Dagskrá - 05.10.1897, Blaðsíða 1
Verö árgangs lyrir cldri k*i:|k-
endur innanlnnds.
4 krónur.
Kemtli* út hvern vírkan dag.
Verð ársfjórðungs (minnst
75 arkir) kr. ! ,50. í
R.vík mánaðarl. kr. 0,50.
— Arsfjórð. erlendis 2,50.
11,74-75.
Reykjavík, þríðjudaginn 5. oktober.
i 897.
HðF" Vegna póstskipsins hefur verið
beðið með útkornu þessara töiubl. til þessa.
Brot „Dagskrár“
verður stækkað frá byrjun þessa ársfjórð-
fjórðungs.
Veicð iaið §ama tiltölulega (4 aurar
fyrir helmingi stærra brot, áður 2 aurar
fyrir hvert tölubl.).
Um leið og brotið verður stækkað fækkar tölublöðum
— en verðið reiknast eptir sama mælikvarða sem áður.
Samkvæmt fyri5! anglýsirigii.m
kostaði ársfjórðungurinn I. júlí til i. október þ. á. kr.
1,50 ■— og hefur „Dagskrá" á þessum ársfjórðungi
verið stærri en „ísafold", „Fjallkonan" og „ísland" öll til
samans. — Vjer vonum því að menn greiði þennan
ársfjórðung skilvíslega.
'Ú'tsending „öagsStrár4,4 var breytt ein-
ungis til hægðarauka fyrir útsölumenn, en að öðru leyti
var engin breyting gjörð á innköllun fyrir blaðið, eða
°/o gjaldi til útsölumanna.
Póststjórnin tekur ekki á móti borgunum,
þegar blaðið er ekki sent kaupendum gegn um póst-
stjórnina, heldur beina leið, — Útsölumenn og kaup-
endur verða því að senda borgunina beina leið til
blaðsins.
Allir eru beðnir að borga fyrir þennan
ársfjórðung það sem á var skilið, 1 kr. 50 aura.
Gjalddagi fyrir hina aðra ársfjórgunga verður síðar
auglýstur.
Þeir sem eiga ógoldinn fyrri árgang
blaðsins eru beðnir að senda borgunina
með næsta pósti.
Útlendar frjettir.
Friðarsamningurinn milli Tyrkja og Grikkja var
undirskrifaður 18. f. m. í Miklagarði. Grikkir borga
4 miljónir tyrkneskra punda í heskostnað. Nefnd settu
stórveldin í Aþenu til að sja um greiðsluna — án þess
að eldri skuldheimtumenn Grikkja biði tjón af. — Tyrk-
ir víkja úr Þessalíu mánuði eptir að Grikkir hafa tryggt
nefndinni að borgun geti farið fram.
Grikkir una friðarskilmálum þessum stórilla.
Járnbrautarslys hafa orðið á nokkrum stöðum bæði
í Danmörku og víðar; nokkrir menn látið lífið og aðr-
ir meiðst meira eða minna.
Á Indlandi heldur óeirðum áfram; smáupphlaup
víðsvegar f landinu og bíða Englcndingar töluvert tjón af.
A Kúba höfðu upphiaupsmenn (eins og áður var frá
skýrtíDagskrá) ráðist á bæinn Viktoría delaTunasog skotið
á hann með sprengikúlum. Varðlið var 300 manns í bæn-
um, og rak upphlaupsmennina af höndurn sjer með hjálp
bæjarbúa; ljetu þar líf sitt 86 af upphlaupsmönnunum.
Skömmu síðar hófust þeir handa af nýju og rjeðu
aptur á sama bæinn; varð þeim þá svo vel ágengt að
þeir einir rjeðu þar lögum og lofum. Af þessu urðu
miklar umræður og megnasta óánægja heinra á Spáni,
en Weyler hershöfðingja legið þungt á hálsi fyrir ó-
dugnað og þykir mönnum súrt 1 broti að missa bæ
þcnna. Stjórnin hefur ákveðið að senda nýjan liðsafla til
Kúba og bæla niður allar óeirðir ef hægt er. Maremez
Campos heldur því fast fram að hyggilegra sje að koma
á friðarsamningum við íbúana á Kúba, en stjórnin • í
Madrid lætur það eins og vind um eyrun þjóta; hún
vill ckkert annað hcyra, en endalaust stríð svo lengi,
sem nokkur sál er á lífi af hernum og nokkur eyrir fæst
til þess að haldið verði áfram.
Eldsvoði mikill varð í Alaborg 13. þ. m. kom þar
upp eldur í gamalli og r.iikilli tóbaksverksmiðju er brann
til kaldra kola. Þetta var einhver stærsta tóbaksverk-
smiðja í Danmörku; hún var byggð árið 1787 og unnu
í henni nálægt 600 rnanns, þó bjuggu þar ekki nema
tvö hundruð.
Húsið var tryggt fyrir 130,000 kr., vjelarnar fyrir
114,000 og vörurnar fyrir 150,000 kr.
Verkamannasamtök í Ameríku. Nokkrir verka-
menn, sem gjört höfðu samtök sín á meðal í þeim til-
gangi að fá hækkuð laun sín, fóru 11. f. tn. frá nám-
unni við Coloraine til Lattemer til þess að fá nienn þar