Kvennablaðið - 31.03.1916, Blaðsíða 1

Kvennablaðið - 31.03.1916, Blaðsíða 1
Kvennablaðið kost* ar 1 kr. 50 au. inn* anlands, eilendie 3 kr. [86cent veetan- hafe) '/* ▼‘‘rðeins borgiet fyrfram, en 2/» fyrir 16. júli. 'UímtftHftbib. Uppsögn skriðeg bundin viÖ kra- m6t, 6gild nctna knmin sé til At* got. fyrir 1. okt og kaupandi hafl borgað að fullu. 22. ár. Reykjavik, 31. marz 1916. M 3. Tilkynning. Með því að allar prentsmiðjur hér í bænum hafa hækkað verð á allri prenlun um V* hluta og pappír sömuleiðis hefir hækkað í verði unt helming eða meira, þá neyðist eg til að hækka verð Kvenna- blaðsins úr kr. 1,50 upp í 2 krónur og auglýsingar að santa skapi, nema þær, sem staðið hafa árum saman óbreyttar í blaðinu. Rej'kjavík 31. marz 1916. Bríel Bjarnhéðinsdóttir. Árvekni. Margir halda því fram, og þar á meðal konurnar sjálfar, að nú megum vér leggja frá oss áhyggjurnar um jafnrétti vort eða jafnréttisleysi. Jafnréttið sé nú að fullu fengið. Um það þurfi ekki frekara að skifta sér. Með kosningarétti og kjörgengi fertugu kvennanna sé takmarkinu náð. Lengra verði aldrei komist. En þeir, sem þannig hugsa og tala, hafa aldrei skilið þessi inál. Kosningar- réttur og kjörgengi geta aldrei orðið ann- að en meðul. Þau eru einasta óbrigðula vopnið, sem beilt verður, til þess að ná öllum öðrum réttindum og nauðsynlegum áhrifum í öllum þeim málum, sem menn hafa áhuga fyrir, og fyrir oss konur, til þess að verða í raun og sannleika annar liluti þjóðarinnar, með jöfnum réttindum, ábyrgð og skyldum og hinn hlútinn, sem fram að þessum líma hefir ráðið lögun- um og — ólögunum, sem hefir skamtað oss réttindin úr linefa og skipað fyrir, hvar ver skyldum silja og standa, hverjar skyldur vorar ætlu að vera gagnvart þeim sjálfum — karlmönnunum, sem hingað til hafa einir í raun og veru verið þjóðin. Nú ber oss að sýna, til hvers vér vilj- um nota þessi vopn, og hvort vér kunn- um með þau að fara. Höfum vér nokkur sérstök áhugamál, sem vér viljum safna oss saman um og berjast fyrir að fá heppilega leyst, nokkrar hugsjónir landi og lýð til þroska og siðbóta, sem vér viljum koma í framkvæmd? Hvern þátt höfum vér hugsað oss að taka í þjóðfé- lagsstörfunum með karlmönnunum? Og getum vér vænzt þess, að þeir taki sam- vinnu vorri fúslega, að þeir álíti oss jafn- gildar og góðav og sig sjálfa, ef vér kynn- um að hafa þau skilyrði, sem hin ýmsu störf heimtuðu af þeim, sem ættu að leysa þau af hendi? Auðvitað verður ekki leyst úr öllum þess- um spurningum að svo stöddu. Reynslan verður að skera úr flestum þeirra. En þeirri spurningu, hvort.vér ættum nokkur sérstök áhugamál og hugsjónir, mætti ætla að unt væti að svara. Sumir álíta, að konur eigi aldrei að hafa nein áhugamál, sem snerti þær sjálf- ar sem kyn eða flokk. Það sé svartasta eigingirni. Öll þeirra áhugamál eigi að snúast um hina svokölluðu þjóð. En nú er á það að líta, að hingað til hefir sá hluti þjóðarinnar, sem ráðið hefir lögum, landsvenjum og framkvæmdum, skipað fyrir um alt vort daglega líf frá vöggunni til grafarinnar. Hann hefir skip- að fyrir um, hvernig vér skyldum alast upp, hvað vér skyldum læra, hver verk vér skyldum vinna, hvaða lögum vér

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.