Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 27.07.1972, Qupperneq 10

Lögberg-Heimskringla - 27.07.1972, Qupperneq 10
10 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 27. JÚLl 1972 Úr blöðunum frá íslandi Ásgeir Ásgeirsson, fyrrver- andi forseti íslands fékk ný- lega gullmerki Norrænu sund- keppninnar fyrir að hafa synt 200 metrana 50 sinnum frá upphafi keppninnar 1. apríl s. 1. Um sama leyti sagði hann Morgunblaðinu að það væri ekki erfitt að synda 200 metr- ana þegar maður hefði stund- að sund að staðaldri um 70 ára skeið, en hann varð 78 ára hinn 13. marz s. 1. Hann stund- ar enn sund á hverjum morgni, kveður það gott fyr- ir heilsuna og segist halda því áfram á meðan hann lifi. Þrír íslenzkir læknar fluttu búferlum frá Sviþjóð til ís- lands í júní, og leigðu flugvél til að flytja sig, fjölskyldur sínar og al'la búslóð milli landa. Vélin flaug beint frá Stokkhólmi til Akureyrar, og skilaði þar tveim læknunum og öllu sem þeim tilheyrði, hélt svo áfram til Reykjavík- ur með þann þriðja. Vélina á Flugfélag íslands, og hafði hún flutt hljóðfæri sænsku útvarpshljómsveitar- innar heim til sín frá íslandi. Notuðu þá læknarnir tæki- færið og tóku vélina á leigu. Sögðu þeir flutnings kostnað- inn hafa reynst allt að helm- ingi lægri en ef þeir hefðu flogið heim með fjölskyldum- ar og sent bíla og húsbúnað með skipi. Unglingsstrákar á íslandi láta tilledðast og klippa sig, ef hárprýðin er því til fyrirstöðu að þeir komist í þjálfun hjá Landhelgisgæzlunni. Þetta er þriðja árið sem Landhelgis- gæzlan tekur unglinga á aldr- iniun 15-16 ára til kennzlu og er þeim skipt niður á varð- skipin eftir þjálfun í landi. Piltarnir eru 21 þetta árið, allir svo áhugasamir að þeir gegndu fyrirmælum um að láta klippa sig. Þó fóm sumir varlega í fyrstu atrennunni hjá hárskeranum. Einn varð að fara þrisvar áðurenn lokk- arnir þóttu nægilega stýfðir. Sænsk kona hefir verið ráð- in forstjóri Norræna hússins í Reykjavík. Hún heitir Maj- Britt Imnander, er 37 ára, var valin úr hópi 23 umsækjenda frá öllum Norðurlöndum, og er ráðin til fjögurra ára. Maj- Britt Imnander var deildar- stjóri við bókarforlag í Stokk- hólmi þegar hún tók við hinni nýju stöðu. Hún lauk magister prófi frá Uppsala háskóla árið 1960 í landafræði, norrænum málum og bókmenntasögu. Hún stundaði nám í íslenzku við Háskóla íslands 1963-1964, og tók þátt í námskeiði í ís- lenzku fyrir erlenda stúdenta sumarið 1959. Nú er Olympíunefnd íslands að undirbúa þátttöku Islend- inga í Olympíu leikimum í Munchen í Þýzkalandi í sum- ar. Hefir hún leitað til sveita- stjómanna í landinu til fjár- COMPLIMENTS OF LUNDAR GARAGE FORD FALCON & MERCURY GENUINE PARTS & ACCESSORIES REPAIRS TO ALL CARS GAS - OIL - TIRES . BATTERIES FARM EQUIPMENT P. O. CHUMY SIGURDSON Bu*. Phone 762-5321 Ret. 762-5483 LUNDAR MANITOBA Compliments of . . . K. THORARINSON LTD. ROBINSON STORES GENERAL STORE & LUMBER Agent: PIONEER POWER SAWS OMC SNOW CRUISERS Phone 378-2231 RIVERTON MANITOBA stuðnings af þeirra hálfu. En áður hafði Reykjavíkurborg riðið á vaðið og samþykkt 300 þúsund króna framlag, 100 þúsund krónur 1971 og 200 þúsund krónur 1972. Flugfélag íslands hefir sam- þykkt að gefa flugvélina Gljá- faxa til notkunar við land- græðslustörf, og á hún að taka við þeirri vinnu ekki síðar en við lok sumaráætlunar Flug- félagsins 1972. Verður hún notuð til að dreyfa áburði á öræfi landsins og örfokaland. En breytingar á slíkum flug- vélum em svo miklar að vart er hægt að nota þær til ann- ars á eftir. Félag íslenzkra at- vinnuflugmanna hefir sam- þykkt að félagar þess leggji fram vinnu endurgjaldsiaust við slíka áburðardreyfing. With Compliments of Cowin Steel Co. Ltd. REINFORCED CONCRETE ENGINEERS Reinforcing Steel PHONE: 775-8161 1137 Pacific Ave. Winnipeg 3, Man. GREETINGS . . . from JENKINSON'S TOM-BOY STORE MEATS & GROCERIES (íslenzkur harðfiskur) Satisfied Customers Our Best Recommendation Phone 482-3150 or 482-3151 335 Main Street, Selkirk, Mon. Compliments of . . , Mr. and Mrs. BOB MORSETTE Your Imperial ESSO Agent Phone Office 762-5653 — Res. 762-5220 LUNDAR MANITOBA ALÚÐAR ÁRNAÐARÓSKIR til allra íslendinga í tilefni af Islendingadeginum á Gimli ®. $c 1E. fflaalf S’íarr GENERAL MERCHANTS JOHN GUTTORMSON, SR. JOHN V. P. GUTTORMSON, JR. Lundar Phone 762-5331 Mon. Congratulations . . . to our many lcelandic Friends on their Annual Celebration International Jewellers IMPORT CO. Diamonds - Wotches - Gifts - Transistor Radios All Work Guoranteed Lowest Prices or Money Refunded Prop. V. RAVLICH 747 Ellice Ave. PHONE 774-0476 Winnipeg 10, Man. SELKIRK LUMBER COMPANY • Sash • Doors • Wallboard • Cement • Shingtes and Concrete Blocks, mode at Selkirk For Prices Call Winnipeg Beach, Phone 389-2024 Selkirk Phone 482-3141 Selkirk Manitoba WITH THE COMPLIMENTS OF . . . S. A. TH0RARINS0N BARRISTER ond SOLICITOR 708 - 294 Portage Ave., Wpg. 1 Somerset Place Office Phone 942-7051

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.