Lögberg-Heimskringla - 10.10.1963, Blaðsíða 3

Lögberg-Heimskringla - 10.10.1963, Blaðsíða 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 10. OKTÓBER 1963 3 Litið um öxl (Jtdrættir úr Lögbergi og Heimskringlu frá fyrri árum Valið hafa Dr. Þorraldur Johnson og Dr. Tryggvi J. Oleson — Business and Professional Cards — Úr Heimskringlu, 1. október 1903: Únitarasamkoman, sem svo mjög hafði auglýst verið, fór fram að Unity Hall á 'þriðju- dagskveldið var og var svo fjölsótt, að hvert einasta sæti var skipað, og var gang- urinn milli sætanna troðfull- ur af standandi fólki og einnig talsvert margt í fordyri húss- ins. — Prógramið var langt, 19 stykki, og var því samkom- unni ekki lokið fyrr en kl. 1 að morgni. En svo var fólkið ánægt með það sem fór fram, að allir sátu og stóðu sem fastast þar til öllu var lokið. Gísli Jónsson prentari frá Akureyri, sem nýkominn er hingað vestur, var auglýstur að syngja á þessari samkomu, og munu margir hafa komið til að hlusta á hann, og einnig kappræðu þá sem H. Leo og K. Á Benediktsson héldu um áhrif blaðanna á ísl. tungu og þjóðerni . . . Langt skaraði söngur Gísla fram úr öllu öðru, sem þar fór fram. Gísli er framúrskarandi góður söngmaður, enda var hann klappaður upp hvað eftir ann- að. Vér skoðum hann hæg- lega $5 virði fyrir hverja samkomu sem hann syngur á. Vér teljum víst að ef Gísli héldi söngsamkomu í byggð- um íslendinga hér vestra, mundi hann allstaðar fá hús- fyllir. Hljóð hans verðskulda að þeim sé sómi sýndur. Framhald frá bls. 2. Mjólk hækkar um 18,5% 25% hækkanir frá því haustið 1962. Framleiðsluráð landbúnað- arins hefur auglýst hið nýja verð á mjólk og mjólkurvör- um. Mjólk í lausu máli hækk- ar úr kr. 4.85 lítrinn í kr. 5.75 og nemur hækkunin 18,5%. Smjör kostar nú pr. kíló kr. 103.55 en kostaði kr. 80.75 í fyrrahaust. Ostur (45%) kostar nú pr. kíló kr. 84.15 en kostaði kr. 71.35 pr. kg. í fyrrahaust. Mgbl. 24. sept. ☆ Kjötið hækkar Nú hefur Framleiðsluráð landbúnaðarins lokið útreikn- ingum sínum á verði landbún- aðarafurða fyrir verðlagsárið 1963—1964. Skýrt er frá nýja verðinu á mjólk og mjólkurafurðum í blaðinu í dag, en nýtt verð á kindakjöti, slátri og kartöfl- um er sem hér segir: súpu- kjöt kostar nú 44.40 kr., í fyrrahaust kostaði það 32.25 Úr Heimskringlu, 8. oklóber 1903: Úr ritstjórnargreininni , „Vistarbandið óleyst“. í júlí síðastl. kom frá Is- landi alfluttur hingað vestur Jón alþingismaður Jónsson frá Sleðbrjót. Hann ritar í síð- asta Lögberg langa grein um vinnufólks vandræðin á Is- landi . . . Þess hefir áður verið getið í Hkr., að hjúin á Is- landi hefðu með vistarbanns- lögunum frá 1894 verið gerð að frjálsum manneskjum . . . En Jón segir um þetta: „Hið sanna er, að vistarbandið er óleyst á íslandi enn.í dag. Það var aðeins talsvert rýmkað um klafann með lögum 2. febrúar 1894.“ Það þarf ekki að taka fram, að Jón er mað- ur sem er svo nákvæmlega kunnugur þessu máli öllu, að hann veit hvað hann er að fara með og því tekur Hkr. leiðrétting hans að sjálfsögðu gilda og góða. Jón segir lögin á Islandi nú vera þau, að 22 ára karl eða kona fái keypt lausamennskubréf móti 15 kr. gildi frá karli en 5 kr. frá konu, en þeir sem hafa náð 30 ára aldri, fá lausamennsku- bréfin ókeypis, að undan- skildri 2 kr. borgun til lög- reglustjóra. Enginn má enn vera laus yngri en 22 ára. Jón hefir því sýnt það sem vér áður ekki vissum, að talsverð- ur tollur er enn þá lagður á mannfrelsið á Islandi . . . 55.60 k(., í fyrrahaust 42.30, heil slátur með sviðnum haus 50.85 kr., í fyrrahaust 41.00 kr. 1 fl. kartöflur kosta nú 43.40 kr. í 5 kg. pokum, kostuðu kr. 35.00 kr. í fyrrahaust. Tíminn 25. sept. ☆ Slórgjöf lil Lislasafns íslands Listasafni Islands hefir tæmzt arfur, sem gizkað er á að nemi 2—3 milljónum króna, þótt sú tala sé birt án ábyrgðar, en óhætt er þó að fullyrða að safninu hafi aldrei borizt stærri gjöf í krónum talið. Er hér um að ræða arfs- hluta, þriðjung verðs hús- eignarinnar Austurstræti 12 í Reykjavík, að frádreginni einni milljón króna þó, en ýmsir gizka á að eign á þess- um stað sé alltaf 12 milljón króna virði. Það var Sesselja Stefánsdóttir píanóleikari, sem lézt í Landspitalanum 4. þessa mánaðar, sem arfleiddi listasafnið að sínum hluta í fyrrnefndri húseign, og er þess sérstaklega getið að minningargjöfin sé gefin í því skyni að varðveita höggmynd- ir Nínu Sæmundsson mynd- höggvara innan vébanda Listasafns íslands. Vísir 24. sept. ☆ Á vegum Loftleiða Sjö erlendir ferðamanna- hópar og margir einstaklingar hafa dvalið á vegum Loftleiða á Islandi í sumar. Þrír komu frá Þýzkalandi, 3 frá Banda- ríkjunum og 1 frá Frakklandi, alls 94 menn. Hér voru aðal- lega á ferðinni erlendir blaða- menn og starfsmenn ferða- skrifstofa. Farið hefur verið með þá umhverfis landið og margt fleira hefur verið gert fyrir þá í landkynningarskyni. Hópar þessir koma aðallega til landsins á vorin og haustin. I fyrsta hópnum, sem kom í vor, voru 15 Frakkar frá París. Þeir voru allir starfs- menn ferðaskrifstofa og dvöldu hér 1.-4. apríl. 22.-26. apríl dvöldu hérna 15 blaða- menn, víðsvegar frá Þýzka- landi og frá mörgum helztu blöðum landsins. 15 þýzkir forstjórar fyrir ferðaskrifstof- um 29. apríl til 3. maí. 15 starfsmenn ferðaskrifstofa í Þýzkalandi 15.-19. maí. 10 bandarískir blaðamenn 10.-13. Framhald á bls. 4. Goodman And Kojima Electric ELECTRICAL COHTRACTORS 384 McDermot Ave., Winnipeg 2 WH 2-7759 ARTHUR GOODMAN M. KOJIMA SP 2-5561 LE 3-4633 Evenings ond Hoiidoys HAGB0RG FUEL LTD. Ph. SP 4-3431 Cool—Wood—Stoker—Cool Furnoce Fuel Oil Distributors for Berwind Chorcool Briquets Serving Winnipeg Since 1891 Capital Lumber Co., Ltd. 92 Higgins Avenue Everything in Lumber, Plywood, Wall Boord, Ceiling Tile, Finishing Moterials, Insulation and Hardware J. REIMER, Monoger WH 3-1455 Phone WH 3-1455 Canadian Fish Producers Ltd. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Office: Bus.: SPruce 5-0481 SPruce 2-3917 EGGERTS0N & EGGERTS0N Borristers ond Solicitors GUNNAR O. EGGERTSON, B.A., LL.B. ERLINGUR K. EGGERTSON, B.A., LL.B. 500 Power Building, Portoge ot Voughon, Winnipeg 1 PHONE WH 2-3149 Investors Syndicate of Canada, Limited H. Brock Smifh Manoger, Winnipeg Region 280 Broadway Ave. WH 3-0361 Fréttir frá íslandi kr., heil læri 51.65 kr. í fyrra- haust 37.65 kr., lambalifur

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.