Lögberg-Heimskringla - 25.04.1963, Page 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 25. APRÍL 1963
7
Valdheiður Thorlakson:
Til íslands furðustranda
Svo það eru stórir hópar
Vestur íslendinga að leggja
leið sína til gamla Fróns á
komandi sumri. Dásamlegar
fréttir.
Hvað verður þá það helzta
sem þið, er tilheyrið hinni
svo nefndri alþýðu munduð
hafa mesta löngun til að sjá
og skoða? Ef ég væri í ykkar
sporum, hypjaði ég mig upp á
Þjóðminjasafn, þar vildi ég
eyða góðri dagstund, athuga
þá muni er opna mundu hjá
mér meiri skilning á lífsbar-
áttu forfeðra minna. Reyna að
(setja mig betur inn í hugsun-
arhátt og viðleitni alþýðu ís-
lands á liðnum öldum. Þegar
maður ber það saman við
tækni nútímans, undrast mað-
ur þá þrautseigju, er forfeð-
ur okkar sýndu.
Þá má ekki gleyma að
pkreppa upp á aðra hæð þjóð-
minjahússins og skoða vax-
myndasafn óskars heitins
Halldórssonar, það eru lista-
verk er vert er að líta, þó
ekki hafi þau íslenzkar hönd-
ur mótað.
Þá má ekki gleyma að
bregða sér austur yfir Elliða-
ár og heimsækja Árbæ, þang-
að fara nú flest elztu hús
Reykjavíkur ásamt gömlum
innannstokksmunum og ýmsu
er að búskap laut um þær
mundir er forfeður okkar voru
að flytja úr landi til Vestur-
heims.
Það er skemmtilegra að sjá
og skoða nútíma ísland og
kynnast landi og þjóð, alþýð-
,unni, sem er grundvöllur
hverrar þjóðar. Þér finnið
hana frjálsa, glaðlynda og góð-
viljaða, reiðubúna að sýna
ykkur alla gestristni og greiða-
semi. En ég hygg það bless-
aðist bezt að gefa henni tóm
og tækifæri að sýna ykkur og
segja frá gæðum Islands, og
þau eru mörg. Grípið ekki
fram í með stórhóli um Vest-
heim, eftir allt, fóruð þið til
The Hótel Borg is situated in the heart of
the modern city of Reykjavík, and faces the
Austurvöllur square where the Cathedral
(Lutheran) and the Alþing (Parliament) are
also located. The Hótel Borg is unique in
that a11 rooms are heated with thermal
water direct f rom the renowned hot springs.
Hotel Borg
Reykjavík, lceland
íslands til að kynnast landi
og þjóð, ekki til að auglýsa
Ameríku, ég segi Ameríku, —
því enginn á Islandi gjörir
greinarmun á Kanadabúa eða
Bandaríkjaþegn, þeir steypa
okkur öllum í einn deiglu-
pott og kalla okkur Amerí-
kana.
Ef þið skreppið á hlýjum
sumardegi ofan að sjó til
Nauthólsvíkur getið þið litið
æsku íslands taka sterkleg
sundtök, frjálsa og mannvæn-
lega þar er enginn beinkröm
né visnaðir limir af lélegri
fæðu og illum húsakynnum,
nei, nú býr æska íslands við
gnægð góðra hluta.
Ef þið verðið stödd í Reykja-
vík er lengstur er dagur, þá
bregðið ykkur upp á Öskju-
hlíð á heiðríku kvöldi, rétt
fyrir miðnætti. Ég trúi ekki
að til sé sú sál sem ekki yrði
hrifin af því glitofna geisla-
flóði, er vefur allt umhverfið
er miðnætur sólin siglir yfir
norðurhvel lofts og lagar. Allt
virðist titra í því ólýsanlega
töframagni er faðmar bæði
haf og himin og þið sjáið
meir, alla Reykjavík, Flóann,
dökkgrænar eyjarnar og
Esjuna, allt umvafið regnbog-
ans litum dýrðar og dásemd-
ar.
Ef þið Kanadabúar saknið
kjörlands feðra ykkar þá
gangið um í Fossvogsgrafreit
á milli háu hvítu flötu stein-
anna er bera nöfn sem Cam-
eron, Henderson, McCormick
og fleiri og fleiri, ykkur finnst
Framhald á bls. 29
REYKJAVÍK
The Fisheries Bank of Iceland
ÚTIBÚ:
Akureyri
ísafirði
Keflavík
Seyðisfirði
Siglufirði
Vestmannaeyjum
Útvegsbanki íslands var stoínaður árið 1930, sem hlutaíélag, er að langmesiu leyti
var í eign ríkissjóðs, en árið 1957 var hlutafélaginu breytt í sjálfstæða ríkisslofun.
Útvegsbankinn annast alla almenna bankastarfsemi, þar á meðal kaup og sölu er-
lends gjaldeyris. Það er sérstaklega verkefni bankans að styðja sjávarútveg, iðnað
og verzlun landsmanna.
Eigið fé bankans í árslok 1962 nam 103.09 millj. kr., spariinnlán 598.7 millj. kr., og
veltiinnlán 146.1 millj. kr.
Ríkissjóður ábyrgist allt innstæðufó í bankanum.
Yfirstjórn bankans er í
höndum 5 manna banka-
ráðs og 3 bankastjóra.
Bankaráðið skipa: Guð-
mundur í. Guðmundsson,,
utanríkisráðherra, formaður,
Björn ólafsson, stórkaup-
maður, fyrrv. ráðherra,
Gísli Guðmundsson, alþm.,
Lúðvík Jósefsson, alþm.,
fyrrv. ráðherra og Guðlaug-
ur Gíslason, alþm.
Bankastjórar eru:
Jóhann Hafstein, Jóhannes
Elíasson, Finnbogi Rútur
Valdimarsson.