Öldin - 01.09.1893, Síða 6

Öldin - 01.09.1893, Síða 6
OLDIN. 8fi hefi ég svarið þess dýran eið, að ráða yðr' af dögum, hefi reitt mig á aðstoð innar hei- lögu meyjar og fylgt yðr hingað frá Wuertzborg með þeirri ætlan að ná lífi yðar.” Konungr rendi auga til Oxenstjerna, sem honum léki efi á, hvort mær þessi væri með fullu viti sínu. Júngfrú Regína tók eftir því og hélt áfram, æ stoltari og ein- beittari í bragði: “Herra, þér ætlið mig örvita, þar sem ég dirfist slíkt að tala við sigrvegarann yf- ir Þýzkalandi. En heyrið mig til loka. Þegarégsáyðr fyrst í Wuertzborgarkastal- anum, sá hvernig þér sýnduð mannást og mildi við ina veiku, og gáfuð inum yfir- unnu gi’ið, þá sagði ég við sjálfa mig: Þarna er helvíti að hræsna og gera sér upp himinsins líknsemi. En þegar ég fylgdi yðr hingað og kyntist yðr betr, og sá yðar sönnu stórmensku og bar hana saman við mikilmensku yðar sem hetju — herra, þá veiklaðist ég í áformi mínu; hatrið varð mér of erfitt og ég átti í stríði við sjálfa mig, og nú í lcveld hefir manngæzka yðar niðrbrotið ásetning minn, sein áðr var ó- sveigjanlegr. Herra, nú elska ég yðr, eins og ég áðr hataði yðr — ég heiðra, ég dáist að yðr.” Og ungmærin skaut niðr augunum. “Nú?” sagði konungr hrærðr og hik- andi. “Yðar hátign, ég hefi nú gert þessa játning fyrir þá sök, að þér eruð svo góðr og göfuglyndr, að þér misskiljið hana ekki. En ekki er ég komin á yðar fund á þessum tíma þess erindis einungis, að birta yðr til- íinningar ógæfusamrar stúlku. Eg er kom- in til að frelsa yðr, herra—” “Segið mér!” “Heyrið mig, herra konungr. Eg er nú vopnlaus, en aðrir eru eftir hættulegri en ég er. Sex jesúmunkar hafa svarið dýran eið að taka yðr af lífi. 0, þér vitið ekki, hvað slíkir menn gcta komizt! Þeir hafa varpað hlutkesti um líf yðar, og in voðalegustu meðul þeirra eru daglcga nærri persónu yðar. ‘ Yðar hátign mun ekki komast undan þeim. I dag eða á morgun nær yðr, ef til vill, morðhnífrinn eða eitrið. Dauðinn or vðr í’áðinn.” “Líf mitt stendr í guðs hendi, en ekki auvirðilegra morðingja,” svaraði Gústaf Aðólf stillilega. “Inir illu eiga minna vald en vilja. Verið róleg, jungfrú af Emmeriz, vitið, ég liræðist þá ekki.” “Nei, herra, dýrlingarnir hafa dæmt yðr til dauða. Eg veit að þér setjið traust yðar á þennan hring” — og Regína tók um hönd konungi— “en hann mun ekki frelsa yðr. Herra, ég segi yðr fyrir satt, að dauðinn er yðr vís, og ég er ekki komin til að frelsa yðar líf með því að svíkja mál- cfni vorrar heilögu kyrkju.” “Og fyrir hverja sök standið þér þá hér ?” “Herra, ég er komin til að frclsa yðcir sál. Eg gct ekki þolað að hugsa, að hetja eins og þér eruð, svo hágöfug hetja, verði eilíflega glötuð. Heyrið mig, ég bið yðr, ég særi yðar hátign við yðar eilífu sálu- hjálp, að ana ekki fram með dauðann beint fyrir augum í trúarvillu yðar, hverrar á- vöxtr er fyrirdæming. Látið yðr segjast; snúið yðr meðan enn er tími til, hverfið aftr í skaut innar einu sáluhjálplcgu ka- þólsku kyrkju; afneitið með eiði yðar villutrú; farið á fund ins heilaga föður í Rómaborg, látið hann. skriíta yðr og beitið svo yðar sigrsælu vopnum móti óvinum kyrkjunnar, en ekki lienni til eyðilegging- ar. Hún mun taka á móti yðr með út- breiddum faðmi, og hvort heldr þér síðan lifið eða deyið, mun yðar hátign jafnan mega vera viss um yðar sæti meðal inna útvöldu dýrlinga á liimnum.” Konungr reisti nú annað sinn upp ina dreymandi yjigismey, horfði stilt og fast í hennar tindrandi augu og mælti síðan al- varloga: “Þá cr ég var ungr cins og þér eruð, jungfrú af Emmeriz, upp ól mig kennari minn, gamall skotmaðr, til sama brennandi vandlætis sakir innar evangelisku trúar,

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.