Sunnanfari - 01.01.1894, Síða 2

Sunnanfari - 01.01.1894, Síða 2
50 einhver þúnglyndisblær á þeim, eitthvert ömur- leikasnið. Dánar vonir, dauði og sorg, þetta er aðalyrkisefni skáldsins og annað slíkt. Einar yrkir um mann, sem stendur yfir moldum allra vona sinna og seinast deyr sjálf þrá hjartans eða hnígur að minsta kosti í ómegin. Hann lætur sorgina, svipmikla og þúngstíga koma til úngs manns, sem lifið liggur fyrir eins og vítt og fagurt verksvið. Sorgin kyssir hann og þessi heiti heljarkoss brennur á enni hans ár og síð upp frá því. Hann yrkir um konúnginn á svörtu eyunum, sem kunnur er úr jpúsund og einni nótt. Konúngurinn hefir heitar og brennandi ástríður, hann lángar til að njóta lífsins. Hann vill starfa svo margt og mikið landi og lýðum til gagns og hann hefir hæfileika til þess — en hann er steinn upp að mitti. Ástríðurnar verða honum til kvalar, því hann getur ekki fullnægt þeim. J>ær eru flagðkonur þær, sem lemja hann hnút- óttum svipum og aumíngja kóngurinn getur ekki annað en krept hnefana í magnlausu heiptaræði yfir öllum þessum ósköpum. »Dauðinn og belj- andi blóðughaddan« eru að leiki sér með mann, sem er á leið um haf lífsins; eingum dettur í hug að rétta honum hjálparhönd, og loksins er »siglt á hann um hábjartan daginn«. Mörg af þessum raunalegu kvæðum eru ljómandi falleg, svo sem kvæði þau, sem drepið hefir verið á, Vinirnir og Eptir barn, en »Vér íslands börn, vér erum vart of kát og eigum meir en nóg af hörmum sárum«, þótt hin úngu og efnilegu skáld vor þýngi ekki þjóðarskapið með sorgarljóðum. En »kaupmaður vill sigla, byr hlýtur að ráða«. Skáldin hljóta að yrkja eins og þeirn býr í brjósti og betra er að fá heilar ljóðabækur fullar af sálmum og harmakvæðum, sem runnin eru frá hjartarótum skáldanna, en glens og gaman, sem ekki er annað en hræsni og yfirdrepsskapur. Og því er miður að ýmislegt í kverinu bendir á að Einar Hjörleifsson geri það ekki að gamni sínu að yrkja svona sorgleg kvæði. Hann er sjálfur kóngurinn á svörtu eyunum, sem vill svo vel og hefir svo mikla hæfileika, en er bund- inn í báða fætnr. Hann er í útlegð þar vestra, eins og hann segir sjálfur í kvæðinu til frú Rannveigar Jónassons (eða -sonar). J>að á ekki við hann að standa í eilífum erjum og illdeilum og honum er farið að leiðast þetta »einskisverða þref og gjálfur« viku eptir viku og ár eptir ár. J»að væri óskandi, að hann losnaði sem fyrst úr þessari útlegð, að hann gæti notið sín betur en nú, að hann kæmist heim í »dalinn sinn«, og þá er eg viss um að þessi dökkgráa raunamóða rynni af skáldskap hans, því eg veit að fornu fari, að til eru léttir og ljúfir streingir á hörpu hans, ekki síður en þúngir og þrautalegir. Sami raunablærinn, sem minzt hefir verið á, hvílir yfir Odu til lífsins, Sjöttu ferð Sindbaðs og Endurminníngum (Gesti Pálssyni), sem öll eru fögur kvæði. Odan var prentuð í Verðandi og munu marg.r Íslendíngar kannast við hana. Skáldið kemst að þeirri niðurstöðu að nautnalífið, »nautnanna dísljúfi draumur«, sá töfrandi, titrandi glaumur, sé ekki neitt, en hvað er nokkuð? »Alt er hégómi undir sólunni«, eins og Salómon segir. þ>etta vita menn, en menn verða að leika, eins og börn, að það sem ekkert er í raun og veru sé eitthvað, sé áriðandi, sé mjög mikilsvert, þvf annars yrði lífið óbærilegt. »Fossandi vínanna straumur«, nautnalífið yfir höfuð at tala, léttir mörgum lífsbyrðina og hefir því mjög mikla þýðíngu, meiri en mart annað. Sjötta ferð Sindbaðs er sérstaklega merkileg að því leyti, að hún er eina framsóknarkvæðið í allri bókinni, sem teljandi er, og þó nær framsóknin ekki leingra en svo, að skáldið hálfefast aðeins um hvort annað líf sé til. »í námabænum niðri í jörðunni« er ólíkt öfium hinum kvæðunum í kverinu. þ>að er miklu fjörugra en þau, og stafar það að nokkru leyti frá ríminu. Ef á að taka kvæðið eins og það liggur fyrir er það eina kvæðið, þar sem skáldið bregður sér á leik, en mér hefir ávalt fundizt fiskur liggja þar undir steini og að kvæðið væri ekki alt þar sem það væri séð. Enn eru ýms kvæði í kverinu um ýmislegt, fáein ástakvæði, tækifæriskvæði o. s. frv. og er hvorki rúm hér né ástæða til að minnast frekara á þau, J>au eru öll snotur og ekkert kvæði er í kverinu, sem ekki er »vert að láta á burt«. Eina kvæðið sem þýtt er, Rispa eptir Tenny- son, er snildarkvæði og lángbezta kvæði, sem eg hefi lesið eptir hann. þ>ví eru sólarljóðin úr »AUan Quatermain« ekki tekin upp í kverið? þ>au eru þó ljómandi fögur, eins og hæfir jafn- voldugum guði og sólin er. »þ>okulægíng« (bls. 31) mun vera prentvilla fyrir þokulæðíng. Annars er mjög fátt af prent- villum í kverinu. Grein sú sem fer hér á undan var rituð skömmu eptir að ljóðmæli Einars Hjörleifssonar komu út, en ekki hafa verið faung á að prenta hana fyr en nú. Nú flytur Sunnanfari mynd af Einari, og vil eg því bæta aptan við hana helztu æfiatriðum Einars. Einar Gísli Hjörleifsson er fæddur í Goð- dölum 6. desember 1859 og útskrifaðist frá latínu- skólanum í Reykjavík 1881. Hann sigldi á há- skólann samsumars og lagði stund á hagfræði, en ekki varð úr því að hann tæki próf í henni. 1885 fór haun til Vesturheims og stofnaði blaðið Heimskringlu með ýmsum öðrum mönnum 1886 og var ritstjóri hennar framaraf, en 1888 varð hann ritstjóri Lögbergs og er það enn. Einar er tvíkvæntur. Hann kvæntist danskri konu 1885, en misti hana eptir stutta sambúð og tvö

x

Sunnanfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.