Lögberg-Heimskringla - 31.10.1963, Side 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 31. OKTÓBER 1963
Úr borg og byggð
Nírœð oq einu ári belur
Frú Ólína Björg Chrisiian-
son, að 402 Clandiboye Ave.
átti nýlega 91 árs afmæli og
hélt frændlið hennar og vinir
upp á afmælið á sunnudaginn
20 október. Hún flutti frá ís-
landi til Kanda með foreldr-
um sínum 1883 en þau voru
Ólafur Guðmundsson Nordal
og Margrét ólafsdóttir kona
hans, og voru meðal stofn-
enda lúterska safnaðarins í
Selkirk. Frú ólöf hefir tekið
virkan þátt í starfi þess safn-
aðar í rúm 70 ár og fyrsta
kvenfélag safnaðarins var
myndað á heimili foreldra
hennar. Hún er heiðursmeð-
limur kvenfélagsins og hefir
verið starfandi í Trúboðs-
félaginu síðan það var stofn-
að. Fyrri eiginmaður frú
Ólínu var Sigurður Árnason
(Anderson) og eignuðust þau
sjö börn; elztur þeirra var O.
T. Anderson heitinn, mikils-
metinn prófessor við Mani-
tobaháskólann í fjölda mörg
ár. Sigurður dó 1902 aðeins
37 ára. Frú Ólína giftist í
annað sinn Kristjáni Christ-
ianson og eignuðust þau tvær
dætur. Hún missti hann 1917.
Þótt frú Ólína Björg Christ-
ianson hafi ekki farið var-
hluta af sorgum og mótlæti á
langri ævi er hún enn lífs-
glöð og ern, fylgist vel með
því sem er að gerast og sjálf
bakaði hún afmæliskökuna
fyrir afmælisveizluna. Lög-
berg-Heimskringla ó s k a r
henni til hamingju með af-
mælið.
☆
Reliable young woman over
20 for general house work.
New home in Winnipeg. Must
be fond of children. Private
room and shower. Excellent
wages. Write to Mrs. H.
Kofsky, 771 Oak Street, or
phone WH 2-5123.
☆
New Democralic félagskap-
urinn í Selkirk Sambands-
kjördæmi efnir til mikillar
veizlu föstudagskvöldið 8.
nóvember. Þetta verður í
Arborg og byrjar klukkan
hálf sjö. Aðalræðumaðurinn
verður Douglas Fisher, þing-
maður fyrir Port Arthur kjör-
dæmið. Nóg verður þarna að
borða og dansleikur verður
hafinn klukkan níu, svo að
fólk geti skemmt sér eftir
ræðuhöldin og máltíðina.
☆
Canada Savings Bonds
Enn birtist í blaðinu aug-
lýsing um þetta ágæta tæki-
færi að leggja aflögu peninga
sína í sparisjóð með því að
kaupa Canada Savings Bonds,
sem gefa af sér ríflega vexti
og eru algerlega tryggð gegn
því að þau falli í verði. Það
má draga út peninga fyrir
þau hvenær sem er, ásamt
áföllnum vöxtum. Vextirnir
nema 5.03 procent á ári ef þau
eru geymd í 12 ár.
Betel Building Fund
Mrs. Thura Olafson, 167
Hespler Ave, Wpg., $5.00 —
In loving memory of Margret
Thorbergson.
Mr. og Mrs. Joe Laxdal,
5701 Roblin Blvd., Charles-
wood, Man. — $25.00.
Meðtekið með þakklæti,
K. W. Johannson,
910 Palmerston Ave.,
Winnipeg 10, Man.,
féhirðir byggingarsjóðsins.
☆
Civil Defence says: —
Have you , read “Eleven
Steps to Survival” and the
other available literature on
Civil Defence. There are
copies for your family at:
Meiro Civil Defence,
1767 Portage Avenue,
Winnipeg 12 — TUrner 8-2351
Dánarfregnir
Bergman Floveni Jónasson,
Lundar, Man., lézt 21. október
1963 á Eriksdale spítalanum,
77 ára. Hann var fæddur í
Riverton en átti heima í
Lundarbyggðinni í 65 ár ' og
stundaði búskap. Hann lifa
tvær systur, Miss Theodora
Jónasson að Lundar og Mrs.
S. S. Johnson í Arborg. Út-
förin frá lútersku kirkjunni
að Lundar, jarðaður í Otto
grafreitnum.
☆
Krisiinn Ármann Krisiinn-
son, 76 ára, varð bráðkvaddur
að heimili sínu í Arbrog 22.
október 1963. Hann var fædd-
ur að Geysir og var þar bóndi
þar til hann lagði niður störf
og flutti til Arborg 1952. Hann
lifa kona hans Hólmfríður;
tveir synir, Albert í Arborg
og Thorsteinn að Geysir; þrjár
dætur, Maria — Mrs. G.
Boundy að Geysir, Kristín —
Mrs. Njáll Gíslason og
Beatrice — Mrs. V. Gudmund-
son báðar í Arborg; einn bróð-
ir, Helgi Sigurdson, Hnausa;
tvær systur, Mrs. Dísa Thor-
steinson, Geysir og Miss Vig-
dís Sigurdson í California; 15
barnabörn. Útförin frá lú-
tersku kirkjunni að Geysir og
jarðað í byggðar grafreitnum.
☆
Mrs. Sigurrós Júlíana Dens-
ley, 47 ára, eiginkona Harold
Densley, 407 Superior Ave.,
Selkirk, lézt 17. október 1963.
Auk eiginmanns hennar,
syrgja hana fimm dætur, Mrs.
Sylvia Kindzierski í Arborg,
Mrs. Joyce Haunter, Winni-
peg, Lorraine, Irene og
Margaret; tveir synir, Solli og
Edward í Selkirk; tveir bræð-
ur, Sveinn Gudmundson í
Ontario og Kris Gudmundson
í Riverton; þrjár systur, Mrs.
Inga Gíslason, Selkirk og Mrs.
Jónína Jónasson og Mrs.
Thorbjörg Matthews, móðir
hennar, Mrs. Sessilja Gud-
mundson og átta barnabörn.
Útförin var gerð frá lútersku
kirkjunni í Riverton og jarð-
MESSUBOÐ
Fyrsla lúlerska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
A ensku: kl. 9.45 f. h
11.00 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h.
settning í Riverton grafreit.
Séra R. L. Magnússon jarð-
söng.
☆
Einar Jón Magnússon, 401
Lake Ave., Selkirk, Man.,
andaðist á Princess Elizabeth
spítalanum eftir langvarandi
vanheilsu, 24. október 1963,
73 ára. Hann flutti frá íslandi
til Kanada 1910 og settist
fyrst að á Hnausum en flutti
til Selkirk 1916 og átti þar
heima til æviloka. Hann unni
íslenzkunni og íslenzkum
menningarmálum, var styrkur
stuðningsmaður íslenzku
vikublaðanna og Þjóðræknis-
félagsins, veitti deildinni
„Brúin“ í Selkirk lengi for-
ystu. Hann lætur eftir sig
eiginkonu sína Ólöfu; fjóra
sonu, Jón, Einar, Magnús og
Victor, allir búsettir í Selkirk;
þrjár dætur, Mrs. Ernest
Nicol (Lily) í Selkirk, Mrs.
Bud Wilbur (Florence) í
California og Mrs. Stan Baty
(Sylvia) í Edmonton; sextán
barnabörn; tvær systur og
einn bróðir á íslandi. Útförin
frá lútersku kirkjunni í Sel-
kirk, séra W. Bergman stýrði
kveðjuathöfninni með aðstoð
Dr. Valdimars J. Eylands.
Fréttir frá íslandi
Sölur á íslenzkum peningum
I síðastl. viku komst upp
um stórfelldar ólöglegar söl-
ur á íslenzkum peningaseðlum
erlendis. — Fjárhæðirnar sem
um er að ræða skipta hundr-
uðum þúsunda króna og er
vitað a.m.k. tvær sölur með
nokkurra vikna millibili nú í
sumar. 1 annað skiptið voru
seldaf um 300 þús. ísl. krón-
ur, í hitt um 350 þús. kr. Það
var gjaldeyriseftirlitið sem
komst að þessu.
Að því er Mbl. hefur fregn-
að er á þessu stigi málsins
enn ókunnugt, hvort fleiri
menn eru við málið riðnir en
sá sem annaðist söluna er-
lendis eða hvort það er í
tengslum við önnur fjár-
glæframál.
Þess má geta hér að lokum,
að samkvæmt reglugerð um
sölu á íslenzkum peningum
mega ferðamenn búsettir hér-
lendis aðeins flytja út og inn
í landið 2500 kr., en ferða-
menn búsettir erlendis mega
hins vegar flytja inn allt að
kr. 5000 og taka með sér við
brottför allt að kr. 2500. —
Öðrum aðilum, að meðtöld-
um bönkum, er óheimilt að
flytja íslenzka peninga inn
og út úr landinu, nema leyfi
Seðlabankans komi til.
Mgbl. 15. okt. 1963.
Þar sem áður flæddi sjór,
eru nú rækiaðar karlöflur
Við brugðum okkur í vik-
unni suður á Álftanes og lit-
um þar á kartöflugarð, sem
segja má, að unninn hafi verið
úr greipum Ægis, því fyrir
nokkrum árum lá þar allt
undir sjó. Nú er á nesinu
fimm hektara kartöfluakur,
og er uppskeran ágæt, því
jarðvegurinn virðist auðugur
af öllum efnum, og heppileg-
ur til kartöfluræktar.
Árið 1952 og ’53 var hlaðinn
varnargarður í hinn svo-
nefnda Dugguós, eða Bessa-
staðaós á Álftanesi, og fékkst
við það mikið land, sem áður
hafði allt verið undir sjó, en
fyrir . innan þennan garð
myndaðist einnig tjörn sú,
sem kölluð er Bessastaðatjörn
og ræktaður er í lax.
Það var Sveinn Björnsson
fyrrverandi forseti, sem lét
hefjast handa um gerð garðs-
ins, og hélt Ásgeir Ásgeirsson
forseti áfram verki hins látna
forseta. Þar sem nú er
kartöflugarðar voru einu sinni
mógrafir norðurbæjanna á
Álftanesi aðallega Landakots
og Breiðabólstaðar, en í stór-
streymi gekk sjórinn alla leið
þangað upp. Svo var einnig
gerður varnargarður fyrir
vestanáttinni fyrir nokkrum
árum, og á enn eftir að fram-
lengja hann nokkuð svo hann
nái að garðinum, sem er fyrir
Dugguósi, en við það fæst enn
nokkurt land til ræktunar.
Sett var niður í garðinn,
sem er eign Erlends Sveins-
sonar lögregluþjóns, 6. júní og
hefur verið unnið við upptöku
undanfarna viku. Jarðvegur
er þarna auðugur af öllum
efnum og hefur uppskeran
verið góð. — 1 fyrra, en þá var
fyrst sett niður í þennan garð,
varð uppskeran sumsstaðar í
honum 16 til 17 föld, og þykir
víst ekki ónýtt að fá svo góða
uppskeru.
Auk kartaflanna eru þarna
ræktaðar rófur og hafa þær
sprottið mjög vel í sumar.
Tíminn 5. okt.
Off. SP 2-9509—SP 2-9500
Res. SP 4-6753
OPPOSITE MATERNITY HOSPITAL
Nell’s Flower Shop
700 NOTRE DAME
Wedding Bouquets - Cut Flowers
Funerol Designs - Corsoges
Bedding Plonts
S. L. Stefanson—JU 6-7229
Mrs. Albert J. Johnson
ICELANDIC SPOKEN
ROSE THEATRE
SARGENT of ARLINGTON
AIRCONDITIONED
CHANGE OF PROGRAM
EVERY FOUR DAYS
Foto-Nite Every
Tuesday and Wednesday
SPECIAL
CHILDREN'S MATINEE
Every Saturday
^penhagen
Heimsins bezto
munntóbak
Why nol visil ICELAND
now?
ALL-WAYS Travel Bureau
Lid., 315 Hargrave Street,
Winnipeg 2, Man., WHitehall
2-2535, is the recognized Agent
of all steamship- and airlines,
including Icelandic Airlines,
and has assisted more Iceland-
ers in Maniioba with their
travel arrangements than any
other travel agent.
Mr. P. E. Salomonsen and Mr.
A. A. Anderson, both Scandi-
navians, will render you every
assistance in connection with
your travel, in an endeavour
to have your trip as comfort-
able and pleasant, yet in-
expensive, as possible.
Consult
ALL-WAYS Travel
Bureau Lid.
315 Hargrave Sireel.
Winnipeg 2, Man.
WHilehall 2-2535