Sunnanfari - 01.06.1913, Síða 2

Sunnanfari - 01.06.1913, Síða 2
42 og séra Sigurði Stefánssyni í Vigur, en síðan einn, frá 1. Jan. 1893, alla tíð meðan félagið stóð, þ. e. fram á árið 1901. Þetta félag ger- breytti verzlun allri við ísafjarðardjúp, og verður naumast tölum talið, hve mikið gott af því leiddi fyrir héraðið á ýmsa vegu. Geta má þess, að hann beittist fyrir því í sýslumannstíð sinni, að koma á talsímanum milli ísafjarðarkaupstaðar og Hnífsdals, og var það annað talsímasambandið liér á landi til almennings nota. Var það þá tillaga hans, að koma bæði Norður- og Vestur-ísafj.sýslu í símasamband við kaupstaðina. En málið þótti ærin nýjung á þeim tíma, og mætti því mótspyrnu sem olli því, að eigi varð ineira að gert þá en hér segir. Mjög ant lét hann sér og um það, — sem þá og vakti fyrir eigi fáum meiri háttar mönnum í Norður-ísafj.sýslu — að Djúpmenn eignuðust sjálfir gufubát, er annast gæti ferðir um héraðið, og safnaðist Norður-ísfirðingum þá eigi alllítill sjóður í því skyni. Umburðarbréf ritaði hann og í sýslumanns- tíð sinni f öll sveitarfélög í sýslunni, og hvatti menn til að leggja fé nokkurt í Söfnunarsjóð íslands, er stæði þar á vöxtum 1—2 aldir, eða þar um, svo að sá tími gæti þó komið einhverntíma í framtiðinni, að ísafj. kaupst. og öll sveilarfélög í sýslunum gætu orðið efna- lega alsjálfstæð. Þessu sintu sum sveitarfé- lögin, en þó hvergi nærri öll, og varð þvi árangurinn ekki svo almennur sem skyldi. Þá gekst hann fyrir því, þegar haustið 1887, að prentsmiðja var sett á stofn á ísafirði, og var það fyrsta prentsmiðjan á Vesturlandi, síðan prentverkið var í Hrappsey. Var hann sá, er frá byrjun hafði allan veg og vanda af ritstjórn »Þjóðviljans«, — og var þá eigi sjald- an að mun berorður um landshöfðingjavald- ið. — Þótti sem það svo að segja altepti þá alt löggjafarstarf hér á landi. Þetla var nú eigi vænlegt til þess að afia honum vinsælda hjá stjórninni og fylgismönnum hennar, enda urðu viðskifti hans við hana söguleg. í Júní 1892 hófst málarekstur sá hinn mikli afstjórn- arinnar hálfu gegn honum, er síðan hefir kallaður verið einu nafni »Skúlamálið«, og eigi lauk fyr en með hæstaréttardómi í Febr. 1895, og var þá Sk. Th. alsýknaður og máls- kostnaður allur lagður á landssjóð, nema */« á Sk. Th., sökum formgalla. Meðan á þeim málaferlum stóð, logaði ekki einungis alt Vesturland af ófriði út úr þeim, heldur alt landið að heita mátti, því að alþýða leit víð- ast svo á, sem hér væri ekki um annað að ræða, en pólitískar ofsóknir gegn Sk. Th. Og ekki slævaðist það álit, þegar stjórnin — þrátt fyrir sýknudóm hæstaréttar — gerði honum tvo kosti: annaðhvort að verða skipaður sýslu- maður í Rungárvallasýslu, eða verða leystur frá embætti með eftirlaunum. Sú sýsla er miklu verr launuð, en annars óskiljanlegt að maðurinn væri hæfari í einni sýslu en ann- ari. Sk.Th. svaraði stutt: »Ég læt ekki setja mig niður sem hreppsómaga«, og var svo frá embætti leystur. Þessi afsetning vakti mjög almenna óánægju, fyrst og fremst í sýslu Sk. Th., því að fá yfirvöld hafa verið svo vinsæl, sem hann þar, og svo um land alt. Rakaði hún stjórninni vantraustsyfirlýsingar, bæði Þingvallafundar, er haldinn var 1895, og sömuleiðis af hálfu þingsins sama ár. En svo alvön var stjórnin þá orðin því, að sinna að engu þjóðarálitinu, að svo var sem þetta biti ekkert á hana. Landshöfðingi játaði það jafnvel sjálfur í þing- ræðu í efri deild, að meðferðin á Sk. Th. væri af pólitískum rótum runnin: »AðaIástæða stjórnarinnar fyrir því, að hún sá sér ekki fært að setja mann þennan aftur inn í em- bættið, var framkoma hans gagnvart stjórn- inni, einkum næstundanfarandi ár o. s. frv.«. Var sem stjórnin vaknaði þá loks við, er það kom til orða á alþingi, að greiða Sk. Th. 5 þús. kr. skaðabætur, vegna atferlis hennar í hans garð. Hafði liún þá enda í hótunum um fjárlagasynjun, en af því varð þó eigi, er þingið sýndi festu og samþykti skaðahæturn- ar engu að síður. Eftir þetta dvaldi Sk. Th. enn á ísafirði við kaupmensku o. fl. störf til 1901, er hann keypti Ressastaði á Álftanesi og fiuttist þangað. Þar

x

Sunnanfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.