Öldin - 01.02.1894, Side 14

Öldin - 01.02.1894, Side 14
30 ÖLDIN. og að hnyta í aðra af eigingirni. Hafðu fyrir auguna þér dæmi hinna miklu og góðu. Láttu ekki blindast aí því, sem ofan á flýtur, og gerðu það sem rétt er, hvað sem menn segja.” Ekkert er göf'ugra til í heiminum, en drenglyndi, mannúð og góð verk. Sála sú, sem fylgir stigum dygðarinnar, er eins og hið eilífa vor, því að hún er hrein og hress- andi, talandi og auðug og skaðar engan. Leitastu eftir að ná samþykki þíns innra manns. Reyndu að sýna fegurð þína fyr- ir guði. Reyndu að vcra hreinn fyrir sjálfum þér og hrcinn fyrir guði, og þegar vondar hugsanir ásækja þig, þá skaltu rísa upp og ganga á fund hinna göfugu og góðu. Lifðu eftir dæmi þeirra, livort sem þú liefir dæmi þessi meðal hinna lifa.ndi eða dauðu. Líttu á Sókrates og sjáðu live algerlcga hann heflr náð valdi yfir freistingunni. Hugsaðu út í það, hve dýrðlegur liafl verið sigur hans yflr sjálfum sér. Það sem þú ekki átt að gera máttu ekki einu sinni hugsa um. Ótöluleg dæmi önnur mætti til týna, til þess að hrekja þessar skoðanir próf. Herrons. Ég legg áherslu á þetta, því að það ríður svo fjarska mikið á því, að öll trúfræði og kreddu-guðfræði, sem æfinlega vekur upp hölvun og beiskju og hatur, sé útilokuð frá öllum framfara-hreyfingum, er eiga að styrkja og efla hið sanna borgara- lega lýðveldi. Það er mjög áríðandi, að vér munum vel eftir því, að það er ekki sá, sem kallar “herra ! herra !” heldur sá, sem gerir guðs vilja, sem getur vonast eft- ir velþóknun guðs. 0g vér getum aldrei of oft lagt hugsandi mönnum það á hjarta, að margar af hinum óttalegustu ofsóknum, sem svívirða sögu mannkynsins, spretta einmitt af þeirri einlægu sannfæringu trú- fræðinganna og guðsmannanna, að þeir væru að framkvæma vilja guðs. En þá koma oss til hugar orð Mr. Ilenry Lea. Hann segir : “Hin voðalega grimd og villimanna- ákafl, sem í margar aldir olli mannkyninu ósegjanlegrar bölvunar í Krists nafni, segja heimspekingar að sé sprottin af kenning- unni um frelsun hinna “útvöldu” að eins, því samkvæmt þeirri kenningu álitu þcir, sem völdin höfðu, það fyllilega rétt, að meiða og pinda þá, sem “náðinni” veittu mótstöðu, þeim sjálfum til góðs, og til að varna þeim frá að leiða aðrar sálir í glötun. Það er engum efa bundið, að hinir gæf- lyndustu menn, hinir mestu gáfumenn, með göfugum hugmyndum og heitum ákafa fyrir réttlætinu, játandi trú þá, sem grund- völluð var á kærleikanum og Kristi, voru algcrlega miskunarlausir þegar ræða var um eina eður aðra tegund “vantrúarinnar,” og voru þess albúnir að merja hana í sund- ur hversu miklar kvalir sem það kostaði. Þessum ófrelsis-anda verða menn að sporna á móti hvar sem hann kemur fram, og oss er óhætt að segja það, að ef ltyrkjan er ekki reiðubúin til að vinna að því, að lyfta upp mannkyninu með öllum þeim, sem trúa á bróðurbandið manna í millum svo heitt að þeir vilji sýna það í verkinu— þá mun hún aldrei geta dregið til sín þess’ ar millíónir verkamanna, sem hún heflr hrundið frá sér með því, að láta s'g engu varða hróp þeirra um réttlæti. Eg hefi vakið athygli á þessum bletti á þessu göf- uga verki, ekki fyrir það að hann sýni and- ann í ritinu, heldur sökum þess, að hann snertir stórvægilegt lífsspursmál, sem menn aldrei geta lagt of mikla áherslu á. Vér getum aldrei sameinað hina siðferðislegu krafta og gert þá að ósigrandi her, með hinni göfugu “gullnu reglu” sem herópi, ef útiloka skal alla hina játningarlausu kristnu siðlxitamenn. Kreddutrúfræðin verður að útilokast ef' menn eiga að gera sér von um borgaralega framför. Meðal vina [minna. á ég menn, hina göfugustu, sem ég nokkru sinni hefi séð, karla og konur, sem eru fult eins heitir fyrir réttlætinu eins og próf. Herron. En þeir myndu útilokast úr flokkinum ef ein

x

Öldin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.