Lögberg-Heimskringla - 02.05.1963, Side 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 2. MAÍ 1963
7
Anna
Með undarlegum hætti hef-
ur þetta erindi eftir Bjarna
Thorarensen sótt á mig síð-
ustu dagana:
f>á eik í stormi hrynur háa,
hamra því beltin skýra frá, —
en þá fjólan fellur bláa,
fallið það enginn heyra má:
en angan horfin innir fyrst,
urtabyggðin hvers hefur
misst.
Bjarni gerir ekki ráð fyrir
því, að hljóðlátt fall ilmandi
smáblóms og hrun hávaxins
meiðar í stormviðri geti ver-
ið einn og sami atburður, að
eikin og fjólan geti verið eitt.
Og þó hefur fregnin um hið
sviplega lát Önnu Borg, —
meðal svo margra sorgartíð-
inda, sem gerzt hafa á skömm-
um tíma, — í senn bergmálað
sem reiðarslag um ísland og
vakið orðlausan söknuð eins
og eftir horfna blómaangan.
J>ví að Anna var einmitt
hvorttveggja, eik og fjóla, —
stórbrotin listakona, sem
hafði klifið þrítugan hamar
hraðrar vinnu til frægðar og
frama, markvís og viljasterk,
i
Borg
en um leið viðkvæm og ljúf
og gædd ógleymanlegum
kvenlegum yndisþokka. Eins
og hún kunni að taka gæfu og
gleði opnum örmum, gat hún
líka með fágætu þreki boðið
byrginn örðugleikum, sem
virtust ofurefli. Hún reyndist
fær um að standast áfall, sem
varð ekki um flúið né yfir-
stigið, og breyta afleiðingum
þess í nýja sigra á nýjum
sviðum.
Engin hætta er á því, að
ísland gleymi, hvað það lét
af hendi rakna, þegar Anna
Borg, gerðist dönsk leikkona.
En hins má ekki síður minn-
ast, hvernig Danmörk reynd-
ist henni. Framar öllu má
ísland þakka eiginmanni
hennar, hinum aldna stór-
meistara norrænnar leiklistar,
Poul Reumert, sem var henni
janfmikils virði í blíðu og
stríðu, örugg stoð og nærgæt-
inn vinur og félagi. Til hans,
af öllum þeim sem mikils
hafa misst, hljóta nú hugir
okkar að leita með innileg-
astri samúð.
Sigurður Nordal.
Morgunblaðið 19. apríl.
Fréttir frá íslandi
Alþingiskosningar á íslandi
Á fundi ríkisráðs í Reykja-
vík í dag gaf forseti íslands,
að tillögu forsætisráðherra,
út forsetabréf um að Alþingi
skuli rofið frá og með 9. júní
1963 og að almennar kosning-
ar til Alþingis skuli fara fram
þann dag.
Frétt frá ríkisráðsritara.
Tíminn 6. apríl.
☆
Á vegum bókaútgáfunnar
Eddu á Akureyri er komin út
Ferðabók eftir þau hjónin
Birgir Thorlacius, ráðuneytis-
stjóra, og frú Sigríði Thor-
lacius. Hafa þau á síðustu ár-
um gerst all víðreist um ver-
öldina, og lýsa í þessari ferða-
bók ýmsum þáttum þeirra
ferðalaga.
Þetta er allstór bók, víða
komið við og í henni allmargt
mynda. Þættirnir eru frá
þremur heimsálfum, Evrópu,
Asíu og Ameríku. Þar er lýst
nautaati á Spáni, kynnum af
blökkumönnum og Indíánum
í Bandaríkjunum, humarveið-
um í Maine, sagt frá Samar-
kand, hinni fornfrægu borg
Alexanders mikla í Mið-Asíu,
ferð frá Libanon til Bombay á
Indlandi og þaðan til Nýju
Delhi. Þá er og komið við í
Feneyjum og farið í heimsókn
í Hvíta húsið í Washington og
höll Indlandsforseta. Loks er
ferðaþáttur frá Hawaii.
☆
Fjármarka fróðasti maðurinn
Hjörleifur Sigfússon, sem
lengst af gekk undir nafninu
Marka-Leifi, var jarðsunginn
frá Glaumbæjarkirkju fyrir
um það bil hálfum mánuði.
Séra Gunnar Gíslason í
Glaumbæ jarðsöng. Mikið
fjölmenni var við útförina,
enda var Hjörleifur vel þekkt-
ur í Húnavatns- og Skaga-
fjarðarsýslum og víðar um
land.
Upprekstrarfélögin í þess-
um sýslum kostuðu útförina,
en fjallskilastjórár báru kist-
una úr kirkju.
Hann var tæplega 91 árs,
þegar hann lézt.
Með Hjörleifi er farinn einn
af sérkennilegustu mönnum
sinnar tíðar. Hann kunni upp
á sína tíu fingur öll mörk í
tveim sýslum og meira til.
Hann var hin lifandi marka-
skrá, sem kvað upp úr um
heimkynni kindarinnar jafn-
skjótt og honum var tilkynnt
markið í réttinni. Hjörleifur
fór sína síðustu ferð í Stafs-
rétt í haust, — þótt fótsár
væri hann orðinn eftir mörg
gengin spor um Skagafjörð og
yfir Vatnsskarð.
AB. 19. márz.
☆
Skálhollssöfnunin í Noregi
I einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Skúla Skúlasyni
fréttamanni Mbl. í Noregi
segir, að þar í landi hafi verið
safnað 175.000 krónum, norsk-
um — eða rúmlega einni
milljón kr. ísl. — til lýðhá-
skóla í Skálholti.
Umsjón með fjársöfnuninni
hefur séra Harald Hope á
Ytre Arna. Er hann meðal er-
lendra gesta, sem boðnir hafa
verið til þess að vera við
vígslu Skálholtskirkju 21.
júlí í sumar, en þá er jafn-
framt fyrirhugað að horn-
steinn skólans verði lagður.
Spring In Manitoba
By Gus Sigurdson
Take me back to Manitobá
Now that spring is in the air
When the frost and snow have vanished
And the fields lie damp and bare;
When the brush of blooming nature
Paints the land for weeks and weeks,
And the shades of green are showing
Growth around the ponds and creeks.
Take me back and let me wander
On a smiling April morn,
Through the fields of Manitoba,
In the land where I was born.
Take me back across the mountains
O’er the rolling prairies breast,
Back to good old Manitoba
And the Gateway to the West.
Leave me loose and let me wander
North between the lakes afar,
Let me gaze in brilliant sunshine
On the jewels that they are;
Think, how often their abundance
Fed the hungry, sick and worn
In the early days of struggle,
In the land where I was born.
Take me back to Manitoba
In the spring-time of the year
There is, Oh, so much I cherish
That my memory holds dear —
The croaking of the bull-frogs,
And the cawing of the crows —
All the wild and verile beauty
That my Manitoba knows.
At this time, when oak and poplar
Their bright greenery adorn,
Take me back to Manitoba,
To the land where I was born.
VANCOUVER B.C. — APRIL 1963.
Flugslysið
Frá bls. 5.
Jónsson, hvað hefði slegið
hann mest þegar hann kom á
slysstaðinn, svaraði hann hik-
laust: „Hvað vélin var gjör-
samlega sundurtætt".
Ekki er Mbl. kunnugt um
hver brezki farþeginn, Baume
að nafni, var, en þess má þó
geta að samkvæmt upplýs-
ingum sem blaðið hefur feng-
ið var bróðir hans á skíðum
einhvers staðar í Noregi. Ung-
frú Ilse Hochaphel var þýzk
að ætt og hafði verið ráðin
bréflega til heilsuhælisins í
Hveragerði. Rakst hún á aug-
lýsingu í þýzku blaði þess
efnis og sendi inn umsókn og
var ráðin. Hún var því þegar
hún fórst að taka við starfi í
ókunnu landi. Hún var dóttir
borgardómarans í Hilders í
Þýzkalandi. Þorbjörn Áskels-
son útgerðarmaður var á leið
frá Hollandi þar sem hann
var að ganga frá kaupum á
nýjum báti fyrir h.f. Gjögur í
Grenivík. Báturinn hélt heim-
leiðis á laugardag. Margrét
Bárðardóttir, dóttir Bárðar
Isleifssonar arkitekts fór utan
í skóla í fyrrasumar og kynnt-
ist þar unnusta sínum, dönsk
um manni. Opinberuðu þau
nýlega trúlofun sína. Að því
er Mbl. hefur fregnað hafði
Margrét nokkrum sinnum
frestað förinni heim til ís-
lands þangað til nú að hún
tók sér far með Hrímfaxa.
Westhjónin búa í Kaup-
mannahöfn, en voru á leið til
Islands til að vera við ferm-
ingu fyrsta barnabarns síns
dóttur-dóttur, 21. þ.m. Einka-
dóttir þeirra býr hér í bæ
ásamt manni sínum Marteini
Frederiksen. Frú West er ís-
lenzk en hefur um árabil ver
ið búsett í Danmörku. Frú
Anna Borg var á leið til ÍS'
lands að því er dönsk blöð
herma og hugðist m.a. heim-
sækja son sinn Stefán, sem er
stýrimaður á togaranum Pétri
Halldórssyni. Hann er nú
landi og fer til Kaupmanna'
hafnar á fimmtudag.
Áhöfn Hrímfaxa var þessi:
Jón Jónsson, flugstjóri 45
ára, kvæntur. Lætur eftir sig
eitt barn. Hefir starfað hjá
Flugfélagi íslands síðan í árs
byrjun 1948.
Ólafur Þór Zoega, flugmað-
ur 27 ára, kvæntur og lætur
eftir sig tvö börn. Hóf stör:’
hjá F.í. 1. maí 1957.
Ingi Guðmundur Lárusson
loftsiglingafræðingur 23 ára
kvæntur og lætur eftir sig
2 börn. Hóf störf hjá F.l. 15
marz 1961.
María Jónsdóilir, flugfreyja
30 ára. Lætur eftir sig dóttur
Hóf störf hjá F.í. 1. maí 1956
Helga Guðrún Henckell,
flugfreyja 25 ára. Hóf störf
hjá F.l. 1. maí 1962.
Morgunblaðið 17. apríl
Beinkröm, skyrbjúgur og
blóðleysi enn útbreidd
í Evrópu
Hungursneyð hefur ekki
komið upp í Evrópu eftir
seinni heimsstyrjöld. En
sjúkdómar, sem stafa af
skorti, eru enn almennir, með
því að lönd álfunnar eru
fjarri því að vera jafnefnuð,
og auk þess er til fátækt og
fáfræði í löndum sem eru vel
vegi stödd efnahagslega,
segir forstjóri Evrópu-skrif-
stofu Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar (WHO), dr.
Paul J. J. van de Calseyde, í
boðskap sem hann birti í til-
efni af Alþjóðaheilbrigðisdeg-
inum 7. apríl s.l.
Beinkröm (rakitis) er al-
geng um alla Evrópu einfald-
lega vegna þess að mæður
vita ekki, hvers konar mata-
ræði hæfir börnum bezt.
Sama á við skyrbjúg og blóð-
leysi, sem enn eru alltíð.
Mörg lönd hafa gefið skýrslur
um vanhöld og vöntunarsjúk-
dóma, t.d. jurtahvítuskort,
pellagra, skort á C-vítamínum
og járni, segir dr. van de
Calseyde.
Alþjóðaheilbrigðisdagurinn
7. apríl var í ár helgaður efn-
inu „Hungur — sjúkdómur
milljónanna", og var hann
einkum miðaður við ástandið
þróunarlöndunum — helm-
ingur jarðarbúa fær of lítið
að borða, vegna þess að ým-
ist er magn eða gæði matar-
ins ófullnægjandi.
En löndin, sem lengra eru
a veg komin, hafa einnig sín
næringarvandamál. Dr. van
de Calseyde leggur áherzlu á,
að lausnin á vandamálum
vanhalda og rangrar næring-
ar liggi fyrst og fremst á
sviði uppfræðslu almennings
og menntunar lækna og
hjúkrunarkvenna á þessum
tiltekna vettvangi.
Sé fáfræði að nokkru leyti
orsök vöntunarsjúkdóma í
Evrópu, hvað á þá að segja
um ofát og leti? Þessi fyrir-
bæri eiga sök á hinum fjöl-
mörgu tilfellum óffitu, sem
læknar verða nú að fást við.
Þau stuðla líka að alvarleg-
ustu sjúkdómum Evrópu
hjarta- og æðasjúkdómum.
í löndum sem búa við góð
lífskjör er offita algengasti
næringarsjúkdómurinn og á
meiri sök á vanheilsu manna
ep samanlagðir þeir sjúkdóm-
ar sem starfa af bætiefna-
skorti. Það er sérstaklega
eftirtektarvert, að offita með-
al barna og unglinga færist
stöðugt í vöxt í öllum löndum
Evrópu.
Civil Defence says: —
It is better to be prepared
and not need it, than to need
it and not be prepared.
Meiro Civil Defence,
1767 Portage Avenue,
Winnipeg 12 — TUrner 8-2351
Enginn skyldi trúa þeim
sem tvær svuntur brúka.