Lögberg-Heimskringla - 09.07.1970, Side 2
2
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 9. JÚLÍ 1970
Davíð Björnsson óttræður
Framhald af bls. 1.
Á ynigri árum dvaldist Dav-
íð nokkur ár í Reykjavík við
trésmíðar, en árið 1924 flutt-
ist hann vestur til Manitóba
og fékkst þar við veiðiskap
á Winnipegvatni fyrsta kast-
ið, en fluttist svo til Winni-
peg. Þar sem hann hefur átt
heima síðan.
í Winnipeg minnast menn
gjama á bókaverzlun Davíðs
Bjömssonar, en bókabúðin
hans Menzka var við lýði í
nærri tvo áratugi, og er ekki
of djúpt í árinni tekið, þótt
sagt sé, að þau árin yrðu Dav-
íð og baekur hans einn af
brennipúnktum v e s t u r -ís-
lenzks menningarlífs. „Blind-
ur er bóklaus maður“ segir
m á 11 æ k i ð . Sannleiksgildi
málsháttarins hefir orðið Dav-
íð hugstætt, og lagði hann því
fram sinn drjúga skerf til þess
að bægja hinu andlega sjón-
leysi frá löndum sínum.
Mjög hefir Davíð gefið sig
að félagsmálum Vestur-fs-
lendinga. Hann var ritari fs
lendingadagsnefndar í 18 ár,
en þeir sem hafa átt sæti í
þeirri nefnd vita, að ritara-
starfið útheimtir mikinn tíma
og óteljandi snúninga. í þeirri
nefnd má með sanni segja, að
mjög mæði á ritaranum. Rit-
ari Taflfélagsins íslenzka í
Winnipeg var Davíð í 12 ár.
Hann átti sæti í stjórnarnefnd
þjóðræknisdeildarinnar Frón
í Winnipeg í 16 ár og var
bókavörður sömu deildar í 8
ár. Hann var um skeið í stjórn
Sambandssafnaðar í Winnir
peg, og í 20 ár var hann starf-
andi meðlimur í Karlakór ís-
lendinga í Winnipeg og árs-
part ritstjóri Heimskringlu.
Davíð er tvíkvæntur. Fyrri
kona hans var Kristjana Guð-
Framhald af bls. 1.
sem fyrstur bar fram hug-
myndina um félagsheimilið,
nú fyrir meif en 50 árum
síðan.
Með komu félagsheimilisins
mun starfsemi Fróns breytast
all mikið. Ekki getur félagið
á annan né betri hátt, þakkað
þá velvild og traust, sem því
hefir verið sýnd, en með því
að taka upp á starfsskrána,
ýmsar nýungar og þjónustu-
starfsemi, sem í senn geta
orðið til þess að sameina og
e f 1 a þjóðræknislega kennd
okkar, og um leið til varð-
veizlu okkar menningarlegu
arfleifðar.
Framlög í byggingarsjóðinn
ber að stíla á Chapter Frón
c/o Jochum Ásgeirsson, 126
Lodge Ave., Winnipeg 12,
Man.
Bókasafnið er nú ólíkt bet-
ur sett en áður var, og hillu-
rými svo við vöxt að stór-
auka má við safnið. Er það
og heppilegt því stórar og
góðar bókagjafir hafa borist
brandsdóttir, og áttu þau tvo
syni, sem nú eru löngu upp-
komnir. Seinni kona Davíðs
er Hallgerður Róslaug (Jóns
dóttir) Bjömsson fædd í Dul-
uth í Minnesota. Hún lauk
kennaraprófi ung að árum og
gerðist síðan kennari í Mani-
tóba og hefir starfað þar við
miklar vinsældir í ýmsum
byggðarlögum og í Winnipeg
í fjölda ára.
Afskipta Davíðs af bókum
er þegar getið, en þar var þó
aðeins minnst á eina hlið
þeirra afskipta. En sambúðin
við bækurnar hefir náð langt
út yfir svið verzlunar og
kaupmennsku. Davíð hefir
haft hið mesta yndi af góðum
bókmenntum, ekki sízt kvæð
um og ljóðum. Hefir hann og
sjálfur fjölmargt ritað í blöð
hér vestra, og ljóð hans eru
mörgum kunn, og þó einkum
ljóðasafnið bans, sem hann
nefndi Rósviði og út kom í
Winnipeg árið 1952.
Davíð Bjömsson er bók-
fróður maður, og fékkst lengi
við það að safna bókum, eink-
um ritum, sem út hafa verið
gefin á íslenzku hér í Vestur-
heimi. Fyrir nofckrum árum
gaf hann Landsbókasafni Is
lands þetta vestur-íslenzka
safn, og varð sú gjöf eystri
sporðurinn á þeirri brú menn-
ingar og bókvits, sem Davíð
Bjömsson myndi vilja að
tengdi ísland við Vesturheim
í lengstu lög.
Davíð og konu hans árnum
við heilla á áttræðisafmæli
húsbóndans og væntum þess,
að þau megi enn koma við
sögu um mörg ókomin ár.
— H.B.
til safnsins að undanförnu.
Ber þar auðvitað fyrst og
fremst að nefna hina merku
bókagjöf, sem fröken Hall-
dóra Bjarnadóttir, gaf safninu
í fyrra, en nú alveg nýlega
hefir safnið móttekið enn
aðra bókasendingu frá fröken
Halldóru. Aðrar góðar bóka-
gjafir hafa safninu borist frá
Mrs. W. Jonasson, 530 Spence
Street, Dr. Guðrúnu Helga-
dóttur, skólastjóra í Reykja-
vík og Þjóðræknisfélagi ís-
lendinga í Vesturheimi. Þá
hefir hinn góði velunnari okk-
ar, Rósmundur Arnason, El-
fros, Sask. tilkynnt okkur um
b ó k a g j ö f, sem hann mun
senda okkur á næstunni. Er
hér um að ræða bæði margar
og merkar bækur. Bókasafnið
er opið til útlána fyrsta og
þriðja laugardag hvers mán-
aðar frá kl. 1—3 eftir hádegi
og ókeypis öllum Vestur ís-
lendingum til afnota. Hefir
stjórn Fróns hug á, þá næsta
starfsár hefst í scptcmber n.k.,
að koma á fót sérstakri út-
lánastarfsemi til annara
deilda Þjóðræknisfélagsins.
Þá vill stjórn Fróns vekja at-
hygli Vestur-íslendinga á að
láta ekki íslenzkar bækur
fara forgörðum, en muna að
bókasafn Fróns tekur fegins
hendi á móti, og að sérhver
góð bók eykur við gildi þessi
arar menningarstofnunar.
Formaður bókasafnsnefnd-
ar er frú Hrund Skúlason,
10-578 Agnes Street, sími:
786-4579.
Minjagripasafnið hafa roarg-
ir ánægju af að skoða. En
þama er nokkur hluti af safn-
munum Þjóðræknisfélagsins
til sýnis, og hefir Jakob F.
Kristjánsson skjalavörður fé-
lagsins k o m i ð mununum
smekklega fyrir í hinum nýju
sýningarskápum.
Tal- og hljómplötusafn fé
lagsins verður opnað fyrst í
september n. k. og opið á
sama tíma og bókasafnið. Það
verður að telja það upphaf
safnsins, að í tilefni af 50 ára
afmælis Fróns á s. 1. ári, sendi
Haraldur Ólafsson forstjóri
Fálkans í Reýkjavík félaginu
að gjöf tvær rausnarlegar
plötusendingar, var þar meðal
annara ágætisverka hið stór-
merka leikrit Davíðs Stefáns-
sonar „Gullna hliðið“. Þá hef-
ir hollvinur okkar Ágúst Guð-
mundsson prentsmiðjustjóri í
Reýkjavík enn á ný fært
okkur að gjöf margar ágætis
tal og hljómplötur. Það er ó-
hætt að segja, að hainn er orð-
inn drjúgur skerfurinn, sem
Ágúst Guðmundsson h e f i r
lagt til Fróns. Þá hefir enn
einn heimalandi sýnt okkur
vinsemd og rausn, en það er
Svavar Gests hljómlistarmað-
ur í Reykjavík, en frá honum
mun félaginu berast góð
plötusending á næstunni. öll-
um þessum góðu vinum okk-
ar þakkar stjórn Fróns af
heilum hug, sem og öðrum
góðum gefendum.
Formaður Tal- og hljóm-
plötunefndar f é 1 a gs i n s, er
Reynir Magnússon, 21-694
Sherbrook Street, sími: 775-
1379.
Tafl og spilakvöld. Það var
svo hér fyrr á árum, að all
fjölmennur hópur landa kom
saman, og í sömu húsakynn
um og félagsheimili Fróns er
nú. Áttu margir þar ánægju-
legar stundir, ekki aðeins við
spila- og skákborðin, heldur
og jafnvel ennþá meir við að
rabba og spjalla saman.
Stjómarnefnd Fróns er þess
fullviss, að ennþá eru margir
landar, sem gaman hafa af
að spila og tefla, og eins hafa
nokkrir tjáð okkur að þeir
mundu fagna, ef þama gæfist
tækifæri tilsögn til þess, að
kynnast og nema undirstöðu-
atriði skákarinnar. Það er því
einlæg von stjómamefndar
Fróns, að þá næsta starfsár
hefst í september n. k. að
landar noti sér þetta, hús-
næðið er þeim ókeypis, Frón
hefir ekki aðeins upp á ný og
góð spilaborð að bjóða heldur
er nóg áf úrvals spilum, sem
Sigurthor Sigurdson færði fé-
laginu að gjöf.
Kvöldvökur. Stjórnarnefnd
Fróns hefir í hyggju, að þá
næsta starfsár hefst, verði
kvöldvökur haldnar og eins
oft og möguleikar leyfa. FjöL-
breytni verður þar milkil og
fyrst og fremst keppt að því,
að gera þessar kvöldstundir
ánægjulegar. Mætti nefna,
sem dæmi Upplestra, bæði
bundið og óbundið mál, stutta
fyrirlestra og erindi allskonar
íslenzk hljómlist og leikrit,
svo og upplestur íslenzkra
góðs/kálda (af hljómplötum)
og fleira og fleira mætti
nefna.
íslenzkunám. Hin síaukna
aðsókn að Íslenzkudeild Mani-
tobaháskóla gefur fyllilega til
kynna, að nú sé vaxandi á-
hugi meðal yngri Vestur ísi-
lendinga að nema tungu feðra
og mæðra. Má að vísu þakka
íslenzka-stólnum og hinum
merku menningarfrumuðum,
sem veitt hafa þeirri stofnun
forustu frá upphafi, þeim Dr.
Finnboga Guðmundssyni og
prófessor Haraldi Bessasyni,
að þessi hugarfarsbreyting er
nú að eiga sér stað. Hér má
og þákka ritafa Þjóðræknis-
félagsins, frú Hólmfríði F.
Danielson, sem í mörg und-
anfarin ár hefir kennt ungl-
ingum íslenzku á heimili sínu.
Það, sem vakir fyrir stjórnar-
nefnd Fróns, er fyrst og
fremst að kanna hvað áhugi
fyrir íslenzku-námi er al-
mennur, og treystir hér auð-
vitað á fyllsta samstarf við
aðrar deildir Þjóðræknisfé-
lagsins, svo og einstaklinga
er áhuga kunna að hafa fyrir
þessu. Talað hefir verið um
að koma á fót námskeiðum,
bæði fyrir núbyrjendur og
svo hina, sem nokkra þekk-
ingu hafa á málinu. Um fyrir-
komulag þessara námskeiða
verður ákveðið síðar, enda
byggist hér allt á hvað þátt-
taka verður almenn. Stjórn
Fróns vill hvetja, sem flesta
til að ljá þessu máli lið og
tekur fegins hendi á móti til-
lögum og ábendirtgum er
gætu orðið þessu máli til
framdráttar, og þá vinsamleg-
ast að hafa samband við pró-
fessor H. V. Lárusson, 1173
McMillah Street, sími: 452-
7381.
Málfundir. Hér er um enn
eina nýbreytni að ræða, sem
stjórrtarnefnd Fróns hefir hug
Garlic-laukur er heilnaemur
Garlic-laukur er sóttvamarmeðal, sem hreinsar blóðið og
hamlar gegn rotnunarsýklum. í Adams Garlic Pearles er
serstök Garlic-olía er notuð hefir verið til lækninga árum sam-
an. Milljónir manna hafa um aldir neytt Garl'ic-lauks sér til
heilsubótar og trúað á hollustu hans og lækningamátt. Eflið
og styrkið heilsu ykkar. Fáið ykkur í dag í lyf jaibúð einn pakka
af Adams Garlic Pearles. Ykkur mun líða betur og fininast þið
styrkari, auk þess sem þið kvefist sjaldnar. Laukurinn er í
hylkjum, lyktarlaus og bragðlaus.
0NLY $100
ROUND-TRIP T0 ICELAND! From New York
Lowesl fares ever! New jei servicel In 1970, ihere's a new
low fare io Iceland for everyone — young, old, studenls,
groups! There's an Iceland for everyone ioo. The beauiifuí
Iceland you remember. The modem Iceland you never imag.
ined. The exciling Iceland you've heard aboui from family
and friends — and ihat you can iell about when you gei
home.
NEW FARES FROM NEW YORK — only $100* round-irip
in groups of 15 or more. Or for individuals, only $120* round-
irip for 29 to 45 days in Iceland; only $145* round-trip for up
io 28 days. Only $87* one-way for studenls who go lo school
in Iceland for 6 months or more. Many oiher low fares to
meei your needs!
*Low Season. Add up to $50 for high season, June 1 - August 9.
LOWEST AIR FARES TO ICELAND, SWEDEN, NOR-
WAY, DENMARK, • ENGLAND, SCOTLAND AND
LUXEMBOURG.
ICELANDIC airlms
& wFwmmm
630 Fifih Avenue, New York, N.Y. 10020; Phone (212)757-8595
37 South Wabash Avenue, Chicago, 111. 60B03;
Phone (312) 372-4792
For full details folder, contact your lravel agent or Icelandiic
Airlines.
Félagsheimili Fróns