Lögberg-Heimskringla - 10.10.1963, Blaðsíða 8

Lögberg-Heimskringla - 10.10.1963, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 10. OKTÓBER 1963 Úr borg og byggð Messur á þakkargerðar sunnudaginn 13. október í Unitara kirkjunni á Banning St., á ensku kl. 11 f.h., á ís- lenzku að kveldinu kl. 7. Séra Philip M. Pétursson prédikar. Valin söngur við báðar mess- ur. Sunnudagsskólinn hefst kl. 11 f.h. ☆ ' Magnus (Mike) Magnusson, að 633 Oakenwald Ave., Fort Garry, hefir boðið sig fram til að sækja gegn bæjarstjóran- um í Fort Garry í kosningun- um 23. október. *Mr. Magnusson er fæddur að Lundar en ólst upp og menntaðist í Winnipeg; hann er sölumannaformaður hjá Moores Business Forms Ltd. Er kvæntur og á fjóra syni. Hann hefir lengi haft áhuga fyrir bæjarmálum. ☆ St. Johns Guild of the Childrens Hospilal will hold it’s annual rummage sale in the Hudson’s Bay Auditorium, Friday Oct. llth from 11 a.m. to 2 p.m. ☆ Gunnlaugur og Svanfríður Holm, sem lengi ráku mynd- arbú í Víðirbyggð í Manitoba, en hafa dvalið í allmörg síð- astliðin ár í Vancouver, eru nú komin til Winnipeg og dvelja um óákveðin tíma hjá dóttur sinni Mrs. Fanney Helgason að 573 Simcoe Street. ☆ Úr bréfi frá Rvík 26. sept. Verkamennirnir sem komu frá Kanada s.l. vor eru flestir enn hér á landi, og eru nú ýmsir þeirra farnir að láta ágætlega af sínum hag. — Ferðamenn frá útlöndum hafa verið fleiri á ferð hér um ís- land, en nokkru sinni áður. Og er mikið útlit fyrir að landið sé mjög vaxandi ferðamanna land. Bændahöllin nýtur vin- sælda sem hótel. — Kær kveðja. — V.G. ☆ Séra Guðmundur P. John- son er ný fluttur og hið nýja heimilisfang hans er: P.O. Box 642, Blaine, Wash. — Sími: ED 2-7676. ☆ Úr bréfi frá Mikley 29. sept. Misprentast hefir nafn á gjafalista Betels, sem ég bið þig að leiðrétta. Það á að vera Thorsteinn Finnur Elíasson, en ekki Eyjólfsson. Við Steini eins og við vinir hans kölluð- um hann, lékum okkur saman sem drengir og vorum góðir vinir. Blessuð sé minning hans. — Fiskveiðarnar í kringum okkar hjartfólgnu eyju hefir gengið vel það sem af er af þessari vertíð, og allir ánægð- ir og þá er mikið sagt. — Jóhann K. Johnson. T ryggingarsjóður Lögbergs-Heimskringlu Séra Kolbeinn Simundsson, 9221 — 14th Ave., S.W. Seattle, Wash. — $10.00. Meðtekið með þakklæti K. W. Johannson, féhir,ðir. ☆ The Women's Association of the First Lutheran Church will hold a home baking sale at SimpsonsJSears on Friday, Oct. llth from 3.30 p.m. to 9 p.m. ☆ Bréf frá Mrs. Kristínu Thorsteinsson Gimli, 17. sept. 1963 Kæra Mrs. Jónsson. Mér þykir fyrir, að heilsu minnar vegna, er mér ekki unnt að halda áfram að inn- kalla áskriftargjöld fyrir Lög- berg-Heimskringlu. Það hefir jafnan verið mér mikið ánægjuefni að geta orðið blaðinu að liði og óska því að heilum hug góðs gengis í framtíðini. * * * Þakkarorð Ég hefði viljað skrifa langa grein um Kristínu Thorsteins- son, um áhuga hennar fyrir íslenzkum þjóðræknismálum, tryggð hennar við íslenzkuna og ómetanleg störf hennar fyrir Lögberg-Heimskringlu. Hún skrifaði um langt skeið vinsælar fréttagreinar úr byggð sinni, útvegaði nýja kaupendur fyrir blaðið, inn- kallaði áskriftargjöld án end- urgjalds og lagði fram fé í Tryggingarsjóð blaðsins, í einu orði sagt, er einn ágæt- asti stuðningsmaður Lög- bergs-Heimskringlu. Við þökkum henni innilega fyrir hin miklu störf hennar og stuðning og biðjum henni blessunnar. Fyrir hönd útgáfunefndar Lögbergs-Heimskringlu Ingibjörg Jónsson. ☆ Ekki orðin ein North American Publishing Co., Ltd., Sem féhirðir Þjóðræknis- félags íslendinga í Vestur- heimi, er mér sérstaklaga Ijúft að framvísa framlagi félagsins fyrir yfirstandandi ár, að upphæð fimm hundruð dollurum ($500.00), til styrktar og eflingar vikublaðinu Lög- bergi-Heimskringlu. Með framlagi þessu eru það $4,000.00 alls sem félagið hef- ur lagt til tryggingar útkomu íslenzks blaðs vestan hafs, og ber að virða að makleikum. MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. Heimili 686 Banning Street. Sími SUnset 3-0744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: A ensku: kl. 9.45 f. h 11.00 f. h. Á íslenzku kl. 7 e. h. Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h. More Echoes by Paul Bjarnason A limited edition of numb- ered copies obtainable only from the author. Price $4.50 1016 West 13th Avenue, Vancouver 9, B.C. ☆ Norlhern Lighis, Icelandic poems translated by Mrs. Ja- kobina Johnson. Price $2.50. Only a few copies left. Write to Mrs. Johnson, 3208 N.W. 59th St., Seattle 7, Washing- ton, U.S.A. ☆ Civil Defence says: — If you are exposed to radio- active fallout; remove cloth- ing, wash off exposed parts of the body, put on clean clothing, get under shelter. Meiro Civil Defence, 1767 Portage Avenue, Winnipeg 12 — TUrner 8-2351 ☆ Dánarfregnir Percy G. Helgason, að 573 Simcoe St., Winnipeg andað- ist á Victoria spítalanum föstudaginn 4. október 1963, 60 ára að aldri. Hann lifa eiginkona hans Fanney; einn sonur, Dale; einn bróðir, Oscar í Winnipeg; tvær syst- ur, Mrs. Hugh Moffat (Olga) í Winnipeg og Mrs. W. E. Reynolds í Nashville, Ten- nessee. Útförin fór fram á þriðjudaginn — bálför. Séra Philip M. Pétursson flutti kveðjumál. ☆ Frétfir frá íslandi Framhald frá bls. 4. hrundu úr fjallinu og lentu á kaffiskúr, þar sem þeir höfðu verið að drekka kvöldkaffi sl. þriðjudagskvöld. Það varð þeim til björgun- ar, að verkstjórinn kallaði þá út úr skúrnum til að taka vörur af vörubíl og voru þeir að þeirri iðju, þegar stein- arnir komu fljúgandi. Helli- rigning var og því ólíklegt að mennirnir hefðu verið úti við að öðrum kosti. Þegar mennirnir heyrðu gnýinn af grjóthruninu hlupu þeir undir kaffiskúr, sem er rétt hjá hinum. Héldu þeir þar til unz skriðan hafði geng- ið yfir. Meira en 9 tímar voru liðnir frá síðustu sprengingu svo skriðan kom á óvart. Þegar að var gáð kom í ljós, að stærri steinninn um 70—80 pund að þyngd, hafði lent á þaki kaffiskúrsins og í gegn á sæti eins vegavinnumannsins, sem þar hafði setið um tveim mínútum áður, og fór steinn- inn svo út um skúrhliðina og valt niður í fjöru, sem er 30—40 metrum neðar. Hinn steinninn, um 40 pund, fór inn um skúrhliðina og stanzaði á miðju gólfi. Mennirnir, sem þarna voru telja fullvíst, að minnsta kosti fjórir þeirra hefðu orðið fyrir steinunum, ef þeir hefðu ekki verið kallaðir út. — Þeir voru alls um 10 í skúrnum. Mgbl. 24. sept. ☆ Nýjar bækur Hiá Helgafellsútgáfunni í Reykjavík er í haust von á bókum eftir tvo höfuðskáld- snillinga okkar, þá Davíð Stefánsson og Halldór Kiljan Laxness, er þó hjá hvorugum um skáldrit að ræða. Bók Kiljans er einskonar minningar um menn sem höf undurinn hefur kynnzt eða átt samskipti við á lífsleiðinni. — 300 bls. Bók Davíðs skálds verður einnig allstór bók. Það eru rit- gerðir og greinar sem höfund- urinn hefur skrifað á ýmsum árum, fáar þeirra hafa birzt áður á stangli í ritum, en flestar hafa hvergi birzt áður. Vísir 25. sept. LÖGBERG-HEIMSKRINGLA Eina íslenzka vikublaðið í Norður Ameríku Styrkið það, Kaupið það Lesið það Það verður hverjum að list sem hann leikur. LASSES on 30 DAYTRIAL PrófiS sjón yðar — SPARIÐ $15. Sendið nafn yðar, addressu og aldur, og við sendum þér Home Eye Tester, nýustu vörubók, Frí* °8 fullkomnar 1 **• uppdýsingar. Agents Wantec* VICTORIA OPTICAL CO., Dept. 658 'T6V? Yonge St. Toronto 2, Ont. ROSE THEATRE SARGENT ot ARLINGTON AIRCONDITIONED CHANGE OF PROGRAM EVERY FOUR DAY5 Foto-Nite Everv Tuesday and Wednesdav SPECIAL CHILDREN'S MATINEE Every Saturday Why not visil ICELAND now? ALL-WAYS Travel Bureau Lid„ 315 Hargrave Street, Winnipeg 2, Man., WHitehall 2-2535, is the recognized Agent of all steamship- and airlines, including Icelandic Airlines, and has assisted more Iceland- ers in Manitoba with their travel arrangements than any other travel agent. Mr. P. E. Salomonsen and Mr. A. A. Anderson, both Scandi- navians, will render you every assistance in connection with your travel, in an endeavour to have your trip as comfort- able and pleasant, yet in- expensive, as possible. Consult ALL-WAYS Travel Bureau Ltd. 315 Hargrave Street, Winnipeg 2, Man. WHilehall 2-2535 UMBOÐSMAÐUR LÖGBERGS-HEIMSKRINGLU á ÍSLANDI SINDRI SIGURJÓNSSON póstafgreiðslum. P.O. Box 757. Reykjavík Verð Lögbergs-Heimskringlu er kr. 240 á ári. Þjóðræknisfélagið ó s k a r blaðinu gæfu og góðs gengis í bráð og lengd. Virðingarfyllst, Grettir Leo Jóhannson, féhirðir. * * * Meðtekið með þakklæti, K. W. Johannson, féhirðir Lögbergs-Heimskringlu. Joseph Björn Frederickson, 3022 Victoria Drive, Vancou- ver, B.C. lézt 22. september 1963. Hann lifa einn sonur, Paul, Winnipeg; þrjár dætur, Shirley í Vancouver, Viola í Burnaby og Caroline í Winni- pe; einn bróðir, Paul í Winni- peg; 20 bamabörn og 14 barna- barnabörn. Útförin frá Rose- lyn Funeral Chaþel — bálför. Séra R. Durnford þjónaði. Subscription Blank NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD. 303 Kennedy St„ Winnipeg 2. I enclose $6.00 for 1 year □ $12 for 2 years □ subscrip- tion to the Icelandic Weekly, Lögberg-Heimskringla NAME ..................................... ADDRESS • ................................

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.