Kvennablaðið - 31.03.1916, Blaðsíða 3

Kvennablaðið - 31.03.1916, Blaðsíða 3
K V Já N N A B L A Ð I Ð 19 komist í framkvæmd og verði meira en pappírslög ein. Og vér verðum að fá all- an mismun að lögum upphafinn á kjör- um og réttindum karla og kvenna. Vér verðum að brejda hugsunarhætti þeirra, sem enn þá vantar trúna á hæöleika vora, og þeirra, sem ekki geta hugsað sér jafn- réltinu milli karla og kvenna fylgt í fram- kvæmdinni, þótt þeir í orði kveðnu þykist viðurkenna það. Vér verðum að venja oss á að skoða oss sem jafningja karlmann- anna, keppa eftir að fá jafnmikla þekkingu og þeir hafa, og yör höfuð verða jafnfærar þeim í öllu því, sein vér tökum oss fyrir hendur. En vér verðum líka að kenna karl- mönnunum að skoða oss sem jafningja sina og viðurkenua það bæði í orði og á borði. Og það mun verða eröðasta við- fangsefnið. Menn geta talað fagurlega um frelsi og jafnrétti annara, þegar ekkert ber á milli. En komi samkepni eða eigin hags- munir til sögunnar, þá vill jafningja- viðurkenningin hverfa. Þess sjáum vér víða og daglega dæmi. T. d. er ekki langt síðan að góður sveitabóndi hneykslaðist á því i blaði, að kvénfélagi (ekki sérstakri konu) var veittur ferðastyrkur handa full- trúa, til að mæta fyrir það og landið á alþjóðafundi. En — sami maður heör ekkert hneykslast á þvi, að mörg karl- mannafélög hafa margoft fengið samskon- ar styrki við lík tækifæri. Hann hneyksl- ast líka á því, að íslenzk stúlka, sem er stúdent og slundar háskólanám erlendis, sein hér er ekki unt að stunda, skuli vera veittur námsstyrkur héðan, og kallar slíkt ölmusu. Spyr, hvort það sé vegna starf- semi móður hennar »eða af því að kven- fólkið eigi oð fá alt sem það heimti«. En hann hneykslast ekkert á að 4 karlmenn, sem stunda nám erlendis, fá einnig náins- styrk, og sumir þeirra miklu hærri en stúlk- an, og hafa þó 2 þeirra haft »Garðstyrk« að fullu í 4 ár eða 828 krónur árlega, en stúlkan ekki, auk íjölda annara manna, sem fá alls konar styrki. Þetta sýnir, hvað karlmenn eiga erött með að þola jafnréttið í framkvæmdinni. Fyrir þessum manni gat ekki vakað nein persónuleg óvild til þessara kvenna. En hann gat ómögulega þolað né skilið, að konur fengju ferða- styrk eða námsstyrk, þótt margir tugir karlmanna fái alls konar styrki á hverjum einustu fjárlögum, en nær því engin kona, að undanteknum embætlismannaekkjum og einstöku ekkjum öeiri, og þá mjög af skornum skamti. Urþvíminst er á fjárlögin, má geta þess, að á þeim er meðal annars veiltur 4000 kr. styrkur hvort fjárhagsárið lianda »ung- um efnilegum mönnum tii verklegs náms erlendis«. Samkvæmt íslenzkri málvenju eru konur líka menn, og gætu því »efni- legir ungir kvenmenn sótt um styrk af þessu fé til verklegs náms erlendis«. Ekki veitti þeim síður af styrknum. Fróðlegt væri að vita, hverju landsstjórnin svaraði slíkri umsókn. Að öllu þessu athuguðu er það auðsætt, að konurnar verða að hafa gát á viðburð- um og málum, fylgjast með í öllu sem góðir borgarar, aöa sjálfum sér þeirrar þékkingar og þroska, sem þær enn þá vantar svo mjög, til þess að geta staðist í samkepninni og lífsbaráttunni bæði fyrir sér og börnum sínum, og til þess að verða færar um að leysa uppeldisstörön vel af hendi, sem þær hafa tekið já sig með móð- urskyldunni, og geta lagt sinn ríöega skerf þjóðinni í heild sinni til menningar og heilla. Og fyrsta skilyrði til þessa er ár- vekni í öllurn greinum. Friðarleiðangur Ford's. Eins og kunnugt er oröið, þá sneri Ford aft- ur heim til Ameríku. Fór ekki lengra en til Kristjaníu og Kaupmannahafnar. En friðar- postulana lét hann þó ekki allslaúsa eftir, þvi að sögn gaf hann þeim heila miljón tif friðar- starfseminnar. Foringi ferðarinnar mun, eítir heimför Fords, vera hin ungverska, alþekta kven- réttindakona, Rosika Schwimmer. Frá Kaup- mannahöfn var ferðinni heitið til Stokkhóims og þaðan til Haag í Hollandi, þar sem friðar-

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.