Lögberg-Heimskringla - 07.02.1963, Side 1
Ilögberg-ftetmsímngla
Stofnað 14. jan., 1888
Slofnuð 9. sept., 1886
77. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 7. FEBRÚAR 1963
NÚMER 6
Dr. S. E. Björnsson:
Eggert Grettir Eggertson sextugur
Lögber^-Heimskringla birt- ation. Hann hefir um mörg ár
ir í þetta sinn mynd af einum átt sæti í stjórn Eimskipa-
þeirra manna, sem hefir getið félags Islands og var um skeið
sér góðan orðstír á athafna-
sviði þjóðarinnar á síðari ár-
um. Vil ég í fáum orðum gera
nokkra grein fyrir lífi hans og
starfi.
Maðurinn, sem hér um ræðir
er Eggert Grettir Eggertson,
nú til heimilis á 78 Ash St.,
Winnipeg, Manitoba.
Grettir var fæddur í Winni-
peg 9. febrúar 1903, og voru
foreldrar hans Árni Eggertson
fasteignasali og fyrri kona
hans Oddný Jónína Jakobs-
dóttir.
Auðvitað er það nú algengt
að menn verði sextugir, og
venjulega er það ekki með
fréttum talið; en stundum er
þó brugðið út af venjunni og
tómlætið lagt til síðu, og er
það vel, þegar góðir menn eiga
hlut að máli.
Ef íslendingasögur væru
skrifaðar nú, í annað sinn, þá
held ég að sá maður, sem hér
um ræðir yrði sagður
„snemma fyrir öðrum sínum
jafnöldrum, og líklegur til
stórræða", og yrði sú umsögn
og spádómur ekki fjarri sanni.
I fornöldinni voru stórræðin
aðallega innifalin í því, „að
fara á hring með víkingum“,
eins og Egill kvað; en þau sem
hér um ræðir eru annars eðlis
og uppbyggilegri fyrir mann-
félagið.
*)„Eftir að hafa lokið prófi
í rafmagnsfræði (B. Sc og E.E.)
frá Manitoba háskóla með
heiðri, 1925, starfaði Grettir
sem verkfræðingur í Banda
ríkjunum, Canada og á íslandi.
Hann átti heima í New York
í 13 ár, og stofnaði þar verk-
fræðilega skrifstofu 1942. Var
hann um skeið verkfræðilegur
ráðanautur hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur, Rafmagnsveit-
um ríkisins og Rafmagnseftir-
litinu 1 Reykjavík. Hann starf-
aði að Ljósafossvirkjuninni,
Laxár og Skeiðsfossvirkjun-
unum, Sogsvirkjuninni og
nýju Elliðaárstöðinni. Hvarf
hann svo til Canada árið 1948.
Forstjóri fyrir E. G. Eggertson
Inc., Engineers, New York, N.
Y., Western Elevator Co.,
Ltd., Winnipeg og Power &
Mine Supply Co., Ltd. í Winni
peg. Þá var hann um skeið
forseti safnaðar Fyrstu lú-
tersku kirkju i Winnipeg og
Elliheimilisins Betel á Gimli.
Gjaldkeri og einn af stofnend-
um Canada-Iceland Found-
forseti Thule Ship Agency
Inc., í New York. Hann hefir
verið í stjórn St. Charles
Country Club í Winnipeg og í
Þjóðræknisfélags stjórn um
eitt skeið. Er hann og meðlim-
ur í ýmsum verkfræðinga-
félögum og mörgum öðrum
félögum, sem ekki verða talin
*) Vestur Islenzkar Æviskrár.
Eggert Grellir Eggertson
hér. Hann er Frímúrari og um
eitt skeið var hann forseti ís-
lendingafélagsins í New York.
Kona hans, Irene, er af ensk-
um ættum, fædd í Kansas City
í Bandaríkjunum."
Það, sem nú hefir verið
skýrt frá, sýnist að vera ærið
ævistarf, og þeir sem þekkja
manninn efast ekki um að það
muni hafa verið vel af hendi
leyst. Frásögnin ber það ótví-
rætt með sér, að hjá þessum
athafnamanni hafa áhugi,
mannkostir og hæfileikar far-
ið saman og gert hann að for-
ustumanni á ýmsum sviðum
meðal samborgara hans.
Vinir Grettis, sem orðið hafa
honum samferða gegn um ár-
in kannast bezt við hann sem
drenglundaðan gáfumann,
eins og hann á kyn til. Betri
einkunn en það er naumast
hægt að ná. Þess ber að geta
sem gert er og það er bæði
gott og þarflegt að kynna sér
og öðrum ævistarf slíkra
manna. Árnaðaróskir vina og
samferðamanna has, á þessum
tímamótum ævi hans, eru því
hugheilar og innifela þakkar-
orð fyrir dáð og drengskap
hans á mörgum liðnum árum.
Finnur Jónsson
Fréttir fró íslandi
Ágrip innl. frétta vikunnar
27. jan. 1963.
1 byrjun síðastliðinnar viku
og fram á miðvikudag var yf-
irleitt hæg suðlæg átt og milt,
en þó oft vægt frost á norð-
austanverðu landinu. Á mið-
vikudag gekk í vestanátt og
kólnaði. Þegar leið á daginn
var víða kominn stormur með
éljagangi vestan til á landinu
en björtu veðri á austurlandi.
Á föstudag gekk vestanáttin
niður og hlýnaði nokkuð á
suður- og vesturlandi. 1 gær
var suðvestanátt og hafði
hlýnað verulega á Norður- og
Austurlandi. Á hádegi var t.d.
9 stiga hiti á Egilsstöðum og
hafði hlýnað þar um 15 stig á
12 klukkustundum.
Oft var mikil hálka á veg-
um þessa dagana.
♦ * *
Velta Útvegsbanka íslands
jókst um 72 milljarða króna á
sl. ári, eigið fé bankans nemur
nú rúmum 100 milljónum
króna og ákveðið hefur verið
að byggja fjórar hæðir ofan á
gamla bankahúsið í Austur
stræti í Reykjavík og verður
sú nýbygging 7000 rúmmetrar.
Ákveðið hefur verið, að bank
inn setji á stofn útibú í Kefla-
vík.
* * *
Flugfélag Islands hefur tek-
ið að sér flugferðir til stöðva
a austurströnd Grænlands
með vistir, póst og ef til vill
fartþega. Ekki er hægt að lenda
á þeim slóðum nema flugvél,
sem búin er skíðum, og verða
nú skíði sett á flugvélina
Gljáfaxa, er hefja mun þessar
ferðir í byrjun marz.
Sölumiðstöð hraðfrystihús-
anna hélt nýlega aukafund og
var þar greint frá því að heild-
arframleiðsla frystihúsa í
þeim samtökum hafi nú num-
ið 62.800 lestum árið 1962.
Slys urðu mörg í vikunni.
Á fimmtudaginn urðu tvö
banaslys í grennd við Reykja-
vík. Ungur maður, Magnús
Einarsson búfræðiráðunautur,
Reykjavík, beið bana í árekstri
bifreiða á Vesturlandsvegi
milli Korpúlfsstaða og Blika-
staða. Þrettán ára stúlka, Hild
ur ólafsdóttir, Kópavogi, varð
fyrir bíl á Reykjanesbraut
Kópavogi og beið bana. — Á
mánudaginn varð sex ára telpa
í Hafnarfirði, Lára ólafsdótt-
ir, fyrir bíl og beið bana.
Fimmtán skipverjar á tog-
aranum Röðli veiktust hastar-
lega er togarinn var á veiðum
fyrir sunnan land. Einn þeirra
Við höfðum því miður ekki
náð í mynd af Finni Jónssyni
þegar afmælisblað Lögbergs
fór í pressuna sl. viku, okkur
er því ánægjuefni að geta birt
hana nú, en eins og Dr.
Tryggvi J. Oleson skýrði frá í
grein sinni, Ritstjórar Lög-
bergs var Finnur Jónsson að-
stoðarritstjóri blaðsins í mörg
ár og aðalritstjóri í eitt ár.
Hann far fæddur 1868, son-
ur Jóns bónda að Melum í
Hrútafirði Jónssonar sýslu-
manns Jónssonar og konu hans
Sigurlaugar Jónsdóttur að
Helgafelli í Vatnsdal Ólafsson-
ar. Hann fluttist vestur um
haf árið 1893 og kvæntist ári
síðar Guðrúnu Ásgeirsdóttur
dannebrogsmanns Finnboga-
sonar og Ragnhildar Ólafs-
dóttur. Varð Guðrún forustu-
kona í ýmsum félögum
kvenna; Kvenfélagi Fyrsta
úterska safnaðar; Bandalagi
lúterskra kvenna, Jon Sigurd'
son I.O.D.E., Hannyrðafélag
inu og fl.
Finnur Jónsson rak um
langt skeið íslenzka bókaverzl
un hér í borg, og tók mikinn
þátt í félagslífi íslendinga,
einkanlega Fyrsta lúterska
safnaðar, var í safnaðarstjórn
í mörg ár og tók virkan þátt í
starfi kirkjufélagsins, var fé-
hirðir þess í tólf ár og í öðrum
embættum þess.
Finnur Jónsson andaðist
1955.
„Mér virtist ávalt nokkur
höfðingjabragur á Finni, ef til
vill má segja um hann með
sanni að hann var .herramaður
af gamla skólanum*. En það
var góður skóli gamallar, rót-
gróinnar ættar forystu- og
framkvæmdamanna, og þessi
Finnur Jónsson
kvistur ættarinnar bar í ýmsu
vott um uppruna sinn.“ V.J.E.
Börn þeirra hjóna, á lífi, eru
— Anna — Mrs. John P.
Duncan, og J. Ragnar John-
son, lögfræðingur og ræðis-
maður Islands í Toronto.
Snæbjörn Aðils, Reykjavík,
lézt áður en náðist til læknis.
Það kom í ljós að veikindi
þessi stöfuðu af því að- lekið
hafði kælileiðsla nálægt há-
setarými fram á skipinu, en
kæliefnið sem notað er í þessu
kerfi skipsins er methyl-
chlorid, og eitrar það and-
rúmsloftið, ef lekur. Þeir, sem
veikst höfðu, voru settir í
sjúkrahús í Vestmannaeyjum
og Reykjavík. Sjóprófum í
málinu er ekki lokið.
Á miðvikudags m o r g u n
brann íbúðarhúsið að Borg í
Skriðdal, og bjargaðist heim-
ilisfólk nauðulega út um
glugga á efri hæð hússins. Á
mánudaginn brann íbúðarhús-
ið að Fiskinesi skammt frá
Drangsnesi.
(Úr Morgunblaðinu)
Reglubundnar flugsamgöngur
við Færeyjar
Flugfélag íslands mun í vor
hefja reglubundnar ferðir
milli Færeyja og þaðan til
Bergen og Kaupmannahafnar
og einnig milli Færeyja og
Glasgow,
Handriiasafn Landsbóka-
safns flyiur í ný húsakynni
Handritasafn Landsbóka-
safns hefir nýlega verið flutt
í sal þann á neðstu hæð safn-
hússins, sem Náttúrugripasafn
hafði áður til umráða. Gólf-
flötur þessa nýja samastaðar
safnsins er um 130 fermetrar
að flatarmáli, og verða hand-
ritin geymd í 42 tvöföldum
stálskápum, sem standa þétt
saman í fjórum röðum öðrum
megin í salnum og hreyfast
eftir rennibrautum. Skápa-
samstæðunum er hægt að loka
með einu handtaki og eru því
engin handrit í opnum hillum.
Skápa þessa hefir Ofnasmiðj-
an h.f. í Reykjavík smíðað eft-
ir sænskri fyrirmynd, og eru
þeir vandaðir að allri gerð.
Járnhlerar eru fyrir öllum
gluggum geymslunnar. Áætl-
að er, að téðir skápar rúmi um
70Ó hillumetra, svo að þama
verður hægt að geyma til við-
bótar handritum gamlar bæk-
ur prentaðar og fágæt rit og
verðmæt.
Handritasafnið er nú um
12.000 bindi og bögglar. Skrá-
setjari safnsins er Lárus
Blöndal bókavörður.
Frh. bls. 3.