Öldin - 01.09.1893, Side 9

Öldin - 01.09.1893, Side 9
ÖLDIN. «í) hefl ég heimtað hefnd af kyrkjum yðar, klaustrum og samvizkum. Þér hafið haft trú vðar í friði og frclsi og enginn hefir snert hár á yðar höfði fyrir hennar sakir. En nú loksins þekki ég yðr, þér djöfuls þjónar! Drottinn vor guð hefir gefið yðr í mína hönd; ég skal tvístra yðr eins og inoldryki; ég skal skapa yðr víti, þér helgi-þjófar; ég skal elta yðr út á hjara veraldar, svo lengi sem þessi armleggr má lyfta drottins sverði. Hingað til hafið þér þekt mig mildan og mannúðlegan ; vel og gott, eftir þetta skuluð þór sjá mig harðan og liræðilegan ; ég skal uppræta yðr fyrir guðs kraft af jörðunni og sundrtæta yðar helvízku kenningar, og þar skal verða set- ið til dóms og sýndar þær ógna-atfarir, að þvílíkt hefir heimrinn aldrei lieyrt né séð frá því er Rómaborgar-veldi til grunna lu'undi!” Og konungrinn <>ð aftr og fram um gólfið og virti ekki Jesúítann, sem lá fyrir íotum hans, nokkurs augnaráðs, og heldr ekki Regínu, sem stóð skjálfandi afsíðis úti í glugga og byrgði f'yrir andlitið. Oxen- stjerna, sem aidrei týndi gáti og gætní, ótt- aðist, að konungr mundi ekki geta hamið ofsa sinn, og vildi nú beina honum í aðra átt og mælti: “Þóknast yðar hátign að bjóða Bertel lautinant að færa munk þennan í fast varð- liaid og láta herdóminn síðan segja upp sök hans til varanlegs varúðardæmis ?” “Vægð, vægð, yðar hátign!” æpti Regína, af blindri umönnun og rækt fyrir skriftafiöður sínum. “Vægð, vægð, ég ein er sek. Það var ég, sem taldi hann á þettaó- iiapparáð; égeináhegningskilið f'yrirþað.” Við þessa göf'uglyndu sjálfsafneitun Iiennar, fékk munkrinn aftr vonarskímu, en ekki þorði liann upp að standa. Kon- ungr hcyrði bænir hennar, en snéri sér nú reiðr að varðinönnum sínum. “Bertel lautinant,” mælti hann byrstr; “þér áttuð að vcra lífvarðarforingi minn í nótt; f'yrir vangeymslu yðar hefir mann- hrak þetta smeygt sér inn hingað. Þér færið hann þegar í fangclsi og ábyrgist með liöfði yðar, að hann komist ekki und- an. Að því búnu takið þér yðar stöðu meðal hermannanna. Uppfráþessuaugna- bliki eruð þér úr tign yðar og orðinn um- komulaus dát.i.” Bei’tel laut og svaraði engu orði. Sveið honum meira en niðrlæging hans, að missa hylli konungs síns, og það því fremr, sem hann haf'ði gætt skyldu sinnar með inni ýtrustu nákvæmni. Iívernig munkrinn hafði komizt inn, var lionum fullkomin gáta. Nú liafði munkrinn tekið hendinni um kné konungi og beðið vægðar, en það kom fyrir ekki. Konungr liratt honum frá sér og var hann leiddr út, gnístandi tönnum og með heift í bjarta. Því næst snéri1 konungr sér að inni skjálfandi ungmey við gluggann, greip hönd hennar og horfði fast í augu liennar. “Jungfrú,” mælti hann, “það er sagt, að í hvert sinn sem liöfðingi myrkranna vilji að drýgtsé eitthvert liraklegt niðitigs- verk á jörðunni, sendi liann upp þangað ára sína alskrýdda ijóssins englabúningi.” Jungfrú Regína hafði enn þá hugdirfð að horfa framan í ásjónu ins ógrlega. “Eg hefi ekkert að segja framar. Tak- ið mitt líf, herra, en þyimið lífi skriftaföð- ur míns,” sagði hún með ti'úarofsans óbil- andi sálarkrafti. Konung-r horfði í augu hennar og gat varla stilt sig að reiðin brytist ekki út í annað sinn. “Hefði faðir yðar verið ráð- vandr maðr, jungfrú mín, þá hefði hann kent dóttur sinni að óttast guð, heiðra kon- unginn og tala sannindi við alla. Þér liaf- ið viljað snúa mér; ég skal nú í þcss stað taka að mér uppeldi yðar, því að þess sýn- izt þér við þurfa. Farið, þér eruð minn fangi þar til þér liafið lært hreinskilni og sannleika. Oxenstjerna, er in gamla stfanga Marta á Krosshólmi enn á lífi ?” “Já, yðar hátign.” “Hún fær konu í kost iijá sér til að aga. Þegar f'yrsta l'æri gcfst, skai stúlka þessi send norðr á Finnland.” Jómfi’ú Rcgína gekk burt, stolt og steinþegjandi.

x

Öldin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.