Sunnanfari - 01.01.1894, Blaðsíða 3
51
börn. Nú er hann kvæntur íslenzkri konu, sem
heitir Gíslalína.
Einar Hjörleifsson hefir ritað mjög mikið
auk kvæða þeirra, sem getið hefir verið um.
Blöð þau sem hann hefir stjórnað geyma eptir
hann fjölda af greinum um alt, sem nöfnum tjáir
að nefna, og munu liggja fyrir þeim sömu ör-
lögin og flestum blaðagreinum um víða veröld,
gleymskan; en aptur hefir hann ritað nokkrar
skáldsögur, sem talsvert kveður að í íslenzkum
bókmentum, og nefni eg þar til »Vonir«, »You
are a humbug sir« (í Heimdalli), »Hvern eiðinn
á eg að rjúfa«, en einkum »upp og niður« f
Verðandi, því í þessari seinustu sögu eru slík
tilþrif, að slíks eru varla dæmi í íslenzkum skáld-
sögum. Ó. D.
Sálmur yfir víni.
Lag: Gott er halte Franz, den Kejser.
Guð iét fögur vínber vaxa,
vildi gleðja dapran heim.
Gefið hafð ’ann gnægðir axa,
góðar hjarðir, nógan seim.
þ>reyttust menn við bú að baxa,
blóðið varð svo dökkt í þeim.
j?á lét drottinn vínið vaxa,
vildi gleðja dapran heim.
Breiddist iðgrænn vafnings viður
við hans boð um aldinreit.
Höfgir klasar héngu niður,
Himinsól á skrautið leit.
Glumdi’ í lopti gleðikleður,
glóðu berin rauð og heit.
Breiddist iðgrænn vafningsviður
við hans boð um aldinreit.
Gleðjist, sagði ’ann, gullnar veigar
gera blóðið rautt og létt;
undan þeim hið illa geigar
ef að þeirra’ er notið rétt.
Angur, þreyta’ og illir beigar
undan flýja’ á harða sprett.
Gleðjist, sagði ’ann, gullnar veigar
gera blóðið rautt og létt.
Aldrei sagði þeingill þjóða:
Þú skalt ekki drekka vín.
Öllum vill hann ætíð bjóða
ör og mildur gæðin sín.
Smána jafnt hans gáfu góða
Goodtemplar’ og fyllisvín.
Aldrei sagði þengiil þjóða:
J>ú skalt ekki drekka vín.
Enn þá blómgast iðgrænn viður,
enn þá blikar gullin veig.
Enn þá sendir sólin niður
siung bros um aldinteig.
Enn má sætur söngva kliður
senda’ í Niflheim drunga’ og geig.
Enn þá blómgast iðgrænn viður,
enn þá blikar gullin veig.
1893. Hannes Hafstein.
Færeyska er skyldust íslenzku af öllum þeim
tungum, sem lifandi menn mæla. þær skilur að
vísu nokkuð í framburði, en þó aunganveginn mjög
mikið. En það er annað, sem þær skilur meir um
og það er að íslenzkan hefir verið bókfast mál um
margar aldir og að vér eigum miklar og merki-
legar bókmentir, en Færeyingar hafa til skamms
tíma nær ekkert séð sett á bók á sínu máli. Eigi
að síður hefir þessi litli og einkennilegi þjóðflokkur
geymt sérstakt lifandi mál fyrir sig á tungurótum
sínum og i þjóðkvæðum alt til þessa dags, þrátt
fyrir það, þótt börnunum hafi verið kendur barna-
lærdómurinn á dönsku og þótt öll guðsþjónusta
fari þar fram á dönsku og einga eigi þeir guðs-
orðabókina, nema á þvi máli. Vitanlega skilja
börnin ekki dönsku og verða þvi að læra hana
jafnframt sínu máli. Eins og vonlegt er hefir það
I sjálfsagt vakað nokkuð leingi fyrir Færeyingum,
þótt þeir, eins og eðlilegt er, hafi ætíð verið meiri
sjósóknarar en fræðimenn, að þeir þyrftu að hirða
um mál sitt og reyna að koma sér upp bókmáli,
og sá, sem fyrstur gerir nokkuð að því að gagni
er séra Vensil U. Hammershaimb, sem er inn-
borinn á Færeyjum og leingi var prófastur þar á
eyjunum, en nú er prestur í Lyderslev á Jótlandi
og aldurhniginn maður. Hann gaf 1851—55 út
hin elztu þjóðkvæði Færeyinga; var þá eingin
færeysk réttritan til, því aldrei hafði neitt verið sett
á bók fyrri á því máli, er neinu nam. Var þá
vitanlega um tvo vegi að velja, annaðhvort að rita
sem næst framburði eða þá að styðjast við rithátt
þess máls, er nærskyldast var, og næst hinu upp-
runalega formáli beggja, sem er íslenzka, án þess
að fjarlægjast þó svo framburð Færeyinga, að erfitt
yrði þeim til skilnings um það, er ritað væri.
Hammershaimb valdi síðari veginn, og svipuðum
rithætti fylgir hann og á úrvali því af bókfræðum
Færeyinga, er hann gaf út fyrir skömmu ásamt
cand. mag. Jakobi Jakobsen, ungum færeyskum
fræðimanni. Færeyska með slíkum rithætti er skilj-
anleg hverjum Islendingi að miklu leyti. Hammers-
haimb brá sér til Færeyja i sumar eð var og var
um tíma á eyjunum til þess að finna gamla vini
og lita yfir landið, ef til vill í síðasta sinni. Vér
höfðum þá ánægju að vera þessu gamla Ijúfmenni
samferða. þegar hann fór frá eyjunum í August
héldu eyjarskeggjar honum veizlu að skilnaði, þar
sem þeir meðal annars sungu 1. erindið af Ljómum
Jóns biskups Arasonar1) — kvæðið hefir verið þjóð-
') Dimmalætting 19. Aug. villist á því og segir þau kvæði
bæði, er sungin voru, ort þá.