Öldin - 01.09.1895, Síða 12

Öldin - 01.09.1895, Síða 12
140 ÖLDIN. íram öllum veggjum, voru allskyns auðæfl í röðum og í hlöðum og í haugum,—alt var þ;ir til er egyfskur þjóðhöfðingi vildi aiga og geyma. Þar voru svörtu ag bláu parr- uliur konungsins og þar voru lika kórón- urnar úr silki, gulli og gimsteinum. Þar voru pottar mai'gir og ker full allskonar ilmvatni og ilmolíum, til að smyrja hár og höfuð hins háa herra, — og trjákvoðan makalausa úr landinu Punt, er gefur frá sér himneskan iim þegar henni er brent. Þar voru krúsir gerðar úr agati og öðrum dýrum steini, fullar af dökku dufti fyrir augnabrýr og augnahár kvenna hans og rauðu dufti fyrir kinnar þeirra og varir. Þar voru hlaðar af fínasta vefnaði úr baðm- ull, ull og silki með bróderingum allskon- ar og glóandi af gull og silfurþráðum ofn- um inn í, og perlum og turquvises. I einu horninu var haugur af smáum, rauð- gulurn, glóandi Imetum, eins og væri þar bingur af sont-blómum. Þetta voru hrein og óblandin gullkorn úr leirnum á landinu Opbúr. I öðru horninu var hlaði af silfur og kopar, inótað í hellur á stærð við múr- steina. Talnabönd voru þar í hrúgum, með tölum á er báru alla hugsanlega liti, á allri stærð og með allskonar lögun. Bing- ir voi’u þar af skrautbúningi ýmsum úr brendum leir, með gleruðum myndum; ski'úðgrípir úr gleri, steini, tré og bronzi; smáir hringir með áföstum tordyflum ; ger- semar úr sardonikus-steini og töfrakryst- allar. I einum stað voru lirúgur af liöggn- um og óliöggnum Lapislazuli; á hinum staðnum kistur úr sedrusvið, kassar fullir með alabastur, jarðbikaðar leðurtöskurfull- ar af gull og gimsteinaskrúði,—rúbínum safírum, cmeröldum og allskonar dýrum steintegundum. Þar var slípað rafur í löngum röstum, og hellur miklar úr græn- um koparsteini með áfestum upphleyftum myndum af guðum og gyðjum, hiiggn- um úr gulum, rauðuin og grænum marm- ara, og hjá þeim peðmyndir (af þjónum konunganna eftir dauðann. í undirheimum) með höfuð gerð úr gulli, cn fætur ýmist úr rafur eða kórölluin. Þar voru og hrúgur af perlum úr liafinu Suph, á allri stærð og í öllum myndum, en hvítar sem nýfallinn snjór. Sumar þeirra voru þegar þræddar á bönd fyrir hálsmen og armbönd. Þar voru lilaðar af eboni og ilmandi sandalviði; pokar fullir af arabisku gúmmí; bögglar af strútsf'jöðrum, Ijónshúðum og leoparða- húðum, auk annara fleiri dýrafelda; lilað- ar af fílabcinstönnum; gljáandi og fáguð vopn úr bronzi, járni og tré, greyft gulli og demöntum. Þar voru og, röð á röð of- an, ker mikil og krúsir, málaðar mcð öll- um litum og fullar með dýrasta víni sem fáanlegt var í Egyltalandi. Eftir að þeir bræður höfðu svalað fýsn augna sinna, horft sem þeir höfðu lyst til á fjársjóðu konungsins, og ákveðið hvað helzt af þeim mundi bezt scljast á kaupmanna- torginu, fyltu þeir hylkin sem þeir höfðu tekið með sér, héldu út úr húsinu og létu steinana falla í sitt far svo vel, að engin vegsummerki urðu greind íremur en áður. Auk þessa hafði Setnan tekið alabasturkrús fulla af dýrindis ilmvatni, sem kouungs- dóttir átti, og bar krúsin nafn hennar, skráð með gullnu ietri. Ennfi-emur tók hann liálsmen úr stórum og kostmiklum perlum, handa konu sinni að bera í heima- húsum. Sameiginlega tóku þcir bræður með sér, sem aukagetu, krús mikla með dýru víni, er gct var sérstaklega handa Faraó úr einhverjum undra vínberjum ein- hverstaðar langt suður í landi svörtu mann- anna. Að þessum fyrsta fcng eyddutn fóru þeir í annað og í þriðja sinn inn í íjárhirzl- una. En gleði og allsnægtir var á býli þeirra. Einu sinni skeði það, cr Faraó sjálfur hafði gcngið í fjárhirzluna til að yfirlíta fjársjóð sinn, að hann saknaði ýmsra kjör- gripa. Vínker var horflð af þessum staðn- um og alabasturkrúsir af hinum. Liti hann lengra burtu, saknaði hann gull og silfurmola, töfrasteina og margra dýrmætra

x

Öldin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.