Kvennablaðið - 10.08.1911, Qupperneq 1
Kvennablaðið kott
ar 1 kr. 60 au. inn-
anlands, exlendifl 9
kr. [60cent vestan-
haffl) */» verðsinfl
borgiflt fyrfram, en
* /» fyrir 16. júli.
ionutalílflbib.
Uppsogn skrifleg,
bundin við ára-
mót, ógild nema
komin sé til út-
gei. fyrir 1. okt
og kaupandi hafl
borgað að fullu.
17. ár.
Reykjavík, 10. ágúst 1911.
M 7.
Kosningarnar í lmust.
Eins og öllum mun kunnugt, hefir Alþingi
verið rofið og kosningar eiga að fara fram
28. október. Svo verður aukaþing haldið næsta
vetur, og þá kemur stjórnarskrárbreytingin
frá í vetur til endilegrar atkvæðagreiðslu.
Allar þær konur, sem nokkuð hugsa um
kosningarrétt kvenna og hafa áhuga á þvi
máli, ættu nú að taka höndum saman til að
hjálpa til þess, að á þing yrðu þeir menn
kosnir, sem væru því fast fylgjandi, að eng-
inn munur yrði gerður á réttindum kvenna
og karla við stjórnarskrárbreytinguna, og að
þingmannaefnin annaölivort skuldbindu sig til
að framfylgja stjórnarskrárfrumvarpi því, sem
samþykt var í vetur, eða að minsta kosti að
þau atriði um pólitískan kosningarrétt og kjör-
gengi, sem snerta konur í henni yrðu látin
standa óbreytt.
Til þess að fá þessu framgengt, þurfa
konur að gangast fyrir að fá að vita afstöðu
þingmannaefnanna svo snemma, að nógur sé
tími fyrir þær að undirbúa sig undir að taka
þátt í kosningunum. Því þeir þingmenn, sem
ekki vilja veita konum pólitískt jafnrétti með
stjórnarskrárbreytingunni eiga að falla við
kosningarnar, og að því eiga konur að styðja
eftir mætti.
Kvenréttindafélögin, og öll þau önnur
kvenfélög, sem ant er um þetta mál, notið
tímann til haustsins til undirbúnings undir
það! í þingtíðindunum getið þér séð hver-
ir voru með oss eða móti. Takið afstöðu
eftir því. Ef þessi stjórnarskrá gengur óbreytt
fram, þá verður aftur leyst upp þing og kosið
að nýju eftir næsta þing, — og þá verðum
vér orðnar kjósendur. Það er það æskileg-
asta. Að því ættum vér að vinna. En fáist
því ekki framgengt, þá verðið þér að reyna
að fá þeim mö>nnum, komið^að, sem veita
konum jöfn pólitísk réttindi. Það er fyrsta
sporið. Þegar svo langt er komið, þá fyrst
getum við byrjað að sýna hverju við viljum
íá breytt, eða komið í framkvæmd.
íslenzkar konur! Látið sjá í sumar og
í haust, að þér vitið hvað þér viljið! Rekið
það ámæli af okkur, sem þau blöð og þeir
stjórnmálamenn halda fram, sem oss eru
mótdrægir, að fæstar af okkur konum óski
eftir meiri réttindum.
Um þingtímann í vetur voru nokkrir
menn hér í bænum að ráðgera að mynda
félag móti kosningarrétti kvenna. Þeir voru
að því komnir að mynda það, með konum
sínum, en hættu við þegar á átti að herða.
Tilgangurinn var að fá konur alment til að
skrifa undir áskorun til Alþingis um að veita
konum ekki kosningarrótt. Einn af þessum
mönnum sagði siðar, að liann væri reyndar
með jafnrétti kvenna, en það hefði verið svo
gaman að „narra þær“ til að skrifa undir
svona áskorun, og það hefði mátt fá fjölda
af undirskriftum.
Verið því á verði í haust og í vetur.
Margir af beztu karlmönnunum eru með mál-
um okkar. Fáið öll þingmannaefnin til að
láta uppi hvernig þeir snúi sér í þessu máli,
og styðjið þá kröftuglega, sem eru oss vin-
veittir. B. B.
Samskólar.
Greinar hafa undanfarið verið í sum-
um blöðunum, þar sem minst hefir verið
á mentun ungra stúlkna. Var það talið
mjög æskilegt, að fyrirkomulagi kvenna-
skólans í Reykjavik yrði breytt þannig, að
fullnaðarpróf frá honum jafngilti gagn-
fræðaskólaprófi, svo að stúlkur gætu geng-