trúað fyrr en á reynir. Ef kommúnistar reyna slík bolabrög'ð og komast upp . m(íð þau, er Alþýðusamband íslands komið í hinni mesfu hættu. Það mun koma í hlut Alþýðusambandsþings að tak.i endanlega afstöðu til inntökubeiðni Lands '• sam.bands ísl. verzlunarmanna. Vera kann, að við : atkvaéðagreiðslu um það mál hafi Framsóknar merxn oddaaðstöðu eins og reyndar er sennilegt, að þeir Iiafi á þinginu öllu. Mun vel verða fylgzt með afþioðu Framsóknarmanna í því máli og öllum öðr j um málum á þinginu, þar eð Framsókn kann að gét) ráðið því hvort kommúnistar halda áfram völd : um t Alþýðusambandinu og hvort þeir hafa þar á fram tækifæri til þess að misnota verkalýðssamtök in: á vxma hátt og þeir hafa gert undanfarið. ' f rrr-""Tirr~OTrr[ - 4 Áskriftarsími I Alþýðuhiaðsins i er 14900 $ ö&jsspfc 1960 — MWb&töm KABLAKÓR Keykjavíkur hélt ;annan kveðjusamsöng sinn í Austurbæjarbíói í gærkveldi. Á söngskránni voru 11 lög, 5 innlend og 6 erlend. Einnig söng Guðmundur Jónsson ein- sönff og Kristinn Hallsson og Guðmundur Guðjónsson sungu einsöng með kórnum. Söngur kórsins var góður með nokkrum undantekningum eins og til dæmis í laginu ,,Ár vas alda“ eftir Þórarinn Jónsson. í því lagi virtust kórmenn alls ekki fylgja söngstjóra, enda féll lagið, og missti kórinn al- veg vald á því. „Landkjenn- ing“ eftir Grieg var nokkuð vei ■sungin, en í þriðju vísu text- ans, sem syngja þarf mjög veikt, varð kórinn næsta falsk- ur. Hið mikla „cresendo“ sem þarf að vera í anda lagsins féll alveg niður. Einsöngur Krist- ins í laginu var góður. Einnig vildi bera of mikið á því, að nokkrir kórmanna skáru sig um of út úr. Fallegasta lag- ið, Og jafnframt það sem bezt var sungið, var lagið „Sefur sól hjá ægi“ eftir Sigfús Einarsson Þar náði kórinn hinni nauðsyn legu mýkt og fágun sem lagið þarfnast. í því lagi náði söng- hæfni kórsins hæst. Lagið „Car ol of the Drum“ var mjög skemmtilega sungið. Uppstilling kóranna vakti almenna íurðu. Mátti halda að þeir sem lægri voru í loftinu, hefðu verið settir bak við þá 560 þúsund i björgunar- skútusjóði ÁRNL VILHJÁLMSSON fulltrúi Austfirðinga í stjórn Slysavarnafélags íslands, var nýlega á ferð austanlands, þar sem hann sat ársfund björg unarskúturáðs Austfjarða. Mik- ill einhugur ríkti á fundinum og áhugi fyrir að fylgja björg- unarskútumálinu fram til sig- urs. , ; f|’ Fjársöfnun tH skipsins nem- ur nú samt 560 þúsund krón- um. í sambandi við fundinn var rætt vio allmarga útgerðar- menn og forráðamenn fisk- vinnslustöðva, verkalýðsfélög og vinnuveitendur um þátttöku í söfnuninni, og var því hvar- vetna vel tekið. Sem fyrr kom þar greinilega í ljós áhugi og fórnfýsi kennaradeildanna um málið, enda hafa þær staðið í fremstu línu við söfnunina. Björgunarskúturáð sakrtar þess að geta ekki haft nánara samhand við afskekktari staði á söfnunarsvæðinu, en hyggst ráða bót á því með sérstökum sendimanni. sem hærri voru, gagngert til þess, að þeir gætu ekki fylgt söngstjóra. Hitt er svo annað mál, hvort það borgar sig fyrir kórinn að standa eins dreift og raun bar vitni um. í því felst hættan að söngmenn geti ekki heyrt hverir í öðrum, og geti því ekki sungið sig eins vel saman. Söngur kórsins vakti mikla hrifningu, og varð hann að syngja möre aukalög. Söng- stjóranum Sigurði Þórðarsyni var mikiíi fagnað að verðleik- um, Á. G. Fulltrúar á b'mgi AS'l Á FUNDI Starfsstúlknafélags- ins Sóknar sl. sunnudag voru kosnir fulltrúar á þing A S í þær Margrét Auðunsdóttir, Helga Þorgeirsdóttir, Þórunn Guðmundsdóttir, — Sigríður Friðriksdóttir og Bjarnfríður Pálsdóttir. Fulltrúar Verkamannafélag.s Akureyrar urðu sjálfkjörnir: Björn Jónsson, Aðalsteinn Hall- dórsson, Þórir Daníelsson, Har- aldur Þorvaldsson og Loftur Meldal. Bókbindarafélag íslands hef- ur kjörið Grétar Sigurðsson fulltrúa sinn á ASÍ-þing og Sveinafélag pípulagninga- manna hefur kosið Ólaf M, Pálsson. Framhaldsadal- fundur kennara STÉTTARFELAG barnakenn- ara í Reykjavík efndi til fund- ar í Laugarnesskólanum sl. þriðjudag. Fundurinn gerði á- lyktanir um launakjör og kennaraskort og skoraði á fræðslumálastjórnina að vinna að lausn þessara mála. Fara á- lyktanir fundarins hér á eftir: 1. Fjölmennur fundur í S. B. R. haldinn.í Laugabiess- skólanum 20. sept. 1960, telur launakjör þau, er barnakennar- ar eiga við að búa, með öllu ó- viðunandi og á þann veg, að knýjandi nauðsyn sé á endur- skoðun þeirra. T. d. eru byrj- unarlaun barnakennara að loknu fjöguri’a ára sérnámi við kennaraskóla kr. 46.206,20 á ári eða kr. 8.481,16 lægri en ó- faglærðs verkamanns11. - 2. „Fundurinn lítur mjög al- varlegum augum hinn mikla skort sérmenntaðra kennara út um byggðir landsins og þau ó- heillavænlegu úrræði fræðslu- yfirvaldanna að ráða í kennara- stöður réttindalausa menn, sem engar sérstakar menntunarkröf ur eru gerðar til og láta bá taka að sér störf, sem lögum sam- kvæmt er til ætlast, að aðeins kennarar með fuli réttindi gegni. Meginorsök kennara- skortsins er sú, að laun kenn- ara eru lítt samkeppnisfær við þau laun, sem mönnum með hliðstæða menntun bjóðast í öðrum starfsgreinum11. 3. „í ljósi þessara staðreynda skorar fundurinn á fræðslu- málastjórnina að vinna að lausn þessara mála með bráðabirgða- úrræðum, unz endur-skoðun launalaga hefur farið fram, eða opinberir starfsmenn hafa feng ið samningsrétt um kiör sín“. Norræn listsýning hérlendis NORRÆN listsýning verður haldin hérlendis í annað sinn í septembermánuði 1961. Sýn- ingin er á vegum Norræna listasambandsins, en slíkar sýningar hafa verið haldnar á Norðurlöndunum til skiptis aruiað livert ár um skeið. Hér var sýning fyrst árið 1948, en síðast var sýnt í Odense 1959. Undanfarið hafa dvalizt hér fjórir hstmálarar til að sitja undirbúningsfund með stjórn Félags ísl. myndlistarmanna og formanni sýningarnefndar, — Þorvaldi Skúlasyni. Gestirnir eru: Tage Hedquist, Svíþjóð, Kaj, Mattlau, Danmörku, Sören Sten Johnson, Noregi, og Áke Hillmann, Finnlandi. eftir ár Á norrænu listsýningunni 1961, sem haldin verður í Lista mannaskálanum og Listasafni ríkisins, verður svartlist, högg- myndir og málverk. erk eftir 10—20 listamenn frá hverju Norðurlandanna munu vera á sýningunni. Verður verkrnn þeirra blandað saman, en ekk- ert land hefur sýningardeild út af fyrir sig Hinir erlendu gestir hafa skoðað húsnæðið, sem sýning- in á að vera í. Lét einn þeirra þá skoðun í ljós í viðtali við fréttamann í gær, að hér þyrfti að koma upp hstahúsi til sýn- inga og munu margir taka und- ir þau ummæli.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.