Lögberg-Heimskringla - 19.01.1967, Blaðsíða 8

Lögberg-Heimskringla - 19.01.1967, Blaðsíða 8
8 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 19. JANÚAR 1967 Úr borg og byggð The Annual Liíerary Supple- ment. Fyrsta útgáfa þessa fylgi- blaðs Lögbergs-Heimskringlu kom út í febrúar 1966. Þetta eintak blaðsins varð svo eftir- sótt, að þótt við prentuðum nokkur hundruð eintök fram yfir það venjulega, gátum við ekki uppfyllt allar pantanir. Við tókum því það ráð að endurprenta meginritgerðirn- ar í bæklingi; Ninety Years of Icelandic Selllemeni in Wesl- ern Canada eftir próf. Harald Bessason og Some Notable Scholars in the Iceland Field eftir Dr. Richard Beck, og flugu þessir bæklingar út, en við eigum samt nokkra eftir. Ef einhverjir óska að eignast þá, er verð þeirra 50 cents, og fást á skrifstofu blaðsins, 303 Kennedy Street. Önnur útgáfa Annual Liter- ary Supplement of Lögberg- Heimskringla kemur út á svip- uðum tíma og í fyrra, þ. e. í byrjun febrúar. Vegna tilmæla próf. Har- alds Bessasonar og Dr. P. H. T. Thorlakson hafa fimm kunnir fræðimenn skrifað rit- gerðir fyrir þessa útgáfu um íslenzk efni og birtast þær ekki annars staðar. Þetta blað verður á ensku, og ættu þeir, sem vilja senda það vinum sínum, að panta það sem fyrst. — I. J. * * * f sumri og sól. Um þessar mundir baða nokkrir Winnipegbúar sig í sólskini og veðurblíðu í Ha- waii; þar á meðal Mr. og Mrs. Gretlir Eggertson og Mr. og Mrs. Njáll Bardal. * * * Þau hjónin, Bergihor og Helen Pálsson frá Hecla, fóru til Vancouver um jólaleytið í heimsókn til HVjdar dóttur þeirra og tengdasonar, Mr. og Mrs. Aikenhead, og þar á frú Helen líka sex systkini, sem hún hlakkaði til að heimsækja. Þau hjónin gerðu ráð fyrir að koma heim í febrúar. Björg- vin sonur þeirra fór vestur með þeim, en kom til baka eftir stutta dvöl, því hann stundar nám við Manitobahá- skólann. * * * í Hallveigarstaðasjóð. Frú Pétur Thorsteinsson, Washington ........ $10.00 Frú John D. Eaton, Toronto ......... $50.00 Icelandic Canadian Club, Los Angeles________ $109.10 Guðm. Thorsteinsson, Los Angeles $10.00 Skúli Bjarnason, Los Angeles ..... $10.00 Kærar þakkir. Marja Björnson, White Rock, B. C. 301-1250 Blackwood St., Bókmenntasaga Norðurlanda endurprentuð. Nýlega er komin út á vegum The Kennikat Press í Port Washington, New York, ljós- prentuð útgáfa af Bókmennta- sögu Norðurlanda, The His- tory of Scandinavian Litera- tures, sem útgáfufélagið The Dial Press í New York gaf út 1938, og lengi hefir verið upp- seld, og því ófáanleg. — Dr. Richard Beck er einn af höf- undum þessarar bókar, og skrifaði þar ítarlegt yfirlit um íslenzkar bókmenntir fram að þeim tíma, og einnig sérstak- an kafla um vestur-íslenzk skáld. Hlaut bók þessi góða dóma á sínum tíma, og meðal þeirra, sem fóru mjög lofsam- legum orðum um kaflana um íslenzkar bókmenntir, voru þeir dr. Alexander Jóhannes- son og dr. Watson Kirkcon- nell. Heimsóf-ti æskustöðvarnar Síðastliðið sumar kom í heimsókn til íslands Gísli Hlöðver Pálsson, er um 17 ára skeið hefur dvalizt í Banda- ríkjunum hjá móður sinni, giftri þar vestra, Kristínu Gísladóttur frá Keflavík. Faðir hennar er Gísli Daníelsson, velkunnur borgari hér í bæn- um, nú rúmlega áttræður að aldri. Fyrir nokkrum árum var skýrt frá því hér í blaðinu, að Gísli Hlöðver, sem kallar sig Jack Gilbert Hills vestan hafs, hefði sýnt frábæra námshæfi- leika og hlotið þá sjaldgæfu viðurkenningu að fá verðlaun sem eitt af mestu vísinda- mannsefnum meðal náms- manna í háskólum U. S. A. Hlöðver, eða Hlölli, eins og hann var kallaður hér í Kefla- vík, áður en hann fluttist vest- ur um haf með móður sinni, er hann var 6 ára gamall, hef- ur síðustu árin stundað há- skólanám í Kansas í Banda- ríkjunum og hefur haft sem sérgrein stjörnueðlisfræði, en aðalgreinar hennar eru stjörnu fræði, eðlisfræði og stærð- fræði. Hann lauk meistara- prófi frá háskólanum í Kansas síðastliðið sumar og hlaut hæstu einkunnir, sem unnt er að fá í öllum aðalnámsgrein- unum. í haust hóf Hlöðver nám við háskólann í Michigan í Banda- ríkjunum og les nú til doktors- prófs í stjörnueðlisfræði. Hlöðver kom hingað til lands í sumar í boði föður síns, Páls S. Pálssonar, hrl. Átti hann þess kost að ferðast um land- ið, bæði um byggðir og öræfi og að veiða lax í ágætri veiðiá nyrðra. Mun hann hafa verið mjög hrifinn af því, sem fyrir augu bar, en ekki hvað sízt þótti honum vænt um að heim sækja æskustöðvarnar í Kefla- vík og hitta þar afa sinn, móð- ursystkini og annað frænd- fólk, MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol. Heimili: 686 Banning Street. Sími SUnset 3-0744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: Á ensku: kl. 9.45 f. h. 11.00 f. h. Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h. Alls dvaldist Hlöðver þrjár vikur á Islandi í þetta sinn, og er það raunverulega fyrsta sumarleyfið, sem hann hefur átt, því að undanfarin sumur hefur hann unnið allan skóla- leyfistímann í stjarnfræði- og geimrannsóknarstöðvum á ýmsum stöðum í Bandaríkjun- um. Faxi, jólablað 1966. Dánarfregnir Viclor Eyjolfson andaðist 28. desember 1966 eftir langvar- andi vanheilsu, 77 ára að aldri. Hann var fæddur á Unalandi við íslendingafljót (Riverton). Foreldrar hans voru Gunn- steinn Eyjólfsson Magnússon- ar frá Unaósi í Hjaltastaða- þinghá, Norður-Múlasýslu, og kona hans, Guðfinna Eiríks- dóttir Sigurðssonar frá Heið- arseli í Hróarstungu. Gunn- steinn er kunnur fyrir ritverk sín og tónsmíðar. Hann rak verzlun við íslendingafljót og var póstmeistari byggðarinn- ar. Að honum látnum tók Victor að sér þetta starf, þá aðeins tvítugur að aldri, og þegar síminn kom til River- ton, var símastöðin fyrstu 14 árin í verzlunarbúð hans. — Hann var ágætur reiknings- haldari og stundaði það starf á síðari árum. Victor heitinn var listrænn mjög; rithönd hans var ein- staklega falleg, svo og allur frágangur á reikningshaldi hans. Hann var gefinn fyrir hljómlist, svo sem hann átti kyn til, var í tólf ár organisti í kirkju Bræðrasafnaðar og þótti sérstaklega hæfur undir- leikari (accompanist) bæði á orgel og píanó. Hann var í lúðraflokki Riverton-bæjar á meðan Riverton Band var við líði og lék á trombone. Victor var kvæntur Láru, dóttur Jóhannesar Helgason- ar skipstjóra á Winnipegvatni. Hún dó árið 1953 og Gunh- steinn sonur þeirra árið 1964. Eftirlifandi eru Alice Eyjólf- son, dóttir hans, á Gimli; þrír bræður, John, Axel og Albert, allir búsettir í Riverton; fimm systur, Thordis — Mrs. S. O. Thompson í Riverton, Cecilia — Mrs. J. Nairn í Winnipeg, Elizabeth — Mrs. A. John- ston í Peterborough, Ont.; Vil- borg og Margrét í Winnipeg; 5 barnabörn og 5 barna-barna- börn. Útförin fór fram í Selkirk. Rev. W. Bergman jarðsöng. * * * Helgi (Harry) Helgason and- aðist 1. janúar 1967 á Gimli, 77 ára að aldri. Hann var son- ur Jakobínu Sigurðardóttur Erlendssonar og manns henn- ar, Jóhanns Helgasonar, skip- stjóra á Winnipegvatni. * * * y Linda Carol Grimson, 2942 East 27th Avenue, Vancouver, lézt 15. desember 1966, 19 ára gömul. Hana lifa foreldrar hennar, Mr. og Mrs. E. B. (Al) Grimson og tvíburabróðir hennar, Paul, auk fjölmenns skyldmennaliðs. Að kveðjuat- höfn lokinni fór fram bálför hennar. * * * Hrólfur (Harry) Thorstein- son, 625 Minoru Blvd., Burna- by, B.C., fyrrum til heimilis í North Battleford, Sask., and- aðist 15. desember 1966, 74 ára að aldri. Hann lifa kona hans Oddný; fjórir synir, Stoney, Mundi, Marinó og Harold, allir í Vancouver; ein dóttir, Margrét — Mrs. W. Stevens í Richmond; 10 barna- börn og 5 barna-barnabörn. — Kveðjuathöfnin og bálför hans fór fram í kapellunni í Rich- mond. Sögur aí frægu fólki. Tao-kuang, sem var keisari í Kína 1820—1850, fór oft um hið víðlenda ríki sitt og tók sjálfur allar mikilvægar á- kvarðanir. Eitt sinn var í heimsókn hjá honum gestur frá Evrópu, og hann spurði Tao-kuang: — Hvernig farið þér að því að varðveita yðar góðu heilsu? •— Það er ósköp auðvelt, sagði keisarinn. Ég hef fjóra líflækna, sem ég borga hátt kaup. En ef ég veikist, þá hætti ég að borga þeim kaup — fram að þeim degi, sem mér batnar. Og ég hef aldrei hing- að til verið veikur meira en fjóra daga. GUNNAR 0. EGGERTSON Barrister, Solicitor and Notary 500 Power Building Winnipeg 1, Man. Phone WH 2-3149 at Municipal Office, Riverton 12.00 Noon lo 3.00 p.m. at Credit Union Office, Gimli 4.00 p.m. io 6.00 p.m. First and Third Tuesdays GOING TO ICELAND? Or perhaps you wish to visit other countries or places here, in Europe or elswhereT Where- ever you wish to travel, by plane, ship or train, let the Triple-A-Service with 40 years travel experience make the arrangements. Passports and other travel documents secured without extra cost. Write, call or telephone to- day without any obligations to: ARTHUR A. ANDERSON TRAVEL SERVICE 133 Claremonl Ave„ Winnipeg 3, Man. TeL: OLobe 2-5446 WH 2-5949 Asgeirson Paints & Wallpapers Ltd. BUILDING MATERIALS 696 Sargent Avenue Winnipeg 3, Manifoba • All types of Plywood • Pre-finish doors and windows • Aluminum combination doors • Sashless Units • Formica • Arborite • Tile Boards • Hard Boards etc. • Table Legs Phones SU 35-967 SU 34-322 FREE DELTVERY THE SCANDINAVIAN CENTRAL COMMITTEE will hold its annual Mid-Winter Festival on February 3rd, 1967, in the Hastings Auditorium, 828 E. Hastings St., Vancouver. A program begins at 8 p.m., with dancing starting at 10 p.m. The Byberg Brothers Orchestra will play. Coffee will be available. Admission $1.50. ÍSLENDINGADAGSNEFND hefur enn birgðir af íslenzkum Harðfiski Verð $1.00 pakkinn. — Póstpantanir sendist til HELGI JOHNSON — Box 423, Gimli J. F. KRISTJÁNSSON, 246 Mongomery Ave., Ph. 453-3454, annasl afgreiðslu í Winnipeg.

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.