Lögberg-Heimskringla - 17.09.1964, Side 1
Jteíntéímngla
Stofnað 14. ian., 1888
Stofnuð 9. sept., 1886
78. ÁRGANGUR
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 17. SEPTEMBER 1964
NÚMER 36
Frú Dóra Þórhallsdót-tir
ó Bessastöðum lótin
Þau sviplegu tíðindi bárust
vestur hingað síðast liðinn
föstudag, að deginum áður
hefði frú Dóra Þórhallsdóttir,
kona herra Ásgeirs Ásgeirs-
sonar, forseta Islands, látizt.
Með frú Dóru Þórhallsdótt-
ur er hdrfin af sjónarsviðinu
mæt og mikilhæf kona og
glæsilegur fulltrúi hins ís-
lenzka kynstofns — kona, sem
um árabil skipaði æðsta önd-
vegi íslenzkra kvenna með
einstakri sæmd.
Hin íslenzka forsetafrú var
fædd fyrir rúmlega sjö ára-
tugum á einu mesta menning-
arheimili íslands, Laufási við
Reykjavík. Foreldrar hennar
voru þau séra Þórhallur
Bjarnarson prestaskólakenn-
ari og síðar biskup og frú Val-
gerður Jónsdóttir. Foreldrar
Þórhalls biskups voru þau
séra Björn Halldórsson, eitt
af höfuðskáldum sinnar tíðar
og Sigríður Einarsdóttir,
hreppstjóra í Saltvík á Tjörn-
nesi. Frú Valgerður var einnig
af Þingeyskum ættum, dóttir
Jóns Halldórssonar hrepp-
stjóra á Bjarnastöðum í Bárð-
ardal og Hólmfríðar Hans-
dóttur konu hans.
Þess má geta, að frú Val-
gerður var ung að árum tekin
í fóstur af Tryggva Gunnars-
syni og frú Halldóru að Hall-
gilsstöðum í Fnjóskadal, og
ólst hún síðan upp hjá þeim.
Þau Tryggvi og frú Halldóra
fluttust til Kaupmannahafnar,
þegar Valgerður fósturdóttir
þeirra var aðeins 10 ára að
aldri. Á sumrin fór þó Tryggvi
Gunnarssoh til Islands til að
sækja þing. Tók hann fóstur-
dóttur sína tvisvar með sér í
þær ferðir og kom henni fyrir
um þingtímann á Bessastöð-
um hjá frú Jakobínu og Grími
Thomsen skáldi. Þar var frú
Valgerður fermd í þeirri
kirkju, sem síðar varð heima-
kirkja dóttur hennar, konu
forseta hins íslenzka lýðveld-
is, frú Dóru Þórhallsdóttur.
Af því, sem nú hefir verið
sagt, má sjá, að frú Dóra
Þórhallsdóttir var af hinum
merkustu ættum komin, en
hvort tveggja í senn ættin og
uppeldið urðu börnunum í
Laufási við Reykjavík hinir
traustustu kjalviðir. Bræð-
urnir Björn og Tryggvi urðu
snemma hinir mestu atgjörvis-
menn. Þungur harmur var
kveðinn að Laufásfjölskyld-
unni árið 1916 við andlát
Bjarnar. Tryggvi fetaði i fót-
spor föður síns, varð guðfræði-
kennari, en tók síðar mjög
virkan þátt i stjórnmálum og
Frú Dóra Þórhallsdóilir
varð sem kunnugt er forsæt-
isráðhorra íslands. Svava eldri
systirin giftist Halldóri Vil-
hjálmssyni skólastjóra á
Hvanneyri. Yngsta systirin,
Dóra, giftist Ásgeiri Ásgeirs-
syni guðfræðingi, en hann
var þá ritari föður hennar.
Þann dag varð hún sú ís-
lenzka húsfreyja, sem hlaut
að hafa einna mest umsvif
allra stallsystra sinna ís-
lenzkra á þessari öld. Þó að
maður hennar væri undir það
búinn að taka prestvígslu, lá
fyrir honum önnur ganga, um
erfiðustu á ábyrgðarmestu
embætti hins fullvalda ís-
lands, og árið 1952 var þeim
hjónum skipað til öndvegis,
þegar Ásgeir Ásgeirsson var
kjörinn annar forseti hins ís-
lenzka lýðveldis.
Frú Dóru Þórhallsdóttur
verður ávallt minnzt sem eins
af merkustu fulltrúum, sem
hið unga íslenzka lýðveldi
hefir eignazt. Með manni sín-
um heimsótti hún flest byggð-
arlög á íslandi og í opinberar
heimsóknir til útlanda fóru
þau hjónin oft. Þau gerðu sér
far um að kynnast íslenzku
þjóðinni sem bezt og á er-
lendum vettvangi urðu þau
beztu sendimenn hennar.
Hin íslenzka forsetafrú var
tíguleg í allri framgöngu.
Glöggt mátti kenna, að þar
fór kona, sem hafði að bak-
hjarli íslenzka menningu
allra alda. Hún var kona
rammíslenzk og ann öllu því,
sem bezt er og fegurst í ís-
lenzkri menningu. Hún var
einnig hámenntuð á annarra
þjóða vísu. Þess vegna var
henni jafneðlilegt að sitja við
háborð með erlendum þjóð-
höfðingjum eins og að slá
íslenzkan vef heima á Bessa-
stöðum.
1 tíð frú Dóru Þórhallsdótt-
nr var Bessastaðaheimilið
ávallt i þjóðbraut. Af gest-
risni þeirra hjóna fór einstakt
orð um allt ísland og víðs
vegar um útlönd. Á heimili
þeirra komu háir jafnt sem
lágir, en öllúm vár þar jafn-
vel fagnað, því að gestrisni
Bessastaðaheimilisins þekkti
hvorki manngreinarálit né
mannamun.
Vestur-lslendingar munu
lengi minnast heimsóknar
Ásgeirs Ásgeirssonar forseta
íslands og frú Dóru Þórhalls-
dóttur til Kanada haustið 1961.
Sú heimsókn var öllum þeim,
sem íslenzkir eru eða íslandi
unna, til sæmdar. Þeir eru og
ófáir Vestur-lslendingarnir,
sem notið hafa gestrisni Bessa-
staðaheimilisins á liðnum ár-
um.
Vestur-lslendingar harma
fráfall frú Dóru Þórhallsdótt-
ur og senda herra Ásgeiri Ás-
geirssyni, börnum þeirra
hjóna og íslenzku .þjóðinni
allri samúðarkveðjur vegna
þess þunga harms, sem nú
hefir verið að þeim kveðinn.
Á slíkri stund vilja þeir þó
minnast þess öllu öðru frem-
ur, að með lífi sínu og starfi
jók frú Dóra Þórhallsdóttir
heiður íslands og hinnar ís-
lenzku þjóðar, bæði heima á
ættjörðinni og í þeim löndum
sem hún sótti heim.
Outsfanding Student
In Dentistry
Kennelh L. Johnson
Mr. Kenneth Lincoln John-
son, who attends the Faculty
of Dentistry at the University
of Manitoba has been an out-
standing student. He obtained
the highest marks in Dent-
istry. Winning Bronze Medals
in Anatomy, Pathology,
Bacteriology, Biochemistry in
his First and Second Years,
he added further laurels in
the Third Year as follows:
Certificate of Merit (Honours
standing); Scholarship, Inter-
national College of Dentists
(Canadian Section); C. V.
Mosby Book Award (for
highest standing in the fol-
lowing subjects; Prosthodont-
ology, Anaesthesiology, Oral
Fró Vancouver
Mikið var gaman að lesa
um ferðalag þeirra herra,
Bjarna Benediktssonar for-
sætisráðherra íslands og konu
hans frú Sigríðar Björnsdótt-
ir og Björns sonar þeirra um
Manitoba og Alberta. Við hér
í Vancouver vorum mikið bú-
in að hlakka til að fá þau
hingað til B.C. og vorum mjög
ánægð yfir því að tveir em-
bættismenn úr deild þjóð-
ræknisfélags Isl. hér „Strönd-
inni“ lögðu af stað í sínum
bílnum hvor, en það voru þeir
forseti Snorri Gunnarsson og
skrifari Helgi Helgason og
konurnar þeirra voru með, til
að mæta gestunum í Banff,
Alberta. Héðan var farið á
laugardagsmorgun 8. ágúst og
var komið við í Kelowna, og
náð sambandi við Islendinga
þar og gjört ráð fyrir að gista
þar á heimleið.
Til Banff kom ferðafólkið á
mánudaginn og varð þá fagn-
aðarfundur, er þau hittu for-
sætisráðherrann og fjölskyldu
hans, og Isl. Consul Grettir
Johannson og frú Lalah konu
hans, sem fylgdu hinum tignu
gestum alla leið frá Winnipeg
og til Vancouver. Var svo
farið í keyrslu túr, og skoðað
sig um á þessum fagra stað.
Kelowna
Þriðjudagsmorguninn var
lagt af stað vestur á bóginn,
og komið til Kelowna undir
kvöld. En þá stóð þar yfir hin
árlega úti skemmtun sem
nefnist „Kelowna Water
Ragatta11, og þar margt merki-
legt að sjá, og fjöldi fólks
saman kominn. Var nú keyrt
beint til „Helgi Olafson
Motel“ — þar sem • fáni ís-
lands blakti á stöng, og þar
var gist þessa nótt. Herberg-
in fyrir gestina voru fagur-
lega skreytt blómum og við-
tökurnar sem bezt gat verið.
Seinna um kvöldið var hald-
in veizla í Capri Motor Hotel
til að fagna og heiðra gestina.
Veizluna sóttu um 30 til 40
íslendingar og mun það vera
í fyrsta sinn er svo margir
landar mættu í einum hóp í
Surgery, and G e n e r a 1
Surgery; Winnipeg Dental
Supply Company (for highest
standing in Clinical Dent-
istry); Univérsity Bronze
Medal for highest standing in
Pharmacology.
Kenneth is the son of Mr.
and Mrs. Leo E. Johnson of
St. Boniface, Manitoba, and
grandson of the late Guðjón
and Oddný Johnson and the
late Thorarinn and Kristín
Olson of Winnipeg.
Kelowna. Næsta morgun var
farið í Town Hall, þar sem
„bæjarráð“ mætti gestunum
og færði þeim gjafir, blóma-
körfur og ávexti. Eins og
margir vita eru ávextirnir í
Kelowna og blómin, álitin þau
beztu og fegurstu sem vaxa í
B.C.
í Vancouver
Þá er nú komin miðviku-
dagur, og var þá lagt snemma
á stað í seinasta sprettinn til
Vancouver. Þegar þangað kom
var farið beint til Bayshore
Inn, því þar gistu gestirnir á
meðan þeir dvöldu í Van-
couver. Eftir nokkra hvíld var
svo aftur lagt af stað, og þá
farið í íslenzku Lút. kirkjuna
á 41st Ave., þar sem nokkrir
vinir voru saman komnir. Mr.
L. H. Thorlaksson, forseti
safnaðarins ávarpaði gestina
og bauð þau velkomin á þenn-
an stað. Vicar Erling Lind-
strom flutti bæn, og Mrs.
Framhald á bls. 3
Skipuð í
ábyrgðarmikla stöðu
Miss Audrey Fridfinnson
Manitoba háskólinn hefir
nýlega skipað þrjá prófessora
í þriggja manna nefnd til þess
að leiðbeina stúdentum og
prófa þá í þeim tilgangi að
greiða úr vandamálum þeirra
og aðstoða þá við að komast
á rétta hillu í náminu. Einn
af þessum prófessorum er
Miss Audrey Fridfinnson og
er hún ráðin við Social Work
deild háskólans. Er þetta á-
byrgðarmikil staða, ekki sízt
vegna þess, að svona starf er
alveg nýtt við háskólann.
Foreldrar hcnnar eru Bertha
Fridfinnson og Bill heitinn
Fridfinnson sonur Jón Frið-
finnsonar tónskálds. Bill
Fridfinnson var einn af frækn-
ustu köppum hins fræga
Falcon skautaklúbs og var
skrifari klúbsins.