Kvennablaðið - 31.03.1916, Qupperneq 7

Kvennablaðið - 31.03.1916, Qupperneq 7
£VENNABLAÐIÐ 23 leysi, skilningsleysi og gáleysi i heila nokk- urrar ungrar stúlku, að hún hafi einurð á að segja, pótt ekki vœri nema i ertni, að hún vildi ekki »kvenréttindi« — vildi ekki að konur væru frjálsar, gætu notið lífsins og allra sinna mörgu og miklu hæfileika út í sólskini æsknnnar, og framfarastarfsemi fullorðins áranna. Mundu pær heldur kjósa gömlu reykjarmoll- una við hlóðirnar og grútarlampana? Eru skól- arnir og öll sú pekking, sem nútíðin býður peim, einskisvirði? Áður máttu stújkur tæpast læra að draga til stafs, nema pær stælust til pess. Engan aðgang að pekkingu, mentun eða atvinnu, allar hurðir harðlæstar, sem pangað lágu. Nei, stúlkur mínar! Njótið pið lífsins, notið pið límann til að afla ykkur pekkingar í öll- um efnum og kraftana ykkar, sem ungir eru og óslitnir, til að fullkomna verk formæðra ykkar, sem ýttu upp hurðinni og slungu út hendinni um fyrstu glufuna. Komið pið hurð- inni upp að stafnum og vinnið ykkur fullkomið jafnrétti í öliu, ásamt fullkomnum proska til pess að standa vel í hverri slöðu, sem pið takið að ykkur. Eignist liugsjónir, prek og von- gleði óspiltrar æsku, og pakkið pið svo guði fyrir, að pið lifið nú, pegar alt er gert til að búa í haginn fvrir ykkur. En verið aldrei svo gálausar að segja, að pið viljið eklci full rétt- indi handa konum. Úr bænum. Siðasta fyrirlestur Kvenréttindafélags ísfands , hélt Porst. Porsteinsson hagstofustjóri, um líf- tryggingar og slysatryggingar. Skýrði hann frá pví hvernig víðast væri byrj- að á sjúkrasjóðunum, cn menn fetuðu sig svo upp eftir, tækju ellistyrktarsjóði og öryrkja- sjóði pegar lengra væri komið, auk ýmsra slysatrygginga. Að lokum gaf liann yfirlit yfir hvað hér hefði verið gert í pessu efni. Væri pað mjög lítið, í samanburði við önnur lönd. Fyrst hefði verið byrjað á ellistyrktarsjóðunum, (sem Porlákur heitinn í Fífuhvammi átti frumkvæðið að), pá hefði komið sjúkrasamlögin með sjúkrasamlagi Reykjavikur, sem hefði byrjað. Á eftir liefði svo komið sjúkrasamlag Hafnarfjarðar, Akur- eyrar, Sauðárkróks og Seyðisfjarðar. Væru pau sniðin eftir dönskum sjúkrasamlögum, sem mjög væru orðin úlbreidd og pættu mjög góð. Að síðustu væri hér að myndast slysatrygging með skyldulíftryggingu sjómanna. Fyrirlestur pessi var hinn fróðlegasti, og skýrt og skipulcga saminn. Lýsti ræðumaður hinum mörgu og víðtæku tilraunum framfarapjóðanna, til að koma i veg f^'rir pað, að menn pyrftu að verða annara liandbendi pótt peir mistu heifsu. um lengri eða skemri tíma, með líf og slysatrygg- ingum, ellistyrkjum og öryrkjatryggingum. Enn- fremur gat hann um mæðratryggingar, sem hann nefndi barnsfarartryggingar, sem veita sængurkonum giftum og ógiftum, sem trygt hafa lífsitt, eða menn peirra, rétttil að fá vissan styrk og dagpeninga í Svikur, venjulega 2 vikur fyrir og 8 eftir fæðinguna, auk læknishjálpar o. fl. Hefir stundum verið minst í Kvennablaðinu, á lögin um mæðratryggingu noskra kvenna frá 1914. Verkamannatryggingunum ,lýsti ræðumaður nákvæmlega. Væru pær líftryggingar, slysa, atvinnu, öryrkja og ellitryggingar. Eru pað aðallega atvinnuveitendur, sem verða að tryggja verkamenn sína að meiru eða minna leyti. Öf- ugt-við pað, sem liér er með sjómennina, par sem útvegsmennirnir borga aðeins lítinn hluta af tryggingunni. Vonandi er að fyrirlestur pessi komi út í lieild sem fyrst. Ættu menn pá að kaupa hann alment og hefðu konur ekki síður gagn af pvi en karlmenn, að kynna sér petta afarmerkilega fyrirkomulag stórpjóðanna á aipýðutryggingum sinum, sem pær verja slíkum geysi fjárupp- hæðum til, og álíta pó að peir græði við pað i aukinni framleiðslu og starfskröftum. Eldhússbálkur. Fisksúpa. Höfuðið, sporðurinn og uggarnir af stórum fiski er hreinsað mjög vandfega, og pegar pað er alt orðið vel hreint, pá er pað soðið í hæfilega miklu vatni, með ofurlitlu salti, bindi af súpujurtum, rótum og einum lauk. Regar fiskurinn hefir soðið eina klukkustund, og allur kraftur er soðinn úr honum, pá er bindið af súpujurtunum tekið upp ásamt rótunum og soðið svo síað gegnum fínt sigti. Síðan er of- urlítið smjör brætt í potti yfir eldi, og upp í pað hrærðar tvær matskeiðar af hveiti, dálítið af karry, eftir bragði, og ofurlítið papríka. Síð- an er soðið hrært saman við og suða látin komast vel upp á öllu saman, og svo er súpan til búin að berast á borð. Ræturnar eru látn- ar í hana og soðnar sveskjur ef vill, en er ó- parfi, og svo er súpan etin með soðnum rís- grjónum. Vilji menn hafa súpuna reglulega sterka og nærandi, pá verður að sjóða mikinn fisk. Er pá best að taka frá bestu stykk- in til næsta dags, en sjóða punnildin og aftur-

x

Kvennablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.