Öldin - 01.02.1894, Blaðsíða 16

Öldin - 01.02.1894, Blaðsíða 16
32 ÖLDIN. glampinn af eldum þeirra ekki sýndi þeim hvar óvinur var á gægjum. Eftir að hafa þannig farið í hring umhvcrfls búðir Svart- íætlinga, sá dyrfskufífl þetta loksins hvar hyrgi Brúns var, og var þá mikið fengið. Þá var næst að setja á sig hvar byrgið var, og svo að komast þangað inn. Hann var bæði hugrakkur og ráðagóður þessi erki- þjófur, og hann ásetti sér líka að láta alla Hrefningja-lndíána komast að skýlausum sannleika í því efni. Um miðnætti næstu nótt á eftir tók þjófurinn hest og reið beinustu leið til búða Svartfætlinga. Þegar hann nálgaðist þær svo, að hófdunur mundi mega heyra, fór hann af baki og slepti hestinum, en gekk og skreið á víxl alt að búðunum, þar sem alt var kyrt og hljótt, og eldar allir slokkn- aðir. En þá var eftir að komast inn um þrefaldan búða-hring, áður en hann kæmist að byrgi Brúns. Hundar eru æfinlega eins og sandur á sjávarströnd umhverfls og inn- anum búðir Indíána og af öllum hundum eru Indíánahundar minst gef'nir fyrir að taka með þögn á móti ókunnum manni. Það var þess vegna tvöfóld hætta fólgin 1 því að rjúfa þessa byrgja-skjaldborg, en ekki var vasklegt að renna þegar á hólm- inn var komið. Þjófurinn (ég sé eftir að mér gleymdist að spyrja um nafn hans) lagði í þessa ægilegu göngu, og komst á sínum tíma að byrgi Brúns, svo að enginn rakki hafði orðið var við hann, hvað þá heldur nokkur maður. Einsogmönnum er kunnugt, eru Indí- ána-tjöldin, eða byrgin, þannig gerð, að spírumar, sem skinnin cða birkibörkurinn eru þanin utan yfir, eru fléttaðar saman í toppinn, og er skilinn eftir þaklaus allbreið- ur blettur nærri toppnum fyrir reyk og gufu að ganga út uin, og er strax þar, við efri rönd húðanna, svo breitt bil milli spír- anna, að léttklæddur maður getur auðveld- lega farið þar út og inn. Þjófurinn sá fljótt, að ekki var um að gera að opna dymar eða að rista húðirnar, svo að varðmennirn- ir heyrðu ekki til hans. Litaðist hann nú um og sá hvar voru börar eða grindur, er Indíánar nota til aðflutninga í stað vagna. Hann tók börurnar og reisti upp með byrg- inu og fór svo upp eitir þeim. Það var glæfraför, en til mikils var að vinna; hann komst klakklaust upp á toppinn. Þar beygði hann sig niður og horf'ði inn og eft- ir litla stund sá hann, þó myrkt væri, hvar Brúnn stóð. Dróg hann þá sveðju beitta úr belti sínu og með liana í hendinni stökk hann inn á milli spíranna, og svo vel hafði hann mælt hæð og afstöðu, að hann lcom niðhr á bak Brúns, öldungiseinsogefhann hefði hlauþíð á bak honum á sléttri grund. Um leið og hann seig niður á bak gæðings- ins, rétti hann f'ram hendina, er hélt nökt- um hnífnum, og risti í einni svipan ólina, sem Brúnn var bundinn með, rétt framan við snoppuna. Jafnframt knúði hann síð- ur hans með hælunum, og Brúnn tókst á loft og hentist út að húðvegg byrgisins, er þjófurinn með einu höggi risti frá ofan- verðu og niður í gegn, en Brúnn hentist út um raufina. Hófadynurinn og skrjáfið í húðinni, er hnífurinn risti hana og hestur- inn stökk út, vakti bæði varðmennina og alla hundana. En þetta reið af svo fljótt, að varðmennimir höfðu ekki áttað sig, og voru ekki komnir á fætur til fulls, þegar þjófurinn mitt á milli búðanna æpti stríðsóp Hrefningja-Indíána. Það voða-óp va-kti sofendur í búðunum, og þrifu “stríðsmcnn” þá fljótt til vopna, en er út kom, var alt kyrt, ekkert að sjá og ekkert að heyra, nema hófadunur, sem scm óðum voru að deyja út í náttmyrkrinu og fjarlægðinni, og æðisgangur varðmannanna, sem nú voru komnir að raun um, að Brúnn var farinn. Þjófurinn hugdjarfi reið alt hvað af tók út í myrkrið, og hló dátt, er hann heyrði harmagrátinn í búðum Svartfætlinga, ó- stjórnleg óp karla og kvenna, skothríð og spangól hundanna, er gjarnan vildu “vera með” og taka þátt í sorg húsbændanna — alt blandaðist saman í eitt harmagráts-óp, en sakaði þjófinn ekki. ffrúnn var kominn langt út fyrir skotmark Svartfætlinga og þjófurinn haíinn á hæsta stig í metum Hrefningja, sem sniðugasti og djarfasti þjófurinn uppi á þeim tíma. Frá þessum tíma áttu Iírefningjar en ekki Svartfætl- ingar bezta hestinn á sléttlendinu í Vestur- Canada. Svartfætlingar báru harin sinn í hljóði eftir fyrstu skorpuna,en hugðu óspart til hefnda. JSFJSÍI: De. M. Halldóesson • Líkbrennsla. Maurarnir (úr L’Univers). — Hróp spámannsins til kyrkjunnar (þýtt úr Abena). — Djarfur þjófur (þýð- ing). Eitstjóri: Eggekt Jóhansson. Útgefandi: Hke. Pktg. & Publ. Co.

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.