Lögberg-Heimskringla - 01.08.1968, Side 4
4
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 1. ÁGÚST 1968
Lögberg-Heimskringla
Published every Thursday by
NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD.
Prinied by
WALLINGFORD PRESS LTD.
303 Kennedy Sireei, Winnipeg 2, Man.
Ediior: INGIBJÖRG JÓNSSON
President, S. Aleck Thorarinson; Vice-President, Jakob F. Kristjansson; Secretary,
Dr. L. Sigurdson; Treasurer, K. Wilhelm Johannson.
EDITORIAL BOARD
Winnipeg: Prof. Haraldur Bessoson, chairman; Dr. P. H. T. Thoriakson, Dr.
Valdimar J. Eylands, Caroline Gunnarsson, Dr. Thorvaldur Johnson, Rev. Phillip
M. Petursson. Voncouver: Gudloug Johannesson, Boai Bjarnason. Minneopolis:
Hon. Voldimor Bjornson. Vlctoria, B.C.: Dr. Richard Beck. Icelond: Birgir Thor-
lacius, Steindor Steindorsson, Rev. Robert Jack.
Subscription $6.00 per year — payable in advance.
TELEPHONE 943-9931
Authorized as second closs mail by the Post Office Department, Ottawa,
___________ and for payment of Postoge in cash.
Dr. RICHARD BECK:
„Síðusfu Ijóð" Davíðs Stefónssonar
fró Fagraskógi
Þjóðskáldið Davíð Stefánsson frá Fagraskógi lézt 1. marz
1964, 69 ára að aldri. Haustið 1966 kom ofannefnt safn kvæða
hans út á vegum Helgafells í Reykjavík. Er þar um að ræða
stærðarbók, rúmar 300 bls. að meginmáli, og að sama skapi
harla fjölskrúðuga að innihaldi. Réttilega hefir, hins vegar,
verið á það bent af ritdómurum, að útgáfu bókarinnar er
ábótavant um kvæðaval og fleira, meðal annars er aldurs
Ijóðanna hvergi getið, og er það þó meginatriði. Ekki leikur
heldur neinn vafi á því, að sum þessi kvæði hefði Davíð
aldrei látið frá sér fara í núverandi mynd þeirra, jafn smekk-
vís maður og hann var og vandvirkur. Eigi að síður er mikill
fengur að bókinni, því að þar eru mörg ágætiskvæði, sem,
um anda og blæ, sverja sig í ætt til snilldarkvæðanna í bók-
um Davíðs frá síðari árum, og bera vitni andríki hans, ljóð-
rænni og myndrænni skáldlist hans og málfegurð, víðsýni
hans og mannúðaranda.
Upphafskvæði bókarinnar, „Blómið eina“ (Minning Hall-
gríms Péturssonar), er fagur og stórbrotinn minningaróður
um hið mikla sálmaskáld vort, en þó öllu fremur háfleygur
og hjartaheitur lofsöngur um ódauðlegan útfararsálm hans
„Allt eins og blómstrið eina“, eins og heiti kvæðisins bendir
til. Að sjálfsögðu nýtur þetta andríka og hugsun hlaðna kvæði
sín þá fyrst til fullnustu, þegar það er lesið í samhengi, en
eftirfarandi erindi gefa þó góða hugmynd um anda þess, mál-
snilld hugsanadýpt og myndagnótt:
En þegar við heyrðum sálminn um blómið sunginn,
var sál vor nauðug til æðra skilnings kvödd.
Vor himinn, sem áður var hulinn og blikuþrunginn,
varð heiður við skáldsins rödd.
Úr hafi sáum við stíga röðul rauðan
og reifa þann svörð, er hugðum við blóma snauðan.
í ljóðsins háttum söng heilagur máttur
hjartað í sátt við dauðann.
Með geislandi orðum var draumur í vitund vakinn
um visna blómið, sem hvarf í mold og leir,
en leyndardómur hins lifandi kjarna rakinn
til lands, þar sem enginn deyr.
Á sömu stundu fór móðurmoldin að anga,
og morgunsólin gyllti hvern hlíðarvanga.
Um auðmjúk blómin lék upprisulj óminn
og eilífð um fjöll og dranga.
Sjá, dauðinn nálgast dyggastur allra þjóna,
sjá daggir jarðar glitra í sporum hans,
og heyrið sálminn, tignastan allra tóna,
tákn hins stórhuga manns.
Hann feykir skýjabólstranna dimma drunga
frá dyrum himins með öllum sínum þunga.
Aldrei glóði af guðlegra móði
vor göfuga feðratunga.
Skylt að efni er kvæðið „Garðurinn okkar“, en þar ræða
kirkjugarðsvörður og umsjónarkona listigarðsins saman um
garðana sína, sem eru hlið við hlið, og um hlutverk sín. Þau
kunna að sýnast ólík og fjarskyld á yfirborði, en eiga sér
samt sömu rætur og markmið, þegar dýpra er skyggnst. Þetta
langa og merkilega kvæði lýsir vel innsæi skáldsins og sál-
rænum skilningi, að málfegurðinni ógleymdri. í kvæðislok
lætur skáldið kirkjugarðsvörðinn og umsjónarkonu listigarðs-
ins mæla sameiginlega þessi orð, er varpa björtu ljósi á
kjarna kvæðisins:
Sjá, allra bíður bak við nótt og gröf
þinn blái himinn, lífsins morgungjöf.
Við erum tvísöngstónn með sama hreimi,
sem talar máli guðs í þessum heimi.
Hann hefur okkur tvö til vígslu valið
og vilja sinn í brjóstum okkar falið.
En þörf er meira þreks en flesta varði
til þjónustu — í drottins aldingarði.
Framannefnd kvæði bera því órækan vott, hve glögg-
skyggn Davíð var á varanleg menningarverðmæti, andans
þroska og eilíf sannindi. Kemur það því ekki á óvart, að í
þessum síðustu ljóðum, eins og í mörgum hinum fyrri, deilir
hann á margvíslegar veilur í þjóðfélagi samtíðar sinnar, í
lífi manna og lundu, og ekki sízt á hvers konar yfirborðs-
mennsku. Jafnframt er hann samur við sig um heilhuga ást
á átthögum sínum, á sveitum og bændafólki. Menn þurfa
ekki annað en lesa hið yndislega kvæði hans „Vornótt“, til
þess að verða ljóst, hve djúpum rótum hann stóð í mold
Eyjafjarðar, fæðingarsveitar sinnar og ættarbyggðar:
í nótt er gott að gista Eyjafjörð
og guðafriður yfir strönd og vogum.
í skini sólar skarta haf og jörð
og skýjabólstrar slegnir rauðum logum.
Það veit hver sál, að sumar fer í hönd,
en samt er þögn og kyrrð um mó og dranga,
og hvorki brotnar bára upp við strönd
né bærist strá í g’rænum hlíðarvanga.
. Svo ljúft er allt í þessum heiða hyl,
svo hátt til lofts og mjúkur barmur jarðar,
að víst er engin veröld fegri til
en vornótt björt í hlíðum Eyjafjarðar.
Fagurt og innilegt er einnig kvæði hans „Vatnsdalur“, og
þar syngur hann bændum og bændalífi verðugt lof. „Davíð
Stefánsson var íslenzkur sveitamaður, sem þoldi illa að sjá og
vita land deyja,“ segir Helgi Sæmundsson réttilega um hann í
prýðilegri grein sinni „Svanasöngur Davíðs“ (EimreiSin., sept.
des. 1966). Kvæðið „Heiðabóndinn“ í umræddri Ijóðabók hans
staðfestir þau ummæli kröftuglega. Það er aðdáunar- og
þakkarheitur lofsöngur um heiðabóndann, sem berst við það,
„að bjarga góðri jörð frá að leggjast í eyði.“
Snilldarbragur er á kvæðinu „Þráðurinn hvíti“, og glöggt
ættarmótið með fyrri ljóðum skáldsins með þjóðkvæðablæ;
hin hálfsagða saga er hér sögð á minnisstæðan og áhrifamik-
inn hátt, en ekki vil ég raska samhengi og heildaráhrifum
kvæðisins með því að vitna til þess.
En nú sem áður eru það ósjaldan styttri kvæðin, sem heil-
steyptust eru og búa yfir mestri ljóðsnilld og listrænum á-
hrifum, og verður það ekki sízt sagt um kvæðið „Bréfið“ í
þessari bók:
Við bíðum oft lengi
bréfs, sem aldrei var skráð,
en'breytir þó voru lífi
öðru fremur.
Þó furði marga,
er framtíð þeirra háð
fáeinum línum í bréfi,
sem aldrei kemur.
í gegnum fjöllin
getum við stundum eygt,
og gleyrfit því um stund,
að enginn má sköpum renna,
en stundum lýsir
ljós, sem aldrei var kveikt,
lengur en hin,
sem kveikjum sínum brenna.
Þó myrkvist þar loft,
sem morgunroðinn brann,
er margur, sem hugboð fær
og vizku nemur
um ljósið, sem hvarf,
um ljóð, sem enginn kann,
og leyndardóma bréfsins,
sem aldrei kemur.
Þrjú snjöll og tilþrifamikil tækifæriskvæði eru í bókinni:
„Noregskveðja“, „Kveðja til Finnlands" og „Háskólaljóð“.
Hafði Davíð borið sigur úr býtum í samkeppninni um há-
tíðarljóð í tilefni af 50 ára afmæli Háskóla Islands árið 1961,
Framhald á bls. 7.
HELGASONS
FRÁ HAYLAND
Framhald frá bls. 1>
um þetta fólk sem lifði og
starfaði í þessari byggð í
ár og gaf sér ævinlega tíma
til að leysa öll störf af hendi
með vandvirkni og trúmensku
hvort sem það sjálft eða aðrir
áttu í hlut.
Það kom að því eins og geng-
ur í lífinu að þessi stóra fjöÞ
skylda tapaði tölunni. Páll dó
snemma enda hafði hann ver-
ið heilsuveill í fleiri ár. Þvi
næst dóu foreldrarnir, Bjarm
og Halldóra, þá Benedikt og
Helgi.
Benedikt innritaðist í her-
inn í fyrra stríðinu, var í skot-
gröfunum á annað ár og þotti
góður hermaður. Það hefi ég
e f t i r tengdabróður mínum,
Jóni G. Johnson, sem var yfir'
foringi í sömu herdeild. Bene-
dikt kom óskaddaður til baka
en svo sorglega vildi til a^
hann drukknaði í vatninu
skammt frá heimili sínu. Hann
var á skautum og lenti á ófaer-
an ís og hjálp kom of seint.
Björn dó haustið 1966 við
háann aldur en hafði verið
hraustur alla sína ævi þar til
skömmu áður en hann do-
Hann hafði aldrei þurft á
læknum að halda en alltaf
starfað og var búinn að af-
ljúka löngu og dyggilegu lífS'
starfi.
Nú eru þau aðeins eftir
yngstu systkinin, Jón, Sigurð-
ur og Solveig, öll komin á ha-
ann aldur og orðin of þreytt
til þess að mæta þeim kröfum
sem stórt heimili útheimtar.
Ekki gerðist þörf á að bæta
við efnahaginn og tóku þaU
það heppilega ákvæði að
leggja niður störf og leita sér
heldur hvíldar á friðsælu
heimili í návist við annað fólk
á svipuðum aldri og njóta með
því hvíldar og samveru. Þau
leituðu því eftir inngöngu a
Betel, sem gekk greiðlega og
eru þau nú á heimilinu á Sel-
kirk. Ég heimsótti þau og dáð-
ist að heimilinu, hvað vistlegt
það var, starfsfólkið þýðlegt
og yndislegt í viðmóti og þau
Helgasons systkinin hress og
glöð.
Helgasons hafa nú verið á
Betel í tvö ár. Þau seldu all'
ann bústofn og löndin öll, sem
voru níu að tölu, og er það
með afbryggðum. góð bújörð
fyrir þann, sem kann með
að fara. Það sorglega fra
mennsku sjónarmiði séð er að
Helgasons eignuðust e n g a
niðja, ;sem fyrirbyggja a®
þetta heimili geti haldið áfram
að vera óðal Helgasonsættar-
innar eins og ég hefði óskað
eftir, svo að byggðin hefði
mátt halda áfram að njóta
fólks sem væri að upplagi eins
og fyrri kynslóðin, sem trúði
á þá heilbrygðu kenningu að
breyta við aðra eins og þe^r
vildu að aðrir breyttu við sig-