Sunnanfari - 01.04.1902, Side 8
52
óraveg, ýmist í jörð eða á, og sjöleiðis ekki
öðru vísi en á mararbotni.
Rafmagnsfræðingar einir skilja til hlítar eða
kunna að skýra það, hvernig slíkt má verða. Séð
höfum vér nýlega það dæmi notað til að gera
það eðli rafmagns skiljanlegt, er Marconi hagnýt-
ir, að eins og öldur dreifast hringinn í kring út
þaðan, er steini er kastað i vatn, berist rafmagns-
öldur hringinn í kring út frá hverri rafmagns-
lind, þvi lengra, sem hún er öflugri, og um
hvað sem fyrir er hér um bil, með sama liætti
og hiti berst og hljóð. En eins og eyra þarf
til að taka við hijóðinu, eins þarf rafmagnsstöð
til þess, að vart verði rafmagnsöldunnar í fjarska,
og allan þann útbúnað, er hafður er ella til að
gera rafmagnsáhrifin þar að rituðu mál. Því
sterkari, sem rafmagnslindin er, þvi lengra berst
það og glöggvara.
Marconi er nú um f essar mundir að fást við
það kynjamikla stórvirki, að koma rafskeytum
þráðlaust alla leið um Atlanzhaf þvert milli ír-
lands og Nýja-Skotlánds. Sjálfur hefir hann ör-
ugga trú á, að það muni takast, svo að fullum
notum komi, og telur sig jafnvel hafa þegar
komist upp á það. En aðrir rengja það eða efa.
Likiegt er, að fullreynt verði það einhvern tima
á þessu ári Fáum mundi það betur koma en
oss íslendingum, ef það lánaðist, svo lítt sem
oss er sá kostnaður kleifur, að koma við raf-
skeytum og hafa þeirra full not með gamla
laginu.
Työ stórhýsi í Reykjavík.
Hús þau tvö, sem sýnd eru hér á 28. bls.,
eru meðal laglegustu stórhýsa þar, mjög nýleg
bæði, við annað lokið, Iðnaðarmantihúsið, í árs-
byrjun 1897, en hitt á áliðnu ári 1900.
Iðnaðarmannahúsið stendur fast suður við
Tjörn, við Vonarstræti sunnanvert (sem rninst af
er til orðið enn). Það er 43 álöa langt og 20
álna breitt. Þar er aðalleikhús bæjarins, áhorf-
endasalur 14X21 alin °g ll'l* alin a hæð, en
leiksvið 11 V^X1) álnir, og 9 álna hátt af palli.
Hússtjórnarskófinn hefir og húsnæði í Iðnaðar-
mannahúsinu, og haldin eru þar flestöll meiri
háttar samkvæmi í höfuðstaðnum.
Hitt húsið, Pósthússtr. i4 b., er 36 álna
langt og 14—15 álna breitt. Hár salur og mik-
ill er því miðju á efri lofti. Það er fundarsalur
Oddfellowa. Þetta hús er og eina húsið í bæn-
um, er hefir miðstöðvarhitun, annað en bankinn.
Ferðarolla
konferenzráðs Dr. Magn. Stephensens
1825—26.
(Frh).
Marz 5......Fór eg til greifa Moltkes í Rentu-
kammeri heim til hans, og hjalaði lengi við hann
um lausn mágs míns frá Borgarfjarðarsýslu með
pensión, hvar um eg í gær gaf þar inn ansögningu
með góðri erklæring Hoppes, — og um veitingu
hennar til Magnúsar frænda. Tók hann öllu vel
og var hinn ljúfasti, en gat engu vissu lofað, því
einn Mösting ræður því öllu, en hann síveikur,
fæst aldrei í tal. A götu mætti eg nú Casten-
schiold gamla nýkomnum hingað; lózt hvorugur
þekkja annan, og tók hvorugur ofan. Svo sat eg
miðdagsveizlu eftir heimboði hjá etazráði Orsted, og
ritaði svo ansögning til kóngs um jústizsekretera-
brauð fyrir son minn, sem eg á morgun keyri með
til kóngs, og reyni þar enn til að tala hans máli,
hvað eg og rækilega gerði í dag við Örsted.
Marz 6........N11 er póstskipið líklega út lagt.
Gangi því sem hraðast, svo eg sem fyrst fregni af
mínum elskuðu heima í Yiðey. Um sama leytið,
nefnil. kl. 10 fyrirmiðdag, keyrði eg í stázi upp til
kóngs, og afhenti honum í eigin hönd þá í gær
nefndu ansögningu, en önnur með Hoppes hálfgrey-
legu erklæringu er í kansellíi, og kemur þar fyrir
á fimtudaginn þann 9. þ. m. Fekk eg þá náð að
tala lengi og snjalt við kóng um það mál alt, sem
bezt eg gat, og fela honum það efni. Hann spurði
mig ítarlega um son minn, hans examen, giftingu,
barneign og ástand, hans bústað og um Viðey, sem
hann hélt mesta fyrirtak, en eg bauð honum að
kaupa hana nú aftur fyrir það hún kostaði mig;
hló hann þá hátt.
Hitstjóri Björn Jónsson.
ísafoldarprentsmiðja.