Lögberg-Heimskringla - 05.09.1968, Síða 8

Lögberg-Heimskringla - 05.09.1968, Síða 8
i LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 5. SEPTEMBER 1968 Úr borg og byggð The Jón Sigurdson Chapter I.O.D.E. will hold its annual Fall Tea on Saiurday Sepiem- ber 7ih at The T. Eaion As- sembly Hall (7th Floor) from 2-4.30 P.M. There will be a sale of home baking, handicrafts and novel- ties. General Conveners are — Mrs; Gus Goiifred and Mrs. A. F. Wilson. * * * ÚR BRÉFI FRÁ RAGNAR H. RAGNAR, SÖNGSTJÓRA Nú eru um 27 ár síðan ég fór frá Winnipeg og m a r g t hefur á dagana drifið á þess- um árum, en ég hugsa oft þangað um allt baslið og strið- ið þar og til að minna mörgu góðu vina og kunningja, sem því miður fækkar ár frá ári því dauðans sigð er iðin og stórvirk. — Ég sakna minna mörgu fornvina og bið þig að skila innilegri kveðju til allra þeirra er muna mig ennþá og vilja þiggja kveðjur mínar. Sjaldan hitti ég vini að vest- an. í sumar var ég svo hepp- inn að hitta fornvin minn Grettir L. Johannson og frú og vildi svo vel til að þau komu á hljómleika mína í Reykjavík. — Georg Brown fornvinur minn frá San Fransisco var hjá mér í nokkra daga — einnig heimsóttu þau mig hér snöggvast Mr. og Mrs. Jochum Ásgeirsson og Mattie Halldórsson. Ef þú gætir vildi ég að þú gætir komið kveðju og þökkum til alls þessa fólks fyrir að hafa heimsótt mig og, munað mig eftir þennan óra tíma sem liðinn er síðan ég fór frá Winnipeg. Mér og fjölskyldu minni líður ágætlega enda mun hvergi í heiminum hafa verið betra að búa á seinni árum en í þessu blessaða landi. Með kærri kveðju til þín og allra þarna vestra, Þinn einlægur, Ragnar H. Ragnar. * * * Bókasafn „Fróns" Safnið opnar á ný, eftir sumarleyfið laugardaginn 7. sept. Verður safnið opið fram- vegis 1 og 3ja laugardag hvers mánaðar frá kl. 2-4 e. h. þar til framkvæmdir við hið fyrir- hugaða félagsheimili hefjast. En gert er ráð fyrir að að þeim loknum, verði safnið op- ið fyrir almenning sérhvern laugardag. Safnvörður, sem áður frú Ólína Johnson. * * * GLIMPSES OF GIMLI Past and Present The Gimli Women’s Institute still has on hand a limited n u m b e r of copies of this booklet. Anyone wishing to purchase a copy may do so by sending one dollar to Mrs. R. Howard, Gimli, Man. TIL ÁSKRIFENDA Það komst nokkur rugling- ur á útsendingar Lögbergs- Heimskringlu meðan á póst- þjónaverkfallinu s t ó ð , enn- fremur á undan og eftir verk- fallinu vegna þess að annars flokks póstur sat á hakanum fyrir fyrst flokks pósti. B 1 ö ð i n , sem út komu eru þessi: 11. júlí — númer 28. á réttum degi, 18. júlí — númer 29. hátíðar- blaðið, — seinkaði, 25. júlí — blaðið féll niður, 1. ágúst — númer 30. — seink- aði. 8. ágúst og 15. ágúst var blaðið ekki gefið út vegna frídaga starfsfólksins, 22. ágúst, var merkt númer 34 en átti að vera, númer 31, 29. ágúst — númer 32, 5. sept. — númer 33. Væntum við að blaðið komi út reglulega eftir þetta. I. J. Dánarfregnir Ólafur Hrafnkell Olson. 24-209 Furby St., Winnipeg, lézt 25. ágúst 1968, 67 ára. Hann var fæddur í Selkirk Man., sonur Arnljótar Olson (er gaf Man. háskóla sitt mikla bókasafn.) Ólafur heitinn var í þjónustu Winnipeg Electric Railway í 41 ár, en let af störfum 1958. Eftirlifandi er ekkja hans, Elinborg; t v e i r synir Allan, kennari í suð-austur Afríku og Árni í Gillam, Man.; ein dóttir, Carole — Mrs. Robert Gillespie í Winnipeg og sjö barnabörn. Útförin frá Uni- tara kirkjunni. * * * Gesiur Sigurður (Jim) Odd- leifson lézt 24. ágúst 1968, 73 ára að aldri. Hann var sonur Gests Oddleifson, fæddur að Geysir í Nýja íslandi en átti lengst af heima í Árborg þar til hann lagði niður störf og fjutti til Winnipeg 1960. Hann var fiskimaður á yngri árum, síðar bóndi og svo í þjónustu C. P. R. járnbrautarfélagsins. Hann lifa kona hans, Minnie, sonur hans Harold í Dryden, Ont.; tvær dætur Joyce — Mrs. Walter Melnyk og Aud- rey — Mrs. Halldór Sigvalda- son, báðar í Wpg.; einn bróðir, Sigurður í Árborg og tvær systur, Mrs. Ingibjörg Bald- win í Winnipeg og Mrs. Laura Goodman í Árborg. Barna- börnin eru fimm. Útförin í Árborg. * * * Mrs. Sigurlaug Jakobína Jó- hannson til heimilis hjá Sól- borgu, e k k j u Lornes sonar hennar, að 581 Warsaw Ave., Winnipeg, andaðist 30. ágúst 1968. Hún var fædd á íslandi árið 1874 og fluttist til Canada 15 ára að aldri; átti heima að Gimli, Selkirk og svo í Winni- peg. Hún missti mann sinh, Guðmund árið 1938, tvær dæt- ur og tvo sonu á' æskuskeiði, Walter 1959 og Lorne 1964. Hana lifir Carlyle A. Jóhann- son, sonur hennar, 9 barna- börn og 19 barna-barnabörn. MESSUBOÐ Fyrsta lúterska kirkja Presíar: Séra V. J. Eylands, D. D„ Sóra J. V. Arvidson, B. A„ Sr. Laufey Olson, Djákna- systir. En1 skar guðþjónustur á hverjum sunnudegi kl. 9:45 og kl. 11.00 árdegis. Sunnudagaskóli kl. 9:45 f.h. Guðþjónustur á íslenzku, á sunnudagskvöldum, sam- kvæmt tilkynningum í viku- blaði safnaðarins. Fréttír frá íslandí JÓN LEIFS LÁTINN Jón Leifs, einn af stórbrotn- ustu listamönnum þjóðarinn- ar, er látinn og með honum er horfinn af sjónarsviðinu einn svipríkasti persónuleiki síðari tíma, maður sem hvar- vetna hlaut að vekja á sér at- hygli, e n d a eindreginn bar- áttumaður f y r i r framgangi sinna hugsjóna. En þótt Jón Leifs sé látinn munu tónverk hans lifa. Um þau hefur verið deilt, eins og allt það sem nýtt er og frum- legt. En nú viðurkenna allir, að Jón Leifs var í allra fremstu röð hérlendra lista- manna og raunar er tekið eftir verkum hans erlendis. L í k 1 e g a verður þess þó lengzt minnzt, að Jóni Leifs t ó k s t að endurskapa forna þjóðlega tónlist, er hann færði nútímanum rímnalögin, sem sungin munu verða og leikin meðan land byggist. Mgbl. 4. ágúsí ífc * * GANGA YFIR VATNAJÖKUL TÍU SPÆNSKIR fjallgöngu- garpar lögðu af stað upp að Valnajökli í gær og er ællun- in að ganga yfir hann. Þeir fara frá Jökulheimum inn að Grímsvöinum, þá niður í Esju fjöll og þaðan yfir Hvanna- dalshnjúk niður í Öræfi þar sem bíll bíður þeirra. Það er tíu manna hópur sem fer yfir jökulinn, þar á meðal ein kona. Þau eru öll þaulvön fjallgöngum og hafa klifið marga fræga tinda. Einn úr hópnum er blaðamaður og annar er frá spænska sjón- varpinu og ætla þeir hvor um sig að skýra frá' ferðinni í sínu fjölmiðlunartæki. Ferðalang- arnir gerðu ráð fyrir að ferðin tæki 18 daga. Mgbl. 4. ágúst. ❖ * * AFHENDING HANDRITA DREGST ENN Kaupmannahöfn, 30 júlí. Einkaskeyti til Mbl. EKKI er óhugsandi, að enn muni líða eitt og hálft ár, þar til niðurstaða fæst um það at- riði, hvort bætur skuli greidd- ar fyrir þau handrit, sem verða send til íslands. Þetta hefur í för með sér, að undir- skrift samningsins milli Dan- merkur og íslands, getur dreg- izt jafn lengi. Það var í desember 1966, að þáverandi stjórn á k v a ð að undirritun samningsins skyldi bíða þar til gengið hefði verið úr skugga um, að Árnasafns- nefnd gæti ekki sett fram skaðabótakröfu. Stjórnin reyndi að fá þetta útkljáð með því að höfða svokallað viður- kenningarmál og er það nú fyrir Vestra landsrétti. Hefur það dregizt talsvert, vegna þess að reynt er að upplýsa hvaða rit hafa borizt Árna- safni fyrir og eftir a n d 1 á t Árna Magnússonar. Má búast við að hálft ár líði unz úr- skurður verður kveðinn upp. Eftir dóm landsréttar verður málinu eflaust vísað til Hæsta réttar og getur það tafið af- greiðslu málsins um eitt ár til viðbótar. Mgbl. 31. júlí. Betel Building Fund In 1 o v i n g memory of my broíher, Jóhannes Johnson Kristján Th. Johnson, Árborg, Man................. $50.00 * * * Mr. Thorsteinn Myrman, 2020 Harrison Dr., Vancouver, B.C..................$38.50 * * * In memory of Margréi Thor- sieinson, Helga Klein a n. d Siefanía Magnússon Lina Gíslason Gimli, Man................. $15.00 * # # Björn Bjarnason, Árborg, Man......................$5.00 Ina Abrahamson ......... $3.00 * * * A wheel chair and a large framed picture was donated by The Lutheran Woman’s League (Bandalag Lúterskra Kvenna) and not as previous- ly acknowledged. * * * In. m e m o r y of Mrs. Jónína Johnsion Mr. and Mrs. Hannes Guð- mundson, 8688 Brook Rd. N. Surrey, B.C......... $10.00 * * * Mr. and Mrs. Thordur Guð- mundson 6119 Bernhard, Rich- mond, Calif. ....... $10.00 * * * Mr. and Mrs. Joel S. Goodman 1404 Exeter Ave., Ventura, Calif............... $10.00 Meðtekið með þakklæti fyr- ir hönd Betel’s. K. W. Johannson, 910 Palmerston Ave., Winnipeg 10, Man. ÞEGAR ALLT VAR UM GARÐ GENGIÐ Framhald af bls. 7. detta í hug, að þessar tilfinn- ingar: efasemdir, grunsemdir, tortryggni og fjandskapur hafi horfið á einni nóttu, þeg" ar styrjöldin skall á og Churchill tók sæti í ríkis- stjórninni. Margir íhaldsmenn fyrirgáfu Churchill það aldrei að hann hafði verið andstæð- ingur friðarstefnunnar og ráð- izt á hinn útþvælda friðareng- il þeirra, Chamberlain, en þótt undarlegt kunni að virðast gat hann áunnið sér mikla hylú og tryggð hjá fylgismönnum sínum. Og þegar Churchill varð loks forsætisráðherra ár- ið 1940 kom hann alls ekki sem foringi, sem þjóðin öll hefði einróma kvatt til valda af því að hann væri hinn eini er gæti bjargað málstað, sem virtist glataður. Hann kom til valda einfaldlega af því, sð Halifax lávarður var ófús a að taka forsætisráðherrastarf- ið að sér og Churchill var eini íhaldsmaðurinn annar, sem verkamannaflokkurinn g a t fallizt á að veitti samsteypu- stjórn forsæti. Hefði einhver annar verið til hefði hann fra stjórnarmiði þjóðarinnar 1 heild vérið alveg eins góður þá. Niðurlag í næsía blaði UMBOÐSMENN LÖGBERGS-HEIMSKRINGLU á ÍSLANDI SINDRI SIGURJÓNSSON pósiafgreiðslum. P.O. Box 757, Reykjavík KRISTJÁN B. SIGURÐSSON Laugavegi 31, Reykjavík Subscription Blank NORTH AMERICAN PUBLISHING CO. LTD. 303 Kennedy Si., Winnipeg 2. I enclose $6.00 for 1 year □ $12 for 2 years □ subscrip- tion to the Icelandic Weekly, Lögberg-Heimskringla- NAME ADDRESS

x

Lögberg-Heimskringla

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.