Sunnanfari - 01.10.1896, Qupperneq 7

Sunnanfari - 01.10.1896, Qupperneq 7
31 „Æ, segðu m.jer, hvað hugsa himnasveitir, er heitmær sveini fyrsta kossinn veitir“. Og hóglátlega himinstjarnan svarar: „Þá horfa niðr á jörðu ljóssins skarar, því eigin sælu ástin sjá þá lætur. En aleinn dauðinn lítur við — og grætur“. II. Amor. Ekki særði hann mitt hjarta; heldur ei, sem bækur kenna, læddist hann með álm og örvar. Eina skeytið var hans fegurð, sakleysið var sjálft hans kænska. „Sveinninn góði, ef þú kemur, hjarta mitt er hlýtt og opið“. Hann brá við og kom, — og síðan eins er jeg fús að eiga dreinginn eins og hann að vera hjá mjer. Bjarni Jónsson frá Yogi. Stjariia. Eftir Pál Ólafsson Stend jeg oft einn hjá Stjörnu, hún Stjarna mín vill það gjarnan; Stjörnu ann jeg uú einni, inndælt barn er hún Stjarna. E>að stirnir á hana Stjörnu, hún Stjarna er vökur á hjarni; strákarnir girnast Stjörnu, þó Stjarna mín sje með barni. Tindurinn og Jiokan. Þó glitri sumargeislar frá glæstum jökulskalla, neðar þrumir þykk og grá þoka að bökum fjalla. Skottið úfið leggur lágt. Leiðir súg um tindinn. — Máske hann snúi í aðra átt? Ekki er að trúa á vindinn. Þ. O. 50 ára afntæli lærða sliólans var 1. okt. og hefði það átt að vera haldið með meiri vegsemd en gert var. Reyndar var þeas hátíðlega minnst á nndan skólasetning þennan dag og voru þar viðstaddir ýmsir helstu menn bæjarins, svo sem landshöfðingi, stiftsyfirvoldin, kennarar prestaskólans, læknaskólane o. s. frv., og ræður voru fluttar af biskupi og rektor og ávörp lesin upp frá presta- skólanum, læknaskólanum og sthdentafjelögumim í Reykja- vík og Kaupmannahöfn. En vel hefði mátt gera meir úr þessu afmæli. Það var og ráðgert, að kennarar og piltar hjeldu átveislu, en úr henni var ekkert, því þegar til kom vildu nær eiugir af piltum taka þátt í henni; báru þeir það fyrir, að of Btuttur tími væri ætlaður til veisl- unnar, ekki meir en tveir klukkutímar, og yrði eingum fagnaði við komið. Annars mun hvorki kennurum nje piltum hafa verið nokkurt kappBmál í því að veislan yrði haldin. Ef rjett hefði verið að farið hefði veislan alls ekki átt að vera bundin við skólann einan, eða kennara og pilta, heldur hefði átt að vera boðað til hennar öllum þeim, sem skólaveginn hafa geingið. Úr því hefði vafa- laust orðið sæmilegt sampæti. Hafnarvlsa. Þorsteinn Erliugsson kvað: Þar sem einginn þekkir mann, þar er gott að vera. Jón Þorkelsson botnaði: Því að allan audskotann er þar hægt að gera. Ví sa. Eftir slra Pál skálda, kveðin daginn sem hann dó og siðast af þvi sem hann orti. UmtalBmálin eru hvurt úr mjer sftlin dæmist og hvorjir Pálinn bera burt þá banaskálin tæmist. Bókasafn alþýöu er fyrirsögnin á boðsbrjefl að nýju bókaútgáfu-fyrirtæki, sem stofnað er til af Oddi prentara BjörnBsyni i Kaup- mannahöfn. Sunnanfari helur verið beðinn að geta þeasa, og er hjer kafli úr boðsbrjefinu: „Undirskrifaður hefur ráðist í að gefa út safn af skemmti- og fræðibókum fyrir íslenska alþýðu, og vonast eftir góðum undirtektum hjá leikum og lærðum. Jeg hef feingið loforð um hjálp við útgáfu safnsins bjá ýms- um íslenskum menntamönnum hjer og heima. í safni þessu verða: 1. Frumsamin íslonBk kvæði og íslenskar skáldsögur; 2. Vandaðar þýðingar á frægum útlendum Bkáldsögum, leikritum og kvæðum;

x

Sunnanfari

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.