Lögberg-Heimskringla - 29.09.1966, Blaðsíða 1
Hö gber g - ||etmökr tugla
SíofnaS 14. itn., 1888 Síofnuð 9. sept., 1886
80. ÁRGANGUR ____WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 29. SEPTEMBER 1966__NÚMER 37
Stundar íslenzkunám við
Háskóla íslands
Miss Judith Taylor hlaut
námsstyrk þann, er Mennta-
málaráð íslands veitir stúdent
um héðan til framhaldsnáms
við Háskóla íslands. — Þjóð-
ræknisfélagið velur úr þeim
hóp af námsfólki, sem sækir
um þennan styrk, og þótti hún
uppfylla öll þau skilyrði, er
nauðsynleg voru.
Judith er dóttir Dr. og Mrs.
J. Reid Taylor, en Dr. Taylor
er læknir við Winnipeg Clinic.
Fjölskyldan er á Gimli á frí-
dögum sínum á sumrin, og þar
fékk Judith fyrst áhuga fyrir
að læra íslenzku og hefur nú
stundað nám hjá próf. Haraldi
Bessasyni í síðastliðin fjögur
ár. — Hún brautskráðist frá
Manitoba háskóla í vor sem
Bachelor of Arts og hafði lagt
megináherzlu á íslenzku. Hana
langar til að ná síðarmeir
meistarastigi í íslenzkum bók-
menntum.
Það er ánægjulegt, hve þessi
unga stúlka, 22 ára að aldri,
hefur mikinn áhuga fyrir ís-
lenzkum bókmenntum, þótt
hún sé ekki af íslenzkum ætt-
um. Hún flaug til Islands á
sl. laugard. og hlakkaði mjög
til dvalarinnar þar í landi. -
Hún mun hafa aðsetur á Nýja
Garði. Hún þekkir aðeins eina
unga stúlku á íslandi, sem var
við nám í Manitoba háskólan-
um sl. ár, en hana langar til
að kynnast sem flestum og
æfa sig í að tala íslenzkuna
þessa mánuði, sem hún dvelur
þar.
Lögberg-Heimskringla árn-
ar henni allra heilla.
Bréf frá séra
Tjörn, Vatnsnesi, 23. sept.
Það er stundum óheppilegt
að L.-H. berst til mín, þegar
miklir viðburðir vestan hafs
eru liðnir. Blaðið frá 28. júlí
er nýkomið í hendur mínar og
samkvæmt fréttunum í því vil
ég nú — þótt seint sé — óska
Dr. Sveini Björnson og frú
Marju innilega til hamingju
með gullbrúðkaup þeirra. —
Ég minnist með hlýju gestrisni
þeirra við mig í Winnipeg og
hvert sem ég kom þar í borg,
og norður í Nýja íslandi fann
ég það bezt, þegar minnzt var
á Dr. Björnson og konu hans,
hve öllum þótti vænt um þau.
Það var ánægjulegt að heyra
um veizluna, sem haldin var
þeim til heiðurs í Winnipeg.
Ég óska þeim innilega til ham-
ingju með þennan dag og sendi
ég þeim beztu kveðjur mínar
frá þessum afskekkta stað á
Norður-íslandi.
Göngur eru búnar um ger-
vallt landið að þessu sinni og
sláturtíðin stendur yfir með
fullum gangi. Fleiri kindum
verður slátrað nú en nokkru
sinni fyrr, og er það í fyrsta
skipti, sem ég man, að ekki
hefur verið kjötekla í land-
inu áður en sláturstíðin hófst.
Nú er liklega að skapast sama
ástandið með kjöt eins og ver-
ið hefur með smjörið — of
Robert Jack
mikil framleiðsla. Þess vegna
ber þeim, sem hlut eiga að
máli, að selja íslenzka kjötið
til útlanda.
Nýlega gerðu kjötsölumenn
frá Nýja-Sjálandi „innrás“ á
sænskan markað, og hefur
þeim orðið töluvert ágengt þar
í landi.
Síldarvertíðinni á Norður-
landi er að ljúka, og hefur
hún gengið mjög vel — talin
metvertíð. Þessi blessaða síld
er áreiðanlega björg í bú fyr-
ir þjóðina.
Nýlega hefur landið fengið
stórt dollaralán í Bandaríkj-
unum til framkvæmda við
Búrfellsvirkjun, en hún verð-
ur áreiðanlega ein stærsta
virkjun í Evrópu, þegar henni
er fyllilega lokið.
Fyrir nokkrum dögum átti
ljósmóðir okkar 50 ára afmæli.
Hún heitir Ragna Levy og er
systir Guðmanns í Winnipeg.
Það var mjög gestkvæmt hjá
frú Rögnu og bárust henni
margar gjafir.
Iðnsýningu er nýlokið í
Reykjavík og sóttu hana um
85,000 manns. Hún var á ýms-
an hátt mjög merkileg og
hefði getað vakið athygli hvar
sem var í heiminum. Margar
íslenzkar vörutegundir eru sér
staklega vandaðar og fullboð-
legar á hvaða heimsmarkaði
sem er.
Það var með mikilli ánægju
að ég hlustaði á ræðu dr.
Richards Beck í útvarpi um
daginn. Hann sýnir alltaf vel-
vild og hlýjan hug til gamla
landsins og íbúa þess. Allir
hérlendis eru í þakkarskuld
við hann fyrir höfðinglega
gjöf hans til Háskóla íslands.
Ég hef heyrt, að stór hópur
manna hafi í huga að férðast
til Kanada á næsta ári vegna
100 ára afmælis og hátíðar í
sambandi við. það, og ég geri
ráð fyrir að þó nokkrir héðan
noti þetta tækifæri til að heim
sækja vini og ættingja í Mani-
toba.
Robert Jack.
Heiðruð
Miss Lauga Geir, Edinborg,
North Dakota, var heiðruð
með samsæti í lútersku kirkj-
unni í Garðar sunnudaginn 25.
sept. sl. í viðurkenningarskyni
fyrir framúrskarandi störf
hennar í þágu skóla-, safnað-
ar- og félagsmála í byggðinni
þar syðra. Því miður bárust
blaðinu fregnir af þessum
mannfagnaði of seint, til birt-
ingar í blaðinu í fyrri viku, en
hér norðan landamæranna á
hún fjölda vina, er hefðu
gjarnan viljað láta í ljósi hlý-
hug sinn og virðingu fyrir
þessari mætu konu við þetta
tækifæri. Við væntum þess að
fá frekari fréttir af samsæt-
inu síðarmeir.
Miss Geir er vel ritfær, hef-
ir meðal annars samið leikrit,
sem var sett á svið og þótti
ágætt. Við þökkum henni fyr-
ir greinar, sem hún hefur
skrifað fyrir Lögberg-Heims-
kringlu, sérstaklega fyrir að-
stoð hennar við Dakota út-
gáfu Lögbergs-Heimskringlu,
sem kom út í tilefni 75 ára af-
mælis Dakotaríkis 1964.
Við árnum henni heilla í
bráð og lengd. — I. J.
Douglas Parkhill
Aulhor of "Computer Utiliiy'' book.
“The Challenge of the Com-
puter Utility” is the title of a
new book soon to be pulished
by Addison-Wesley and writ-
ten by MITRE’s Douglas F.
Parkhill, a Senior Consultant
on the staff of Paul Edwards,
Division 9 Technical Director.
In this first book by the
author, written for the layman
as well as the technologist, a
new method for distributing
and utilizing computer power
is discussed. Known variously
as “information utility”, “in-
formation network”, “time-
sharing”, and “fireside com-
puter”, this new method has
been called simply the “com-
puter utility” by the author—
who aims at providing a
“broad overview” of the sub-
ject. To accomplish this, many
aspects of computer utility are
investigated, including His-
torical and Technológical De-
velopment, Economic and Le-
gal Considerations and the
existing technology. Political
and social implications as well
as future possibilities of the
new change in technology, are
discussed and—in doing so—
the author touches upon many
controversial matters, de-
liberately provocative in the
hope of stimulating wide-
spread discussion of the issues
raised.
This subject of the computer
utility is described by Parkhill
as “surrounded by an an aura
of excitement, by uncertainty,
and by the element of doubt
that always surrounds a novel
event.” It is a topic which “is
very much in the public eye,”
the author continues, “as evi-
denced by the many articles
in both the popular technical
press, prognostications by
leading industrial and scienti-
fic figures, and growing signs
of interest on the part of gov-
ernments everywhere.
The technology of the com-
puter utility does not depend
upon any single technological
breakthrough, but is built
rather upon a logical exten-
sion of many familiar techni-
ques and ideas, Parkhill points
out. But the method does
“open up exciting new pro-
spects for the employment of
computers in ways and on a
scale that would have seemed
pure fantasy only five years
ago.“
Author Parkhill has been
with MITRE since 1961, trans-
ferring recently to Division 9
from his post as a member of
the Advanced Planning Staff,
Systems Planning Division.
He is a 1949 E.E. graduate of
the University of Toronto, and
makes his home in Boston,
with his wife and two child-
ren. His wife, Bertha, is the
daughter of Mrs. Hólmfríður
Kristjánsson of Garfield St.,
Winnipeg, and the late Friðrik
Kristjánsson.
Frá Ríkisútvarpi íslands
25. sept. 1966.
Síldaraflinn í vikunni varð
um 30.500 lestir og er þá heild-
araflinn orðinn yfir 410 þús-
und tonn.
* * *
Handhafar valds forseta ís-
lands hafa samkv. tillögu for-
sætisráðherra kvatt reglulegt
Alþingi 1966 saman til fundar
mánudaginn 10. okt. n. k.
* * *
í vikunni tók gildi lána-
samningur milli Alþjóðabank-
ans og Landsvirkjunar og
hlaut þá aðalsamningurinn
milli ríkisstjórnar Islands og
Swiss Aluminium Ltd. um
byggingu álbræðslu í Straums
vík fullnaðargildi samkvæmt
gildistökuákvæði sínu, svo og
fylgissamningur hans.
Vita- og hafnarmálastiórnin
hefur auglýst útboð í október-
mánuði n. k. á smíði hafnar-
garðs með bryggju í Straums-
vík. Þetta verður með mestu
framkvæmdum sinnar tegund-
ar hér á landi. Sjálfur hafnar-
garðurinn verður 220 m við-
legukantur fyrir 12 m dýpi.
* * *
Illa horfir með kornuppskeru
á Suðurlandi í ár.
* * *
Alþjóða Hafrannsóknarráðið
heldur 54. þing sitt í Kaup-
mannahöfn dagana 3. til 12.
okt. n. k. Búizt er við um 200
vísindamönnum frá aðildar-
Framhald á bls. 8.