Lögberg-Heimskringla - 02.05.1963, Qupperneq 1
l^eimsimngla
Stofnað 14. ian„ 1888
Slofnuð 9. sept., 1886
77. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 2. MAÍ 1963
NÚMER 18
Gullbrúðkaup
Fréttir fró Arborg
Námumálaráðherra
Þann 23. marz siðast liðinn hátíðleg stund, sem lengi mun ■
fór fram hátíðleg athöfn í geymast í minni þeirra sem
Mr. og Mrs. J. B. Jonhson
Á sunnudaginn 5. maí verð-
ur haldið upp á fimmtíu ára
hjúskaparafmæli hinna mætu
og vinsælu hjóna Mrs. og Mrs.
J. B. Johnson á heimili dótt-
ur þeirra og tengdasonar, Mr.
og Mrs. L. Stevens 32 — 4th
Ave., Gimli, Man., frá kl. 2
til 5 e.h. og frá 7 til 9 um
kvöldið.
Þau Jón og Jakobína John-
son voru gefin saman í hjóna-
band á Gimli 3. maí 1913. Þau
ráku stórmyndarlegt bú að
Birkinesi norður af Gimlibæ
í 32 ár, og þar ólu þau upp
sín gjörvulegu börn, átta að
tölu. Elzta son sinn, Björn,
mistu þau árið 1942. Hann var
í þjónustu flughersins í
Evrópu. Barnabörnin eru 21.
Jafnframt búskapnum hefir
Jón rekið fiskútgerð á Mani-
tobavötnunum og gerir enn.
Fyrir nokkrum árum seldu
þau hjónin bújörð sína og
reistu sér fallegt heimili í
Gimlibæ og hafa átt þar
heima síðan. Þau hjónin eru
frábærilega gestrisin og fé-
lagslynd. Margir hafa notið
ógleymanlegra ánægjustunda
á Birkinesi og á heimilum
þeirra í Gimjibæ. Þau hafa
veitt forustu í málum lú-
terska safnaðarins, íslenzka
lestrarfélagins, þjóðræknis-
félagsins, og hafa stutt Lög-
berg-Heimskringlu drengi-
lega. Við vitum að þeirra
hjóna verður maklega getið
síðar hér í blaðinu. Hinir
mörgu vinir þeirra fjær og
nær munu óska þeim innilega
til hamingju í tilefni þessa
j merkisáfanga og árna þeim
blessunar.
Tilkynning frá Mennfamálaráðuneyfinu
Menntamálaráðuneytið hef-
ur ákveðið að veita stúdent
eða kandidat af íslenzkum
ættum, búsettum í Kanada
eða Bandaríkjunum, styrk til
náms í íslenzkum fræðum í
heimspekideild. Háskóla Is-
lands frá 1. október 1963 til 1.
maí 1964. Nemur styrkur
þessi 24,500.00 íslenzkra
króna. Styrkurinn er miðaður
við að nægja fyrir fæði, hús-
næði og námsbókum. Náms-
manninum mun verða útveg-
að húsnæði í stúdentagarði og
fæði í mötuneyti stúdenta,
hvort tveggja gegn venjulegu
gjaldi, sem greiðist af styrkn-
um.
Þjóðræknisfélag íslendinga
í Vesturheimi er beðið að aug-
lýsa styrk þennan og gera til-
lögu til menntamálaráðuneyt-
isins fyrir 1. júlí n.k. um,
hverjum skuli veita hann.
Styrkþegi þarf að vera kom-
inn til Reykjavíkur 1. október
og stunda nám sitt til 1. maí
1964. Þess skal getið, að
menntamálaráðuneytið býður
árlega fram nokkra styrki til
erlendra stúdenta frá ýmsum
löndum, og verður efnt til
sérstaks kynningarnámskeiðs
fyrir þá að Laugarvatni 23.—
30. september í haust. Dvöl
hinna erlendu stúdenta á
þessu námskeiði er ókeypis og
er þeim ráðlagt að sækja það,
þótt það sé engin skylda.
Fluttir eru fyrirlestrar þarna
um ýmis efni og farið til ná-
lægra staða, svo sem Þing-
valla, Skálholts og að Geysi
í Haukadal. Er tilgangurinn
með þessu námskeiði að
veita hinum erlendu náms-
jnönnum nokkrar almennar
upplýsingar um ísland, áður
en háskólakenn’slan hefst. í
þessu námskeiði er náms-
manninum frá Vesturheimi
velkomið að taka þátt, ef hann
æskir. F. h. r.
Birgir Thorlacius
/Ámi Gunnarson
* * *
Umsóknir og meðmæli
sendist til ritara Þjóðræknis-
félagsins, Mrs. Hólmfríðar
Danielson, 869 Garfield St.,
Winnipeg.
Arborg, Man. Var þá vígt hið
hið nýja elliheimili sem nefn-
ist „St. Benedict’s Manor“.
Var þar margt um manninn;
nálægt 500 munu hafa verið
viðstaddir. Sister Justina, for-
stöðukonan bauð gestina vel-
komna. Dr. George Johnson
kom þar. fram fyrir hönd
fylkisstjórnarinnar. Fór hann
vinsamlegum orðum um starf
Benedictine Sisters bæði hér
í Arborg í undanfarin 50 ár, og
eins á Gimli og víðar í þessu
fylki. Síðap skar hann borð-
ann og lýsti því yfir að nú
væri heimilið tekið til starfa.
Reyndar hefur það verið
starfrækt síðan síðast liðið
haust, og er öllum heimilt að
beiðast þar inngöngu, hverrar
trúar sem er, þó það sé starf-
rækt af „Sisters of the Order
of St. Benedict“.
1 athöfninni tóku þátt bæði
lúterski presturinn séra Frank
Schmitt frá Ardal’s söfnuði og
söng flokkur Ardals safnaðar
undir stjórn Mrs. Magneu
Sigurdson.
Einar Gíslason sem lengi
hefur verið skrifari Bifröst
sveitar gaf skýrslu nefndar-
innar sem unnið hefur að því
að koma þessu máli í fram-
kvæmd, með aðstoð Mr. Noges
sem eftirlit hefur með þess
háttar málum fyrir hönd „De-
partment of Health“. Skýrði
hann frá því að Benedictine
Sisters hefðu lagt til eignina,
sem með styrk frá stjórninni
var lagfærð til að mæta kröf-
um Department of Health,
sem vistfært elliheimili.
Byggðar fólki er ætlað að
sjá um að skaffa öll innanhúss
gögn, og var áætlað að til þess
þyrfti $21,000.00. Meirihluti af
þeirri upphæð hefur verið
safnað, en ennþá.vantar nokk-
uð til. Heimilið verður starf-
rækt af St. Benedictine
Sisters. Eru þær vel þekktar
hér í Arborg og grendinni, því
þær hafa starfrækt nunnu
klaustur og kirkju á þessum
slóðum í síðast liðin 50 ár og
komi sér vel.
Vígsluna framkvæmdi hinn
katólski erkibiskup frá Winni-
peg, His Grace the Most
Reverend Father George
Flahiff. Benedictine Sisters
önnuðust sönginn.
Þegar þessi athöfn var búin
var öllum viðstöddum boðið
að skoða heimilið í krók og
kring.
Arborg Women’s Institute
sáu um veitingar handa öllum.
Voru þar frí samskot og var
svo upphæðin gefin heimilinu.
Var þessi athöfn í alla staði
viðstaddir voru.
☆
Að kvöldi dags þann 23.
marz bar við sem oftar að góða
gesti bar að garði á, vegum
Þjóðræknisdeildarinnar „Esj-
an“. Voru það þeir prófessor
Haraldur Bessason og dr. Sig-
urður Þórarinnsson. Þó lítill
tími gæfist til undirbúnings,
stofnaði Esjan til samkomu í
Sambandskirkjunni í Arborg,
og var aðsókn góð eftir á-
stæðum, því margt stóð til
þann dag í Arborg.
Samkomunni stýrði forseti
Esjunnar Gunnar Sæmund-
son. Prófessor Haraldur Bessa-
son kynnti ræðumanninn dr.
Sigurð Þórarinnsson. Fjallaði
ræða hans aðallega um ís-
lenzk eldfjöll og eldgos, og
var í alla staði fróðleg og
skemmtileg. Einnig sýndi
Framhald á bls. 2.
Hon. William Benedickson
Hið fyrsta verk hins nýja
forsætisráðherra, Lesters B.
Pearson var að skipa góða og
gegna menn í ráðuneyti sitt,
og er einn ráðherrann af ís-
lenzkum ættum, William
Benedickson, þingmaður fyrir
Kenora—Rainy River kjör-
dæmið í Ontario, hann er
Minister of Mines.
LEO JOHNSON
Presideni of ihe Maniioba Curling Associaiion
On Thursday, April 27, Leo Johnson of Winnipeg was
elected the president of the Manitoba Curling Association
for the year 1963-64. He is considered to be among the curling
greats of Canada. In 1934 he won the Canadian champion-
ship and was a runner-up in 1946. He has taken three pro-
vincial curling championships, in 1934, 1944 and 1946. Dui'ing
the war the Brier playdowns were called off at the request
of the government. But for that, Leo would have carried
Manitoba colors into Canadian arena on three occasions
during that period. He is a former president of the Strath-
cona Curling Club and an honorary life member. Among
his many souvenirs are 14 trophies won in the MCA bon-
spiels.
Mr. Johnson has also made a name for himself in other
athletic activities — baseball and golf; he is a former presi-
dent and an honoray life meniber of the Southwood Golf
Club. — He is the son of Guðjón and Oddný Johnson, pioneer
residents of Winnipeg.