Sunnanfari - 01.03.1912, Síða 5
21
Þjóðmervjasafnið
er nú komið í annan stað enn það var, þegar
Sunnaníari birti síðast myndir þaðan; þá var
það geyint í Landsbankahiisinu, en er nú í
Safnabúsinu nýja, og er niðurröðun öll og
fyrirkomulag þess gleggri og hentilegri enn þá
var; rná það, eins og annarstaðar segir í blað-
inu, m. a. þakka alúð Matthíasar tornmenja-
varðar við starf silt. lJessar tvær myndir eru
af tveimur einkennilegustu stöðum úr safninu.
A stærri myndinni sjest annar endinn á sai
þeim, sem nefndnr er kirkja, sakir þess að
í honum er eingöngu geymd messureiða og
gripir úr kirkjum. Fyrir miðjum gaflvegg
hangir krossmark stórt og snildarlega skorið;
Ijet Brynjólfur biskup Sveinsson setja það í
kirkjuna í Kallaðarnesi, í staðinn fyrir kross-
inn helga, sem jartegnirnar gjörði flestar og
gamla kvæðið var orkt um, enn þeim krossi
var spilt eptir siðaskiptin. Til vinstri handar
við krossinn hangir máluð mynd af Haldóri
Brynjólfssyni Hólabiskupi. Til vinstri við þá
mynd er mynd af Steini biskupi Jónssyni.
Undir þessum tveim myndum hangir altaris-
tafla frá Hraungerði yfir litlu altari; á altari
þessu er altarisklæði fornt með útsaumuðum
úýrðlingamyndum frá Draflastöðum, í þjóð-
Innar af henni er mynd af Ara bónda Magn-
ússyni í Ögri og Kristínu Guðbrandsdóttur
biskups, konu hans; sú mynd var prentuð í
menjasafninu er og slóll þaðan. Hægramegin
við krossinn er mynd af Gísla biskupi Magn-
ússyni, þeim er Hólakirkju reisti þá er nú
stendur. Hægra megin við Gísla er mynd af
Sigurði Stefánssyni, er
siðastur var Hólabisk-
upa. Undir myndum
þeirra Gísla og Sigurðar
hangir yfir litlu altari
altaristaíla frá Reykholti;
er bún mætavel gerð og
úr kaþólskri tið. Fram
með hægra vegg er stór
skápur með'glerhurðum;
í honum eru geymdir
höklar, enn þeir sjást lítt.
Ofan á skápnum stendur
sægur af dýrlingum
skornum í trje. A vinstri
vegg hanga 3 stórar töfl-
ur; á þeirri, sem næst
er, er mynd af Magnúsi
prúða Jónssyni, konu hans og börnum; meðal
þeirra er Ari, er síðar varð bóndi í Ögri.