Lögberg-Heimskringla - 02.05.1963, Blaðsíða 2

Lögberg-Heimskringla - 02.05.1963, Blaðsíða 2
2 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 2. MAÍ 1963 Gullbrúðkaup að Þann 4. apríl s.l. áttu hin góðkunnu hjón Guðmundur J. Jónasson og Elísabet Jónasson, sem um langt skeið hafa verið búsett í Eyford-byggðinni í Norður-Dakota, 50 ára hjú- skaparafmæli. Sunnudaginn 7. apríl var 'þessa merkisáfanga í ævi þeirra minnst með sam- komu, sem börn þeirra höfðu efnt til, og fram fór í sam- komuhúsinu að Eyford. Var samkomuhúsið fagurlega skreytt, og þegar skemmti- skráin hófst kl. 3 eftir hádeg- ið, var hvert sæti skipað í rúmgóðum salnum, en í önd- vegi sátu heiðursgestirnir við sérstakt veizluborð, eins og vera bar, og sómdu sér prýði- lega. Hin mikla aðsókn byggð- arbúa í þetta afmælishóf ber því, hins vegar, óræktan vott, hverjum vinsældum gullbrúð- kaupshjónin eiga að fagna í heimabyggð sinni. Dóttir þeirra hjóna, Mrs. Valdimar ólafson, hafði sam- komustjórn með höndum, og fórst það mjög vel; með sömu prýði annaðist hún einnig undirleik á píanó fyrir allt söngfólkið, sem fram kom á samkomunni. Skemmtiskráin hófst með því, að fjórir söngmenn sungu þrjá alkunna og fallega amer- íska ástarsöngva, en í fjórsöng þessum tóku þátt þeir Palmer (Pálmi) Jónasson, sonur gull- brúðkaupshjónanna, Dean og Robert Ólafson, dóttursynir þeirra, og Alfred Sigfússon, systursonur Mrs. Jónasson. Þá söng Curtis Ólafson, ung- ur piltur, dóttursonur gull- brúðkaupshjónanna, giftingar- sönginn vinsæla, „I love you truly“. Þessu næst komu þeir fjórmenningarnir fram að nýju og sungu íslenzka hjóna- vígslusálminn yndisfagra: „Hve gott og fagurt og indælt er“. Dr. Richard Beck flutti síð- an ræðu fyrir minni heiðurs- gestanna. Sem fyrrv. forseti Þjóðræknisfélagsins þakkaði hann, í nafni núverandi for- seta þess, félagsstjórnar og félagsfólks, þeim Jónasson- hjónunum starfsemi þeirra að íslenzkum félagsmálum, og Guðmundi sérstaklega hið mikla og ágæta starf hans í þágu þjóðræknisdeildarinnar „Bárunnar" í N.Dakota, en hann er núverandi og fyrrv. forseti hennar. Sem ræðis- maður Islands í N.Dakota þakkaði dr. Beck þeim hjón- um einnig tryggð þeirra við ættlandið og trúnað við ís- lenzkar menningarerfðir, í nafni Forseta íslands og ís- lenzku þjóðarinnar. Að máls- lokum afhenti ræðumaður þeim hjónunum mikinn og glæsilegan rafmagnslampa (stangarlampa) að gjöf frá „Bárunni", í virðingar- og þakkar skyni fyrir störf þeirra henni til eflingar. Að lokinni ræðu Richards Beck sungu fþeir Palmer Jón- Eyford, N. Dak. asson og þeir bræður Dean og Robert Ólafson, og hylltu gull- brúðkaupshjónin hvort um sig með einkar viðeigandi og hugljúfum söngvum. Tók þá til máls Miss Lauga Geir, sem kunn er af ritstörf- um sínum, og ávarpaði heið- ursgestina í nafni byggðar- innar. Gat hún fyrst náinna kynna þeirra Elísabetar Jón- asson, allt frá æskuárum þeirra þar í byggð og fram á þennan dag, en fór síðan hlýj- um og maklegum viður- kenning^rorðum um þau hjónin bæði og um hlutdeild þeirra í starfs- og félagslífi byggðarinnar. Talaði Miss Geir á prýðisgóðri íslenzku, og mæltist bæði vel og skemmtilega. Þá söng Alfred Sigfússon hinn fagra bænarsálm, „Bless This House“. Er hann söng- maður ágætur, enda eftir- sóttur einsöngvari á samkom- um á þeim slóðum. Þessu næst kvaddi gull- brúðguminn, Guðmundur J. Jónassonr sér hljóðs og þakk- aði fyrir hönd þeirra hjón- anna, í hjartnæmri ræðu öll- um þeim, er átt höfðu hlut að þessum eftirminnilega mannfagnaði þeim til heiðurs, og sérstaklega dætrum þeirra og sonum. Las Guðmundur síðan upp nokkur kvæði eftir sjálfan sig, en hann er prýð- isvel skáldmæltur, svo sem kunnugt er. Sló hann í kvæð- unum bæði á streng gaman- semi og alvöru, en lauk máli sínu með því að lesa einkar fallegt og hjartahlýtt íslands- kvæði. Var ræðu hans ágæt- lega tekið. Sóknarprestur byggðarinn- ar, séra Claude Snyder, flutti þessu næst bænar- og blessun- arorð. En skemmtiskránni lauk með því, að Curtis litli 'Ólafson, söng bænarsálminn „May the Good Lord Bless and Keep You.“ Um söng hans og annarra, sem sungu á sam- komunni, skal því bætt við, að þeim tókst öllum svo vel, að veruleg ánægja var á að hlýða. Síðan voru bornar fram höfðinglegar veitingar, og nutu menn þeirra um stund við fjörugar samræður. Að því búnu lauk þessum framúr- skarandi ánægjulega mann- fagnaði, sem var öllum hlutað- eigendum til sóma. En góð- hugur ættmenna og sveitunga í garð gullbrúðkaupshjónanna lýsti sér ennfremur í því, að þau voru sæmd fjölda ágætra gjafa, auk gjafarinnar frá ,,Bárunni“, sem fyrr getur. Guðmundur Júlíus Jónas- son, eins og hann heitir fullu nafni, er fæddur 31. júlí 1887 að Breiðstöðum í Gönguskörð- um í Skagafirði, sonur hjón- anna Jónasar Jónassonar og Önnu Kristjánsdóttur. Hann fluttist vestur um haf til N. Dakota árið 1905. Kona hans, Elísabet Guðnadóttir Jónas-j son, er fædd að Eyford 20. okt. 1889. Foreldrar hennar voru landnámshjónin Guðni Gests- son (d. 1923) og fyrri konu hans Guðlaug Jónsdóttir (d. 1902), en hún var systir hins þjóðkunna Drauma-Jóa frá Sauðaneskoti á Langanesi. Guðni kom frá Islandi 1887 og settist að í Víkurbyggð (Ey- ford) í N.Dakota. Þau, Guðmundur og Elísabet Jónasson eiga fimm börn, sem hér segir: Lovísa Guðlaug (Mrs. Valdimar) Ólafson, Ey- ford; Guðbjartur Jónas, smið- ur, San Francisco; Elín Guðný (Mrs. Albert) Thrush, San Francisco; Kristinn Moritz, smiður, San Francisco; og Joseph Pálmi, heima. Auk þess eiga þau Guðmundur og Elísabet heilan hóp barna- barna og annarra afkomenda. Margréti konu minni og mér þótti innilega vænt um það, að geta tekið þátt í gull- brúðkaupshátíðarhaldinu þeim hjónum til heiðurs, á- samt með fjölda sveitunga þeirra og vina í íslenzku byggðinni söguríku og blóm- legu á þéim slóðum. Sjaldan hafa fleygar ljóðlínur Jónasar Hallgrímssonar og eftirlætis samkomusöngur okkar íslend- inga orðið mér nærgöngulli en í þeim mannfagnaði: Hvað er svo glatt sem góðra vina fundur, er gleðin skín á vonarhýrri brá? Eins og á vori laufi skrýðist lundur, lifnar og glæðist hugarkætin þá. Ef til vill, enfremur fyrir það, að vorið var einmitt að ganga í garð, jörðin að klæð- ast gróðurskrúða sínum, og skógartrén að skjóta frjóöng- um. Eitt er víst, að við hjónin munum lengi minnast þess vinafundar með þakklátum huga. Lifið heil! RICHARD BECK. Frá Arborg Framhald frá bls. 1. hann litmynd (colored slides) um sama málefni. Síðan skemmti hann með söng og spilaði sjálfur undir á gítar. Voru það íslenzkir al- þýðusöngvar, bæði gamlir og nýjir. Var fólki vel skemmt. Forseti þakkaði þeim kom- una fyrir hönd allra við- staddra og Esjunnar í heild. Að lokum var öllum veitt kaffi og tími gafst að mæta gestunum og skrafa saman um stund. ☆ Þann 11. apríl var efnt til samkomu í Arborg Com- munity Hall. Var þar kominn séra Robert Jack fyrrum sókn- arprestur Ardalssafnaðar, er nú hingað kominn frá Islandi í þeim erindagjörðum að jbjóða fólki vinnu. Samkoman var vel sótt. Mun þar hafa verið um tvö hundruð manns. Gunnar Sæmundson setti samkomuna, bauð fólk velkomið og kynnti ræðu- manninn. Flutti svo séra Jack erindi bæði fróðlegt og skemmtilegt. Það er altaf dá- lítið spennandi að hlusta á séra Jack. Það veit enginn hvað hann kann aða segj næst! Næsti þáttur í skemmti- skránni var samsöngur „com- munty singing“ og spilaði Mrs. Einar Vigfusson á píanó- ið. Voru sungnir bæði íslenzk- ir og enskir söngvar. 1 sambandi við erindi sitt til þessa lands sýndi séra Jack íslenzka hreifimynd með enskum texta. Var það mest um ýmiskonar atvinnurekstur. Nokkuð af myndinni var samanburður á gamaldags og nýjum vinnubrögðum og sumt voru landlags myndir. Var þettað litmynd og alveg dá- samlega hrífandi. Hefðu á- horfendur gjarnan þegið að hún hefði verið helmingi lengri. Síðan bauð séra Jack þeim sem hefðu í hyggju að setja inn beiðni um vinnuna, að staldra við og skoða þau skírteini er hann hafði með- ferðis og fá frekari upplýs- ingar um málefnið. Fóru svo þeir sem rótgrón- ir eru hér í Nýja Islandi að tínast heim. Viljum við hér með þakka séra Robert Jack fyrir kom- una og sérstaklega ánægju- lega kvöld stund. ÆTLARÐU \Ð FERÐAST? Hvert sem þú ferð, spara ég þ é r peninga og létti af þér áhyggjum án auka kostnað- ar. Ég er um- boðsmaður Icelandic Airlines og allra aðal flug- og skipa- ferðafélaga; skiþulegg ferðir innanlands og erlendis. Ég leiðbeini þér varðandi vega- bréf, visa og hótel, ókeypis, og þieð 30 ára reynslu get ép ábyrgzt ágaeta fyrirgreiðslu. ARTHUR A. ANDERSON ALL-WAYS TRAVEL BUREAU 315 Horgrov* St., Winnipog 2 Office Ph. WH 2-2535 - Rot. GL 2-5444 Fró Álmennu bifreiðaleigunni h/f KLAPPARSTÍG 40 REYKJAVfK Um leið og vér bjóðum yður hjart- anlega velkomin iil gamla landsins, viljum vér minna yður á bifreiða- leigu vora, sem slaðselt er á bezta stað í bænum. Leigið yður bifreið sjálf, akið um landið og njótið fyllzta frelsis á ferðum yðar. Með því aukið þér ánægju yðar og vellíðan af íslands- verunni. Það er ódýrt að leigja bifreið hjá okkur og þér njótið fyllztu þjónusiu. Minnist ASmennu BIFREIÐALEIGUNNAR H/F KLAPPARSTÍG 40 REYKJAVÍK sími: 13776

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.