Lögberg-Heimskringla - 12.05.1960, Side 8

Lögberg-Heimskringla - 12.05.1960, Side 8
8 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 12. MAÍ 1960 Úr borg og byggð Frú Helga (Björnson) Brog- ger frá Minneapolis kom hing- að norður í fyrri viku til að vera viðstödd útför móður- bróður síns að Lundar, Jóns J. Hördals. ☆ Mrs. B. S. Benson fór á föstudagskvöldið vestur til Vancouver í mánaðar heim- sókn til dóttur sinnar Normu og tengdasonar, Mr. og Mrs. Harold Sigurdson og fjöl- skyldu þeirra. ☆ Theodore (Ted) Martin Johnson, 39 ára að aldri, and- aðist í Vancouver 2. maí. Hann átti fyrrum heima á Gimli og útförin var gerð frá lútersku kirkjunni á Gimli á mánudag- inn, 9. maí. ☆ Bandalag lúterskra kvenna heldur ársþing sitt að Lundar, Man. dagana 27.—28. maí og fram að hádegi sunnudaginn 29. maí. Nánar auglýst síðar. ☆ Dánarfregnir Jón Jónsson HördaL 89 ára, lézt að Lundar miðvikudag- inn 4. maí. Hann var sonur Jóns Sveinbjarnarsonar frá Hóli í Hörðudal í Dalasýslu og Halldóru konu hans Bald- vinsdóttur frá Víðidal í Húna- vatnssýslu. Á yngri árum fór Jón til Klondyke að leita gulls; hann var og þjóðkunn- ur kappgöngumaður og setti met í Winnipeg oftar en einu sinni í þeirri íþrótt. (Sjá frá- sögn Þ. Þ. Þ. á öðrum stað í blaðinu. Jón var 17 ára, þegar hann háði þá kappgöngu.) Árið 1902 nam Jón land ná- lægt Lundar og kvæntist Kristínu dóttur Jóns Sigfús- sonar, fyrsta landnámsmanns byggðarinnar, og er hún látin fyrir mörgum árum. Hann lifa fjórir synir, Sigfús og Óskar að Lundar, Valdimar og Skúli að Lynn Lake; þrjár dætur, Mrs. Stewart Gate- house, Mrs. Trausti Daniel- son og Mrs. JoTin Hallson, all- ar búsettar í Winnipeg. Út- förin var gerð frá lútersku kirkjunni að Lundar á laug- ardaginn; séra Jón Bjarman jarðsöng. ☆ Guðbjörg Kristjana Leeuw andaðist eftir langt sjúkdóms- stríð í Pittsburg, Kaliforníu laugardaginn 7. maí. Hún var fædd í Mikley í ágúst 1900, d ó 11 i r landnámshjónanna Kristmundar Jónssonar og Kristjönu Thorsteinsdóttur, er fluttist ' vestur um haf 1893 og námu land að Kirkju- bóli í Mikley. Hana lifa eigin- maður hennar, Hermann; tveir bræður, Sigurður í Sel- kirk og Valdimar Johnson að Hecla, og systir hennar, Kristín (Mrs. Gunnar Tómas- son) að Hecla. Kveðjuathöfnin fór fram í Pittsburg á þriðjudaginn. — Bróðursonur hennar, Kris Johnson, fór vestur til að dvelja með þeim hjónunum síðustu stundirnar. Guðmundur Pétur Goodman Þessi vinsæli og vel metni maður lézt að heimili sínu, 887 Grosvenor Avenue í Win- nipeg 7. apríl s. 1., eftir all- langa vanheilsu. Hann var fæddur (21. sept. 1896) og uppalinn í Winnipeg, en ætt- aður frá Hvalfjarðarströnd- inni í Borgarfirði. Foreldrar hans voru Kristinn Guð- mundsson, Ólafssonar frá Kalastaðakoti, og Sigurbjörg Jónsdóttir, Sigurðssonar frá Ferstiklu. I fyrri heimsstyrj- öldinni varði hann fjórum ár- um til herþjónustu; hafðist hann þá lengst við í Frakk- landi og tók þátt í ýmsum stórorustum þar. Hann komst aftur heim ósærður og heill heilsu um sumarið 1919 og fékk þá strax atvinnu sem rit- ari hjá Canadian National járnbrautarfélaginu. V a r hann í þjónustu þessa félags alla ævi síðan og hafði þar ýmsar ábyrgðarmiklar stöður á hendi. Guðmundur var vænn að vallarsýn og glæsimenni hið mesta. Á yngri árum stund- aði hann íþróttir af kappi, einkum knattspyrnu og „curl- ing“. Hann vann mikið að fé- lagsmálum. Hann var alla ævi meðlimur Fyrstu lútersku kirkju, um nokkurt skeið var hann í safnaðarnefnd; einnig var hann meðlimur eldra söngflokks safnaðarins um langt árabil. Var hann mjög skyldurækinn í öllu, sem hann tók sér fyrir hendur. Hann lætur eftir sig ekkju sína, Jóhönnu Bergþóru, eina dóttur, Mrs. K. Honey, tvo sonu, Roger og Gilbert, tvær systur, Mrs. D. D. Nimmons og Mrs. A. J. Bonnar, og tvo bræður, Gísla og Kjartan, og sjö barnabörn. Jarðarför Guðmundar fór fram frá Fyrstu lútersku kirkju mánudaginn 11. apríl og var mjög fjölmenn. Sókn- arpresturinn, Dr. Valdimar J. Eylands, flutti kveðjumál. Veitið athygli auglýsingu Þjóðræknisfélags Íslendinga á íslandi. Vestur- íslendingar, sem heimsótt hafa ættjörðina, hafa undan- tekningarlaust lofað þær ást- úðlegu móttökur, sem þeir hafa átt þar að fagna, og hef- ir Gestamót Þjóðræknisfé- lagsins átt mikinn þátt í að gera heimsóknir þeirra ánægjulegar og eftirminni- legar. Hér fer á eftir kafli úr bréfi til blaðsins: „Umrætt Gestamót okkar er nú að verða fastur liður í MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. Heimili 686 Banning Street. Sími SUnset 3-0744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku kl. 11 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Allir ævinlega velkomnir. starfinu. Þau hafa undan- tekningalaust öll tekizt vel. Venjulega eru um 25 Vestur- íslendingar viðstaddir. Það kostar alltaf töluverða fyrir- höfn að hafa upp á þeim, við vonum að meðfylgjandi aug- lýsing komi að notum í því sambandi. Kærar kveðjur, Þjóðræknisfélag fslendinga Sig. Sigurgeirsson ROSE THEATRE SARGENT ot ARLINGTON CHANGE OF PROGRAM EVERY FOUR DAYS Foto-Nite Every Tuesdoy and Wednesday SPECIAL CHILDREN'S MATINEE Every Saturday —AIR CONDITIONED— Good Reading for the Whole Family •News • Facts • Family Features Th» Chrhtion Science Monitor One Norwoy St., Bo»ton 15, Moss. Send your newspoper for the tima checked. Enclosed flnd my check or money order. I year $20 □ 6 monthi $10 □ 3 months $5 □ Name Address Clty Zone Stote PBJ» GOOD GOING May 26. 27, 28 RETURN LIMIT — 25 DAYS Return Fares From WINNIPEG In Coaches Only: To Vancouver You save To Victoria You save To Nanaimo You save *In Tourist Sleepers: To Vancouver $66.15 You save $21.25 To Victoria ........$72.10 You save .......$15.30 To Nanaimo $68.65 You save $18.75 •On payment of tourist berth fare. Watch for Bargain Fares effeciive June 23, 24, 25 Train Travel is Low-Cost Travel Full information from your Agent $56.80 $21.50 $56.80 $21.50 $56.80 $21.50 H E R E N O W ! Toast Master MIGHTY FINE BREAD! At Your Grocers J. S. FORREST, J. WALTON, Monoger Soles Mgr. Phone SUnief 3-7144 (openhagen Heimsins bezta munntóbak Til íslandsíara sumarið 1960 Gestamót Þjóðræknisfélags ís- lendinga verður í Tjarnarcafé í Reykjavík sunnudagskvöldið 19. júní og hefst kl. 20.30. Öllum Vestur-íslendingum í heimsókn á fslandi er hér með sérstaklega b o ð i ð . Æskilegt væri að þeir gerðu vart við sig við komuna til landsins í síma 34502 eða í pósthólf 1121. — Hittumst heil. Reykjavík, 2. maí 1960 ÞJÓÐRÆKNISFÉLAG ÍSLENDINGA Sjötugasta og fimmta afmælisþing Hins er.-lúterska kirkjufélags fslendinga í Vesturheimi verður haldið í Argyle prestakalli dagana 5.—8. júní næstkomandi. SUNNUDAGINN 5, JÚNÍ: Háiíðarguðsþjónusla í Grundarkirkju kl. 2.30 e. h. (C.S.T.) Herra Sigurbjörn Einarsson biskup Islands prédikar. Hátíðarguðsþjónusta á ensku kl. 7.30 í Grundarkirkju. Dr. Franklin Clark Fry, forseti lúterska Heimssam- bandsins og forseti Sameinuðu lútersku kirkjunnar í Ameríku flytur prédikun. Þá fer einnig fram þing- setning. MÁNUDAGINN 6. JÚNÍ: í kirkjunni í Glenboro fyrir hádegi: Altarisganga og skýrslur embættismanna. (Starfsfundir á mánudag, þriðjudag og árdegis á mið- vikudag á sama stað.) MANUDAGSKVÖLD, kl. 8 e. h.: Samkoma í Brúarkirkju. Samkomustjóri: Séra V. J. Eylands. Ræðumenn: Séra K. K. ólafsson Séra Harold Sigmar. Sérstakir hátíðasöngvar verða sungnir. ÞRIÐJUDAGSKVÖLD, kl. 8 e. h. í kirkjunni í Baldur: Ræðumenn: Séra Frank Madsen, Detroit, Mich. fulltrúi U.L.C.A. Séra Eric H. Sigmar, forseti kirkjufélagsins. Samkomustjóri: Séra Donald Olsen söknarprestur í Argyle. Hátíðasöngvar verða sungnir.

x

Lögberg-Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.