Lögberg-Heimskringla - 26.05.1960, Síða 4

Lögberg-Heimskringla - 26.05.1960, Síða 4
4 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 26. MAI 1960 Lögberg-Heimskringla Published every Thursday by NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD. Printed by WALLINGFORD PRESS LTD. 303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Man. Editor: INGIBJÖRG JÓNSSON EDITORIAL BOARD Winnipeg: Dr. P. H. T. Thorlakson, chairman, Próf. Haraldur Bessason, vice-chairman, Mrs. Ingibjörg Jónsson, sec’y, Mr. Stefán Einarsson, Dr.. Valdimar J. Eylands, Miss Caroline Gunnarsson, Prof. Thorvaldur Johnson, Mr. Jón K. Laxdal, Prof. Tryggvi J. Oleson, Rev. Philip M. Pétursson. Grand Forks: Dr. Richard Beck Minneapolis: Mr. Valdimar Björnson Monireal: Prof. Áskell Löve Subscriplion $6.00 per year—payable in advance. TELEPHONE WH. 3-9931 Authorlzed as Second Class Ma|l, Post Offlce Department. Ottawa, DR. RICHARD BECK: Aldarafmæli Káins Þann 7. apríl síðastliðinn voru 100 ár liðin frá fæðingu hins vinsæla og sérstæða kímniskálds vor Vestur-íslendinga, Kristjáns N. Júlíusar (K.N.). Ekki hefir þess afmælis, mér vitanlega, enn verið minnzt opinberlega hér vestan hafsins, þó að ýmsir í vorum hópi hafi vafalaust munað daginn og hugsað hlýtt til hins mikla gleðigjafa, sem jós óspart á báðar hendur af brunni glettni- og gamanyrða sinna áratugum saman. Efalaust verður aldarafmælis hans þó minnzt að verðugu áður en árið er úti, og hefi ég hugsað mér að hlut- ast til um, að það verði gert meðal annars með minningar- grein í Tímariíi Þjóðræknisfélagsins, og enn fremur þegar vikið að því í samtali við íslenzka sóknarprestinn í Norður- Dakota, að þar ætti að minnast hans á sæmandi hátt ein- hvern tíma á árinu, t. d. á samkomu, sem þjóðræknisdelidin þar stæði að, en því hefi ég ekki enn hreyft við deildarfólk. Hitt er alkunna, og kemur vel fram í kveðskap Káins, hvað honum var Dakotabyggðin kær. En skáldsins hefir þegar verið minnzt vel og virðulega í dagblöðum og vikublöðum heima á ættjörðinni, og með sér- stakri dagskrá í íslenzka Ríkisútvarpinu, þar sem sér Benja- mín Kristjánsson flutti erindi um skáldið og lesið var upp úr kvæðum hans. Þessa ræktarsemi við minningu hans met- um vér íslendingar vestan hafs mikils og þökkum af heilum huga, því að með henni er oss einnig óbeinlínis sómi sýndur. Þessari smágrein er það eitt ætlað að minna á aldar- afmæli Káins, en ég vonast til að fá tækifæri til að gera því efni betri skil síðar. Að þessu sinni vil ég aðens taka upp nokkur orð úr inngangi mínum að heildarútgáfu verka skálds- ins, Kviðlingar og kvæði (Bókfellsútgáfan, Reykjavík, 1945): I meira en hálfa öld vann K.N. það þarfa verk meðal landa sinna vestan hafs að koma þeim til að hlæja, opnaði þeim víðlendan og fjölskrúðugan hlátraheim, með því að láta þá sjá aðra, og horfast í augu við sjálfa sig, í spegli kímni hans. Mun það ekki ofmælt, að K.N. hafi jafnvel komið út á fólki tárum með hláturvekjandi vísum sínum og ljóðum, svo fimum og tónvissum fingrum strauk hann kímnistreng skáld- hörpunnar. Þessa var hann sér einnig meðvitandi, eins og segir í einni vísu hans: Stundum var ég seinn til svars og seinn á fæti. En það voru engin látalæti, að láta fólkið gráta af kæti. En ekki var nóg með það, að K.N. skemmti löndum sín- um í Vesturálfu með kímnikveðskap sínum og opnaði jafn- framt augu þeirra fyrir mörgu, sem miður fór í andlegu lífi þeirra og háttum. Léttvængjaðir kviðlingar hans flugu einnig austur yfir íslandsála og út um allar íslandsbyggðir, og öfluðu honum þar aðdáenda og vina. Þetta hefir nú eftirminnilega komið á daginn í minn- ingargreinum í íslenzkum blöðum og útvarpsdagskránni í tilefni af aldarafmæli hans. Óhætt mun því að fullyrða, að K.N. heldur áfram að lifa í vísum sínum í minni og á vörum landa sinna um ókomin ár, og hann á sinn fasta sess í ís- lenzkum bókmenntum, enda eru bæði vísur og kvæði eftir hann tekin upp í hið mikla úrval íslenzkrar ljóðagerðar að fornu og nýju, íslands þúsund ár (Helgafell, Reykjavík, 1947), en Arnór Sigurjónsson rithöfundur sá um val kvæðanna frá 19. öld. Og þegar ég nú horfi um öxl af sjónarhóli aldarafmælis Káins vinar míns og minnist ánægjustunda með honum, er leiðir lágu saman, koma mér í hug þessar vísur úr snjöllu kvæði Guttorms J. Guttormssonar til þess skáldbróður síns, sem eru ágæt lýsing á honum: DR. THORVALDUR JOHNSON: Indíánar — Hvaðan og hvenær komu þeir? Allt frá því að Evrópumenn fyrst komu til Ameríku hafa Indíánarnir verið þeim ráð- gáta. Kólumbus hugði fyrst, að hann hefði fundið Ind- land, og þannig er nafnið á þjóðflokknum til komið. Brátt varð það deginum ljósara, að hann fór hér villur vegarins. Indíánar voru Indverjum ólík- ir, bæði í útliti og um menn- ingu. Þegar þeir voru bornir saman við aðra kynflokka, kom í ljós, að um líkams- byggingu svipaði þeim í mörgu til Mongóla, sem byggja Norðaustur - Asíu. Smám saman tóku menn að hallast að þeirri skoðun, að þeir væru brot af þeim kyn- flokki. En ef þessi kenning hafði við rök að styðjast, hvernig átti þá að skýra flutn- ing Indíána til þessarar álfu? Menning þeirra, sérstaklega þar sem hún var á hæsta stigi eins og í Mexíkó og Peru, var svo frábrugðin menningu I Kínverja og Japana, að hún virtist vera sjálfstæð og upp- runalega í Ameríku. Ef hún hefir átt frumrætur sínar í þessari álfu, hefir hún þurft mörg þúsund ár til þess að ná fullum þroska. En þegar fornleifafræðingar tóku að rannsaka jarðneskar leifar Indíána, var hvergi hægt að sanna, að þeir hefðu dvalizt í þessari álfu lengur en í nokkur þúsund ár. Fyrir þrjá- tíu árum var það algeng skoð- un meðal fornleifafræðinga, að Indíánar hefðu komið frá Asíu yfir Bering-sundið við lok ísaldar, það er að segja fyrir um það bil sex eða átta þúsund árum. Nútímarannsóknir h a f a breytt hugmyndum fornleifa- fræðinga talsvert, eins og sjá má af ritgerðum, sem komið hafa út á síðastliðnu ári í vís- idaritinu Science. Ýmsar or- sakir liggja til þessara skoð- anabreytinga, og má þar helzt telja þá vísindalegu aðferð að telja aldur plöntu- eða dýra- leifa með „radiocarbon“ að- ferðinni. Lifandi verur hafa alltaf ákveðið magn kolefnis (carbon). Efni þessu er þann- ig farið, að það minnkar smám saman í réttu hlutfalli við tímalengd, og í leifum, sem eru meira en 30,000 ára gaml- ar, er lítið sem ekkert kol- efni. Aldur yngri leifa, svo sem beina, trjátegunda o. s. frv. má mæla og ákvarða með talsverðri nákvæmni. í hell- Fyndna vísu fram hann bar. Féll mér vel sá lestur. Inni hjá mér aldrei var ánægjulegri gestur. Er sá karl í engu veill. Ekkert hylja klæðin. Þar er merkur, mætur, heill maður á þak við kvæðin. um og fornum tjaldstöðum finnast oft leifar, sem rann- saka má með þessari aðferð. Slíkar rannsóknir hafa sýnt, að menn bjuggu á sléttunum fyrir austan Klettafjöllin í Bandríkjunum fyrir a. m. k. 12,000 árum. Leifar þessar sanna enn. fremur, að hér var á ferðinni þjóðflokkur, sem ekki ,var ólíkur nútíma Indí- ánum. Þeir voru veiðimenn, sem veiddu vísunda (bison), mammut dýr (mammoth og mostodon), úlfalda og hesta. Öll þessi dýr nema vísundar voru liðin undir lok löngu áð- I ur en hvítir menn komu til þessa meginlands. Leifar veiðidýra, sem fund- izt hafa í sambandi við þess- ar rannsóknir, gefa nokkra hugmynd um veðurfar á um- ræddum tíma. Úlfaldar og hestar þrífast aðallega á slétt- um, en mammut-dýrið, sem er eins konar risavaxinn fíll, hafðist við í nágrenni við jökla. Það er sýnilegt, að þessi þjóðflokkur var uppi á seinni hluta ísaldar, þegar jökla- breiðan var að rýrna að sunn- an. Við suðurbrún jöklanna var mikið dýralíf, sem Indíán- ar færðu sér í nyt. En ef Indíánar voru hér á seinni hluta ísaldarinnar, þá vaknar sú spurning, hvenær þeir hafi komið til þessarar álfu. Voru þeir hér áður en ísöldin byrjaði? Það virðist mjög ólíklegt. Að áliti jarð- fræðinga hófst ísöldin fyrir meira en 50,000 árum, en allar mannaminjar, sem fundizt hafa í Norður- og Suður- Ameríku, eru miklu yngri. Það virðist óhjákvæmilegt, að þeir hafi komizt hingap, meðan ísöldin stóð yfir. Víð fyrstu athugun er það þó mjög ólíklegt. Þegar ísöldin stóð sem hæst fyrir hér um bil 35,000 árum, lá samfelld ísbreiða frá Atlantshafi til Kyrrahafs. En ísöldin var ýmsum sveiflum háð. Á henni miðri, það er að segja á tímabilinu frá 35,000 til 25,000, miðað við nútíð, er haldið, að veðrátta hafi gerzt mild. Á þessu tímabili rýrn- uðu jöklarnir svo mjög, að landið fyrir austan Kletta- fjöllin varð íslaust, þ. e. land- svæðið milli Klettafjalla jök- ulsins og Wisconsin jökulsins mikla, sem huldi Austur-Kan- ada og norðaustur héruð Bandaríkjanna. Þó að land- svæði þetta væri freðmýri (tundra), mun þar hafa verið plöntu- og drýalíf, en með því móti einu gátu menn þrifizt á þessum slóðum. Mikill hluti Alaska var þá jökullaus, og Bering-sundið var þá þurrt land og tengiliður Ameríku og Síberíu. Úr því að Indíán- ar eða forfeður þeirra höfð- ust einhvern tíma við í Aust- ur-Síberíu, hafa þeir upp- runalega hlotið að lifa í sam- ræmi við lifnaðarhætti Eski- móa. Það er hugsanlegt, að þeir hafi á þessu tímabili smáþokazt suður eftir íslaus- um sléttunum, þar sem nú er McKenzie dalurinn, Alberta og Montana. Á seinni hluta ísaldar gengu jöklarnir aftur saman, unz þeir tóku að þiðna fyrir um það bil 13,000 árum. Forfeður Indíánanna gátu auðvitað hafa komið sömu leið rétt fyrir lok ísaldar, þ. e. a. s. fyrir 12 til 13 þúsund árum. En það er ástæða til að halda, að sumir þeirra að minnsta kosti hafi komið fyrr. Menning Indíána var svo margbreytileg, að sumum fornleifafræðingum og mann- fræðingum finnst, að 12 til 14 þúsund ár séu ekki nægilega langur tími til að koma á öll- um þeim breytingum innan sama kynstofns. Það er til dæmis sagt, að í Kaliforníu- ríkinu einu séu tungumál Indíána fjölbreytilegri en þjóðtungur a 11 r a r Vestur- Evrópu. Og gera yrði ráð fyr- ir löngum tíma, þegar skýra á hinar ýmsu tegundir sið- menningar, sem þróuðust í Mexíkó, Yucatan og Peru. Fræðimenn eru sammála um eitt atriði, þ. e. að menn- ing Indíána eigi rætur sínar innan sjálfs kynstofnsins, en sé ekki eftirlíking á menn- ingu annarra þjóðflokka. Þeir komu hingað sem skinn- klæddir veiðimenn. Hingað og þangað settust þeir að og lærðu akuryrkju, eins og t. d. í Mexíkó-dalnum og Yucatan. Þar eins og annars staðar var akuryrkjan fyrsta skrefið í áttina til hærra menningar- stigs. Þorp urðu að bæjum með strætum, höllum og musterum. Pyramidar eins mikilfenglegir og pydamid- arnir í Egyptalandi voru reistir úr höggnum steini. Myndastyttur voru gerðar úr ýmsum steintegundum, og líkneski í fullri líkamsstærð voru steypt úr silfri og gulli. Og allt þetta var gert með áhöldum úr steini, því að hér voru á ferðinni steinaldar- menn, sem þekktu hvorki bronz né járn. Að mörgu leyti þroskaðist menning þeirra á sama hátt og aðrar menning- ar. Kvikfjárræktin fylgdi í kjölfar akuryrkjunnar. Llama og „alpaca“ dýrin voru tamin og ullin af þeim notuð í klæði og dúka, sem enn í dag vekja undrun manna í fornminja- söfnum víða um heim. öll þessi menningarþróun stöðvaðist fáum árum eftir að Cortes fann Mexíkó árið 1519 og Pizarro Peru árið 1532. Endirin hefir verið skráður með ógleymanlegum hætti með orðum Prescott og ann- arra sagnfræðinga. Þó að upp- hafið sé enn þá hulið rökkri fornaldarinnar, er það smám saman að skýrast við ljós vís- indalegra tilrauna.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.