Lögberg-Heimskringla - 10.10.1963, Síða 1
Högber g; - ^eimsfer ingla
Stofnað 14. ]an.. 1888 Stofnuð 9. sept., 1886
77. ARGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 10. OKTÓBER 1963 .-va&gS*. NÚMER 38
Dr. K. J. Austman látinn
Hinn kunni og vel metni
læknir Kristján J. Austman
varð bráðkvaddur í Toronto,
á mánudaginn 7. okt. 1963,
en þar voru þau hjónin í
heimsókn hjá Kristjáni syni
s í n u m . Banameinið var
hjartabilun.
Dr. Austman var fæddur í
Glenboro, Man., 25. sept. 1890.
Foreldrar hans voru Jón
Ólafsson, alþingismaður og
ritstjóri, og Þóra Þorvarðar-
dóttir ættuð úr Borgarfirði
suður. Kristján var stjúpson-
ur Jóns Austmans, er gekk
honum í föðurstað. Fjölskyld-
an átti heima úti á landi um
skeið, en flutti síðan til
Winnipeg 1912 og þar hlaut
Kristján menntun sína. Hann
lauk Bachelor of Science
prófi við Manitoba háskólann
og gekk síðan í Kanadíska
herinn, vorið 1916 sem undir-
foringi.
Vegna heilsubilunar fékk
Kristján lausn úr herþjónustu
haustið 1917, og þegar heilsan
leyfði hélt hann áfram námi
og lauk prófi í læknisfræði
1921. Um þetta leyti kvæntist
hann Jólöfu Thorsteinsdóttur
Oddssonar fasteignasala hinni
ágætustu konu og lifir hún
mann sinn.
Dr. Austman stundaði fyrst
lækningar í Winnipeg í tvö
ár og síðan í Wynyard í 10 ár.
Þá fór hann til Englands til
sérfræðináms í augna- eyrna-
og nefsjúkdómum og rak síð-
an lækningastofu í Medical
Arts byggingunni í fjölda
mörg ár. við ágætan orðstír.
Þegar síðari heimsstyrjöldin
hófst þjónaði hann í Kana-
díska hernum sem Medical
Officer. Og varð síðan læknir
við hermannaspítalann í Deer
Lodge, Winnipeg.
Dr. K. J. Auslman
Hann lifa einn sonur,
Kristján í Toronto; tvær
dætur, Mrs. Edward Purdy
(Thora) í California og Mrs.
Joseph Chrabaszcz í Winni-
peg; þrjú barnabörn; ein syst-
ir, Mrs. Ásta Oddson í Winni-
peg og einn bróðir Jón Aust-
man á Deer' Lodge spítalan-
um.
Dr. Kristján Austman var
gáfaður maður, átti mikið og
fágætt bókasafn, unni góðum
bókmenntum, ekki sízt ís-
lenzkum; hafði þýtt skáldsögu
og fleira eftir Jóhann Magnús
Bjarnason. Hann var og gef-
inn fyrir ættfræði og liggja
eftir hann handrit í þeirri
grein.
Útförin fer fram frá Fyrstu
lútersku kirkju kl. 2 e.h. á
fimmtudaginn; Dr. Valdimar
J. Eylands flytur kveðjumál.
Bardals annast útförina.
Fréftir frá fslandi
Búa á víxl í London
og Moskvu
S o v é z k i píanóleikarinn
Vladimir Ashkenazy skýrði
frá því í dag, að hann og kona
hans, Þórunn Jóhannsdóttir,
hefðu ákveðið að búa á víxl í
London og Moskvu. „Skyldur
mínar við ættjörðina sitja í
fyrirrúmi“, sagði Ashkenazy,
„en þegar konan mín og ég
fórum til Moskvu snemma á
þessu ári, söknuðum við son-
ar okkar mjög“. Ashkenazy
hefur skýrt vinum sínum frá
því, ,að hann vilji að sonur
hans, Vladimir, alist í Bret-
landi og gangi í skóla þar en
ekki í Sovétríkjunum.
Ashkenazy er nú í London
og hefur leikið á nokkrum
hljómleikum þar. Hann og
kona hans tóku ákvörðun um
að stofna tvö heimili, annað í
London, hitt í Moskvu, eftir
mikla umhugsun.
Vísir 24. sept.
☆
Safna fé til Skálholtsskóla
í Danmörku hefur verið
sett á fót nefnd í þeim tilgangi
að styrkja byggingu skóla í
Skálholti.
Hér fer á eftir kafli úr bréfi
nefndarinnar:
„1 þakkarskyni fyrir hið
mikla framlag Islands til nor-
rænnar menningar, hafa verið
settar á fót nefndir í Finn-
landi, Noregi og Danmörku, í
þeim tilgangi að safna fé til
stuðnings hugmyndinni um
skóla í Skálholti. Þegar haft
er hugfast hið nána samband
íslands og Danmerkur um
aldaraðir, hlýtur að þykja
mjög eðlilegt, að Danir vilji
einnig leggja skerf til endur-
reisnar Skálholts. Til þess að
skerfurinn verði af mörkum
lagður, er nefndinni komið á
fót. Markmiðið er að gjöf
Dana nemi að minnsta kosti
200 þúsund d. kr.“.
Mgbl.
☆
Grundarmál
1 gær komu til Akureyrar 5
hæstaréttardómarar, þ e i r
Lárus Jóhannesson, forseti
dómsins, Árni Tryggvason og
Gizur Bergsveinsson og vara-
dómararnir Ármann Snævarr
og Þórður Björnsson. Auk
þess komu 3 hæstaréttarlög-
menn, Benedikt Sigurjónsson,
Páll Lindal og Páll S. Pálsson,
og Hákon Guðmundsson,
hæstaréttarritari.
I morgun fóru þeir fram í
Eyjafjörð, því að þar eru
málaþrætur uppi. Á Grund
eru tvö býli. Eigendur að
Grund I eiga Holt, hálft Holts-
kot og helming af jörðinni
Miðhúsum. Deilan er svo risin
milli eigenda á þessum þrem->
ur jörðum og bóndans á hinu
Grundarbúinu. vegna landa-
merkja.
Dómþing í hæstarétti verð-
ur svo sett kl. 10 í fyrramálið
í Landsbankasalnum á Akur-
eyri í Grundarmálinu. Og er
það í fyrsta skipti í sögunni
sem dómþing Hæstaréttar er
háð utan Reykjavíkur. Og er
það skv. laga heimild frá í
vetur. Er þetta sögulegur at-
burður.
Mgbl. 25. sept.
☆
Hríðarveður gekk yfir
allt land í gær
1 gær var vonzkuveður um
land allt með snjókomu eða
slyddu. Lokuðust margir fjall
vegir Norðanlands, Vestan og
Austan, svo sem Siglufjarðar-
skarð, Þorskafjarðarheiði
Möðrudalsöræfin og Odds^
skarð. Vaðlahéiði og Öxna-
dalsheiði voru þó færar stór
um bílum með ‘ keðjum og í
gærkvöldi var orðið eins
ástatt á Holtavörðúheiði, hún
var vart fær smábílum. Hellis-
heiði var vel fær, en dálítið
hált þar.
Þetta óveður gengur yfir á
versta tíma, því víðast hvar á
landinu eru göngur og réttir.
og hafa gangnamenn fengið
versta veður á fjöllum. Sunn-
anlands, þar sem var slydda á
láglendi, en snjókoma á fjöll-
um og uppsveitum, voru
gangnamenn á leið með
rekstra sína niður og hrepptu
hrakninga. T.d. urðu Biskups
tungnamenn að moka sér leið
með fjallsafnið niður Blá-
fellshálsinn í fyrradag og voru
í gær á leið niður byggðina
Framhald á bls. 2.
When Dr. Baldur Kristjan-
son was named executive di-
rector of the Manitoba Econ-
omic Consultative Board re-
centy, Ottawa reporters de-
scribed the appointment as an
“important catch” for Prem-
ier Roblin.
Those who know Dr. Krist-
janson won’t quarrel with this
appraisal of his worth. He is
highly regarded as a planner,
economist, and administrator.
His arrival here from his
government post in Ottawa
/#
Kristjanson Influence
By Val Werier
ii
one,” he says, “you make a
phone call in the evening.”
The story of Dr. Baldur
Kristjanson begins at Gimli,
where he and his five broth-
ers and two sisters were born.
They derived their strong
sense of social consciousness
from their parents, who grew
up in proverty and emigrated
to Gimli from Iceland before
the turn of the century.
Books rate high
As with many Icelanders
who emigrated here, books
rated high with the Kristjan-
sons.
Their mother, still in Gimli,
explains the emphasis put on
education: “It was the only
thing we thought couldn’t be
Framhald á bls. 2.
Dr. Baldur Kristjanson
spells a renewal of what can
oe called the “Kristjanson in-
fluence” in public affairs. He
joins five other brothers in
the west in public service. All
have taken Ph.D. courses in
agricultural economics, of
whom two still have to write
their theses.
His brother economists are
Chris, chief of the economics
division of Manitoba Hydro;
Al, senior rural development
specialist for Manitoba; Bur-
bank, deputy assistant agri
culture minister of Manitoba;
Larry, executive assistant to
the chief commissioner of the
Canadian Wheat Board; Leo
research associate at the cen-
tre for community studies at
the university of Saskatche-
wan.
National assei
Some regard the Kristjan-
son family in the light of a
national asset. It is a phen-
omenon which arouses awe
in the minds of other econo-
mists and sometimes gives the
impression that the Kristjan-
son family has cornered the
market.
“It’s a little embarrassing,”
says one brother. “We bump
into each other all over the
place in our work.”
There are advantages too.
“If you’re up against a tough
Pan American Games
1967 Society
Stjórnarvöld landsins,
fylkja og borga í Kanada eru
nú þegar farin að undirbúa
meiri háttar hátíðarhöld fyrir
árið 1967 í tilefni þess að þá
verða liðin 100 ár frá því að
austurfylki Kanada samein-
uðust og öðluðust stjórnarskrá
The British North America
Act — er síðan hefir verið í
gildi fyrir þau fylki sem síðar
bættust við — allt landið.
Fyrir nokkrum mánuðum
tókst borgarstjóra Winnipeg,
Stephen Juba að koma því til
leiðar að íþróttasamkeppni
allra landa vesturálfunnar —
Pan-American Games, sem
þreytt eru fjórða hvert ár
færu í þetta skipti fram 1
Winnipetg. Til þess að þetta
megi heppnast og fara vel
fram er þörf á geysimiklum
undirbúningi; og hefir Mr.
Juba í huga að mynduð verði
1500 manna nefnd til að ann-
ast hann. En nú þegar hefir
hann fengið nokkra menn sem
kunnir eru fyrir skipulegging-
ar hæfileika sína til að taka
sæti í 25 manna nefnd bæði
til að útnefna fólk í þessa
1500 manna nefnd og sem
aðal framkvæmdarnefnd
þessa starfshóps, er nefnist,
Pan-American Games 1967
Society.
Dr. P. H. T. Thorlakson var
einn hinna fyrstu er Stephan
Juba borgarstjóri leitaði til,
vegna þess hve hann er
kunnur fyrir hæfileika sína og
fórnfúst starf í þágu menn-
ingar- og framfaramála borg-
arinnar og hefir nú Dr. Thor-
lakson tekið sæti í stjórnar-
nefnd Pan-American Games
1967 Society.