Lögberg-Heimskringla - 09.05.1963, Síða 7
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 9. MAÍ 1963
7
Fréttir fró íslandi
sem blaðið hefur aflað sér í
dag.
Þinglausnir
Alþingi lauk í gærkvöld og
munu þinglausnir farar fram
í dag. Lýkur þá síðasta þingi
þess kjörtímabils, en eins og
kunnugt er hefur þing verið
rofið og alþingiskosningar á-
kveðnar 9. júní næstkomandi.
Tíminn 20. apríl.
☆
6 brezkir togarar á Akureyri.
Hér eru nú sex brezkir tog-
arar í höfn. Er það allóvenju-
legt og líklegast einsdæmi, að
svq margir erlendir togarar
hafi komið hingað í einu.
Flestir þessara togara eru
komnir hingað þeirra erinda
að fá vatn, olíu og vistir, eftir
hrakninga og fiskileysi und-
anfarið.
Tíminn 21. apríl.
☆
Veírarlangt
Sauðárkróki, 26. apríl.
Er Þórólfur bóndi Helga-
son í Tungu fór að huga að
hrossum eftir stórhríðarhvell-
inn, sem gerði um páskana,
fann hann tvær kindur úti-
gengnar í svonefndu Stakk-
felli. Þetta voru tveggja vetra
ær.
Kindurnar reyndust vera
eign Sigurðar B. Magnússon-
ar, bónda á Veðramóti í
Gönguskörðum. Ærnar líta
vel út að sögn.
Mun það einsdæmi að kind-
ur gangi úti vetrarlangt í há-
fjöllum Staðarafréttar, a. m.
k. nú hin síðari ár.
☆
Brezkur togari tekinn
í Iandhelgi
Mikla athygli vekur nú yf-
irgangur Breta. íslenzkt varð-
skip kom að bugtum togara
út af Skaftarósi í landhelgi.
Togarinn flúði en varðskipið
elti. Þá kom brezkt herskip í
leikinn, tók skipstjórann úr
hinum flýjandi togara 'og fór
með hann til Bretlands. En
íslenzka varðskipið tók þá
togarann og fór með hann til
Reykjavíkur og þar er hann.
Tíminn 1. maí.
☆
Sæluhúsið hvarf
Vík, 23. apríl.
Því var veitt athygli, er
1 páskahretið var gengið yfir,
að skýlið undir Hafursey sást
ekki. Héldu menn fyrst,* að
fennt hefði yfir það, en bíl-
stjóri, sem kom yfir sandinn
í gær, sá enn ekkert á húsið,
þrátt fyrir hlýindin undan-
farið, var farið að aðgæta
þetta. Kom þá í Ijós, að húsið
hafði fokið og gereyðilagzt í
óveðrinu. Húsið var nýtt, vígt
í fyrra, og talið mjög traust.
Veggir þess voru úr stein-
steypu; steyptum flekum, sem
♦ boltaðir voru saman. Þakið
i hefur fokið af í heilu lagi og
síðan brotnað og veggir húss-
ins hafa síðan fokið um koll.
Inni í húsinu voru m. a. vönd-
uð gastæki, til eldunnar, upp-
hitunar og ljósa, dýnur og
teppi, matvæli o. fl., sem að
gagni kemur þreyttum ferða-
löngum. Er þetta allt ónýtt
með öllu. — Hús þetta var
eign slysavarnadeildarinnar
hér, Vegagerðarinnar, Slysa-
varnafélags Islands og sýslu-
sjóðs.
Tíminn 24. apríl.
☆
Jarðhræringar nyðra
Klukkan 21,13 í gærkvöldi
varð jarðskjálfta vart á Norð-
urlandi, sem mun hafa átt
upptök sín í mynni Skaga-
fjarðar, eða á sömu slóðum og
kippirnir, sem urðu í síðustu
viku marzmánaðar. Fjarlægð
jarðskjálftans frá Reykjavík
var 245 km., en hans varð
frekar vart á Hrauni á Skaga,
Grenivík og Siglunesi. Hér
var aðeins um minni háttar
kipp að ræða, og mun hvergi
hafa orðið tjón af hans völd-
um, eftir þeim upplýsingum
Tíminn 23. apríl.
☆
Húnavaka
Húnavakan stendur yfir á
Blönduósi þessa dagana og er
mjög fjölsótt og á hverjum
degi sýndir tveir eða þrír
sjónleikir, söngskemmtanir,
dansleikir og fleira.
Það er orðin föst venja, að
Ungmennasamband Austur-
Húnvetninga gefur út ársrit,
sem heitir Húnavaka, og kom
þriðji árgangur þess út núna
í byrjun húnavökunnar. Rit-
stjórn annast Þorsteinn Matt-
híasson, skólastjóri, og Stefán
Á Jónsson, kennari, Efni rits-
ins er allfjölbreytt, í senn frá-
sagnarþættir af öldnum Hún-
vetningum, ritgerðir, sögur og
ljóð. Er ritið vel úr garði gert
og með allmörgum myndum,
rúmlega hundrað blaðsíður að
slærð.
Tíminn 19. apríl.
Þar sla enn íslenzk hjörtu
Það virðist hafa vakið
mikla athygli manna í Glou-
cester í Massachusetts, Banda-
ríkjunum, þegar Lagarfoss
var þar í fyrra mánuði á dög-
um „hafnarverkfallsihs í New
York og öðrum hafnarbæjum
á austurströndinni og við
Mexikóflóa“, eins og sagt var
í fréttum þá, en hafnarverk-
fallið náði bara ekki til
Gloucester — þar var ekkert
verkfall, þar var unnið og vel
unnið, og er það haft eftir
skipstjóranum á Lagarfossi,
Birgi Thoroddsen, í viðtali
við hann, að meðal hafnar-
verkamanna þar og sjómanna
ríkir félagslyndi og glaðlyndi,
og svo vel sé unnið, að til
fyrirmyndar sé.
Nú mun það ekki alveg eins
dæmi, að skip frá Eimskipa-
félagi fslands komi til Glou-
cester — Lagarfoss kom þar
sem sé einnig 7. des. og hafði
stutta viðdvöl — en koma
hans nú í janúar s.l. þótti
nógu mikill viðburður þar til
þess að „Gloucester Daily
Times" birti viðtal við „skipp-
er Thoroddsen“ í tilefni af
komunni, og er það birt undir
þriggja dálka fyrirsögn með
tveimur myndum af skipinu.
Og mjög greinilega kemur
fram í fyrirsögn greinarinnar
og viðtalinu, að bæði hinn
„bláeygi skipstjóri, sem lítur
út fyrir áð vera miklu yngri
en 51 árs“, eins og hann
kveðst vera, — og skipið
sjálft, hafa vakið athygli fyrir
glæsileik. Er skipinu lýst í
viðtalinú, aldri þess og hvar
það sé smíðað og stærð — að
það hafi komið til Gloucester
eftir 7 daga rólega ferð frá
íslandi með eina milljón
punda af frostnum fiskflök-
um, — að skipið hafi farþega-
rúm fyrir 12, farþegaklefarnir
séu búnir öllum nútímaþæg-
indum og á því séu tvær þern-
ur — og síðast en ekki sízt
hefur það vakið mikla aðdá-
un og athygli, hve skipið sjálft
og allt á því var tandurhreint,
„sparklingly clean“, eins og
það er orðað í viðtalinu.
Eftir að blaðið hefur getið
nokkru nánara um skipið og
siglingar þess og annarra
skipa E. í. segir,
að í þessari ferð hafi verið
landað úr Lagarfossi meira
fiskmagn en dæmi séu til
í sögu Glouceler og hafi
toilurinn numið 38.000 doll-
urum.
„GLOUCESTER ER
GÓÐ HÖFN".
Birgir segir í viðtalinu, að
Gloucester sé góð höfn og hafi
hann aldrei séð eins snör
handtök við affermingu og
þar, og hann segir að við
blaðamanninn:
„Þið getið haft það eftir
mér, að það sé mjög líklegt
að við komum hingað aftur“.
ÞAR ER ÍSLENZK
„NÝLENDA"
En meðal annarra orða,
Gloucester er fiskimannabær,
frægur í söng og sögu, bær,
sem hefur átt sína seglbáta-
og skútuöld og hefur lengi
verið mikill togarabær. Um
áratuga skeið hafa íslending-
ar hjálpað þar til að gera
garðinn frægan. Þar er nefni-
lega íslenzk nýlenda. Þangað
réðu sig íslenzkir sjómenn.
Það er orðið langt síðan þeir
fyrstu settust þar að. Og fleiri
komu í kjölfarið. Ýmsir stofn-
uðu þar heimili og þar slá
ennþá íslenzk hjörtu, sem
hrifust af íslenzka fánanum á
Lagarfossi, eins og fréttamað-
ur Gloucester Daily News
segir, sem birtir mynd af fán-
anum við hún í blaði sínu.
Vísir 7. febr.
Skrósetja efni íslenzkra
blaða og tímarita
Undanfarin ár hefur verið
unnið á Landsbókasafninu að
skrásetningu efnis í íslenzk-
um blöðum og tímaritum.
Þetta er seinlegt verk, sem
stundum hefur orðið að víkja
fyrir fjölmörgum öðrum verk-
efnum. Því miðar samt stöð-
ugt áfram svo að nú er senni-
lega búið að skrásetja á um
100 þúsund kort, efni 49 tíma-
rita og fylgirita, en meðal
þeirra eru öll helztu ritin,
sem komið hafa út.
Auk þess er búið að skrá
efni Vísis og Morgunblaðsins
frá byrjun til ársins 1944.
Verið er að skrá efni Tímans
og er lokið við að skrá efni
blaðsins til ársins 1940. Ætl-
unin er að efni allra dagblaða
frá upphafi verði skráð í
fyrstu lotu, en síðan verði
byrjað á annarri umferð, og
lokið við það, sem eftir er.
Jafnframt hefur Landsbóka-
safnið í hyggju að fá dagblöð-
in til að annast skráningu
efnisins eftirleiðis , vegna
þess að bókaverðir Lands-
bókasafnsins hafa ýmsum
öðrum hnöppum að hneppa.
Þeir líta svo á, að þetta yrði
pkki nema augnabliksverk á
degi hverjum. Hins vegar
geta þeir ekki annazt daglega
skráningu, þar sem blöðin
berast þeim ekki í hendur
nema með nokkurra mánaða
millibili.
Finnur Sigmundsson hóf
þessa skráningu og vann að
henni þar til hann varð lands-
bókavörður. Um skeið vann
Karólína heitin Einarsdóttir
að skráningunni, en nú starfar
Haraldur Sigurðsson bóka-
vörður eingöngu að þessu.
Hann kveðst skrá öll eftir-
mæli og afmælisgreinar, alla
ritdóma, leikdóma og list-
gagnrýni, ritgerðir, sem ekki
fjalia um dægurmál, utan
prógrammgreinar stjórnmála-
foringja. Einnig eru skráðar
helztu fregnir af þeim mönn-
um, sem helzt má ætla að
framtíðin láti sig skipta. Yfir'-
leitt má segja að þarna séu
skráðar allar greinar, sem
birtar eru undir nafni höfund-
ar, ef þær fjalla ekki um mál
dagsins í dag.
Þess vegna er t. d. forystu-
greinum dagblaðanna sleppt
með öllu. Yrði reyndar óhægt
um vik við skráningu þeirra,
þar sem margar bera sömu
heiti, og svo er það oftast að
heitin gefa ekki mikið til
kynna um efni þeirra. Þá
myndi skráning þeirra verða
gífurlegt verk, þar sem þegar
hafa birzt um 50 þúsund for-
ystugreinar í íslenzkum dag-
blöðum. Þýddar sögur og
kvæði eru skráð til að hægt
sé að fylgjast með því hvaða
erlendir höfundar eiga verk
sín eða hluta þeirra þýdd á
islenzka tungu.
íslenzkar blaða- og tíma-
|ritsgreinar eru ósjaldan merk-
ar heimildir um menn og
málefni, stundum þær einu,
sem völ eru á. Það er því til
mikils hagræðis fyrir þá, sem
þurfa að styðjast við heimild-
ir þessar að hafa fengið jafn
ítarlega spjaldskrá sem þessa.
Hún flýtir fyrir þeim og auð-
veldar starfið um leið og hún
ætti að tryggja að ákjósan-
legt efni þurfi ekki að fara
framhjá þeim.
Vísir.
Grafa þeir milljarð?
Framhald frá bls. 3.
Ekki var þá unnt að rann-
saka staðinn nánar, en fyrir
nokkrum dögum héldu þeir
enn á vettvang, og þá með
aðra tegund mælitækja en
fyrr. Sýndu þessir mælar
éinnig málm í jörðu á sama
stað. í dag fóru þeir svo aftur
á sandinn og að þessu sinni
með tæki til að bora niður í
sandinn. Er ætlunin að ná
kjarna úr því, sem þarna er
að finna, til þess að ákvarða,
! hvort þar sé um að ræða flak
„Het Wapen van Amster-
dam“. Má vera, að nokkur bið
verði á því, að upp verði gefið,
hvað þarna er að finna, ef
líkur eru á því að hið dýr-
mæta flak sé fundið.
Eins og fyrr segir, var
farmurinn talinn geysilega
dýrmætur. Fornar heimildir
telja, að hann hafi verið met-
inn á 43 tunnur gulls, en með
núgildandi verðlagi vantar
ekki ýkja mikið á, að það
jafngildi einum milljarði ís-
lenzkra króna. Þótt eitthvað
hafi rekið úr farminum og
annað skemmzt, bætist nú það
við, að þarna er um mjög
merkar fornminjar að ræða,
og kunnugir telja, að líkur séu
á, að flakið sé mjög lítið
skemmt í sandinum, skipið sé
þar jafnvel í svo gott sem
heilu lagi. Reyndist svo,
myndi hér um að ræða ein-
hvern merkasta fund af slíku
tagi á síðari árum og lítill
vafi, að sú „fiskisaga“ flygi
út um allan heim.
Sem fyrr segir, er staður-
inn, sem þeir félagar leita nú
á, um 15 kílómetrum vestan
íngólfshöfða. Það er rétt aust-
an óss Skeiðarár, eins og
hann er í dag. Er þarna mjög
erfitt um v.ik og alls ekki
fært á staðinn, nema á belta-
farartækjum. Þeir félagar
hafa tvo beltisbíla staðsetta á
Núpsstað og í þeim ösla þeir
yfir vötn og sandbleytur. Mun
til' dæmis alls ófært á hestum
á staðinn. Verða þeir þarna
því í ró og næði.
Staðurinn er á Skaftafells-
fjörum. La'ndeigendur hafa
sett það skilyrði, að leitar-
menn séu ekki á þessum slóð-
um, um það leyti, er selurinn
kæpir, og eru tímatakmörkin
um 20. apríl.
Tíminn 23. apríl