Lögberg-Heimskringla - 02.06.1977, Blaðsíða 1
Þefla er þitt eintak
Mra Holgi Danielson Jan 77
Bojc 10
GIMLI, Man.
ROG IBO
91 ÁRGANGUB
WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 2. JÚNÍ 1977
' NÚMER 21
GRETTIR L'JOHANNSON GEFUR STÓRGJÖF TIL BÓKASAFNS!NS
í WINNIPEG
GRETTIR L. JOHANNSON,
fyrrverandi aðalræðismaður,
hefur fært bókasafninu í
Winnipeg, “Winnipeg Cen-
tennial Library”, bókasafn
sitt að gjöf. Safn Grettis nær
yfir um 500 bækur og tíma-
rit. í bréfi til forstöðumanns
safnsins, segir Gret.tir meðal
annars:
estates. Such a program of
acquiring. books could be a
public service and bc given
prominence in the news me-
dia, and as far as Icelandic
books and translations are
concerned, people of Ice-
landic background could be
reached by notification of
this solution to a recurring
í viðtali við blaðið nefndi
Grettir, að bókasafn Þjóð-
ræknisfélagsins væri nú i
geymslu hjá Icelandic Can-
adian Frón ,en ekki gæfi
hann séð, að mikið gagn
væri að því þannig, pökkuðu
niður í kassa einhvers stað-
ar niðri í kjallara, eins og
það hefur verið síðustu árin.
Sumir vilja, að þetta bóka-
safn verði geymt í Norrænu
Húsi, sem einhverjar hug-
myndir eru um að reisa í
Winnipeg, en sem verður
aldrei, það er bæði of dýrt
að koma því upp, og það
verður of dýrt að reka það
sagði Grettir.
Það þyrfti því endilega að
gera eitthvað raunhæft í
sambandi við þessar bækur,
sagði Grettir, og vonandi
verður þetta litla framlag
mitt einnig til þess að hvetja
aðra til þess að koma bókum
sinum á öruggan stað. þar
sem almenningur getur haft
not af þeim. 1 bókasafni Há-
skólans er líka margt góðra
bóka, og nú Khfur hið nýja
myndarlega bókasafn einnig
fengið nokkrar bækur, sagði
Grettir, sem fólk getur haft
aðgang að.
Bókagjöf Grettis er nú
komin í hendur starfsmanna
safnsins, sem eru að vinna
við skrásetningu og flokkun
bókanna, en formleg afhend-
ing gjafarinnar verður síðar.
I am now prepared to do-
nate my modest library of
approximately five hundred
books and periodicals to the
Winnipeg Centennial Libra-
ry. This collection contains
quite a number of books
written in Icelandic a n d
books in the English lan-
guage dealing with Icelandic
subjects. This gift would be
an outright donation with-
out any conditions except
that the material given be
made available for the use of
the general public for refer-
ence and lending.
This gift eould possibly be
the forerunner to subse-
quent gifts from'people who
^are desirous of finding suit-
able lödging place for their
inactive books acquired from
problem through the col-
umns of the Icelandic week-
ly, Lögberg-Heimákringla.
1 viðtali við Lögberg-Heims-
kringlu sagði Grettir L. Jo-
hannson, að sér þætti rétt að
láta þetta nýja glæsilega
bókasafn njóta bóka sinna,
og eina skilyrðið, sem hann
hefði sett, er að almenning-
ur hafi aðgang að bókunum,
bæði ti lþess að skoða þær
og kanna, og eins til þess að
fá þær lánaðar. — Nú eru í
safninu um 300 þúsund bóka
titlar, en forstöðumaðurinn,
Mr. John Dutton hefur sagt,
að stefnt sé að því, að fjölga
þeim um önnur 300 þúsund,
svo þeir verði alls um 600
þúsund.
WINNIPEG
CENTENNIAL LIBRARY
Þetta nýja bókasafn var
formlega opnað almenningi
4. þessa mánaðar af borgar-
stjóranum, Stephen Juba. —
Meðal viðstaddra var forsæt
isráðherra Manitobafylkis,
Edward Schreyer.
Þetta safn var meðal ann-
ars reist til að minnast
hundrað ára afmæli Winni-
pegborgar, og er það afar
fullkomið. já
f NÆSTA BLAÐI
Fimmtudaginn 9. júni n.k.
verður Dr. Richard Beck
80 ára. — Þann sama dag
kémur næsta tölublað
Lögbergs-Heimskringlu út
og verður það að veru-
legu levti helgað þessum
merku tímamótum í lífi
Dr. Beck’s.
Hans G. Andersen, sendiherra situr
Hafrétl-arróðstefnuna « New York •v
Hafréttarráð'stefnan var sett
i New York 23. þ.m. og er
gert ráð fyrir, að henni ljúki
15. júlí. Hans G. Andersen,
sendiherra, sem er formaður
íslensku sendinefndarinnar, ,
sagði í viðtali við Ríkisút-
varpið fyrir nokkrum dög-
um, að segja mætti, að öll
meginhagsmunamál íslend-
inga væru nú þegar komin í
höfn, en engu að siður
myndu nefndarmenn taka
virkan þátt i störfum ráð-
jstefnunnar. Enn væri óljóst,
hvort unnt yrði að ganga
endanlega frá samningu Haf
réttarsáttmála á þessari ráð-
stefnu, en vonir stæðu til
Magnús T. Ólafsson
talar í New York
Magnús Torfi Ólafsson, al-
þingismaður og fyrrverandi
menntamálaráðherra verður
aðalræðumaður Islendinga-
félagsins í New York á þjóð-
hátíðardaginn 17. júní n.k.
Ólafur Jóhannesson, dóms
mála- og viðskiptaráðherra
verður, eins og sagt hefur
verið frá í Lögbergi-Heims-
kringlu sérstakur gestur á ts
lendingadeginum hér í Mani
toba í ár, og er gert ráð fyr-
ir, að ráðherrann verði hér i
tíu daga og ferðist um Islend
ingabyggðir. já
Breytingor á
utanríkisþjónustunni
Fyrirhugaðar eru nokkrar
breytingar á íslensku utan-
ríkisþjónustunni, þannig að
þrír sendiherrar flytjast á
milli landa. Ingvi S. Ingvars
son, sendiherra í New York
og fastafulltrúi íslands hjá
Sameinuðu þjóðunum verð-
ur sendiherra í Stokkhólmi.
Guðmundur í. Guðmunds-
son, sendiherra þar tekur við
embættinu í Brussel og verð
ur jafnframt fastafulltrúi ís-
lands hjá Atlantshafsbanda-
laginu (NATO),Nog Tómas
Á. Tómasson í Brussel tekur
við embætti Ingva i New
York.
Gert er ráð fyrir, að þess-
ar breytingar komi til fram-
kvæmda á næstu tveimur
mánuðum. já
þess, að hægt yrði að ljúka
því, svo ekki þyrfti að boða
enn til nýrrar ráðstefnu síð-
ar.
Auk sendihcrrans sitnr
Lúðvík Jósefsson, alþingis-
maður og fyrrverandi sjáv-
arútvegsráðherra ráðstefn
una fyrir íslands hönd, og
von er á fleiri fulltrúum sið-
ar. jó
Fyrslu
sumargestirnir
Á SUNNUDAGINN lenti
Flugleiðavél á Winnipeg-
flugvelli, og voru með
henni um 140 farþegar,
sem hingað eru komnir á
vegum Ferðaskrifstofunn-
ar Sunnu. Sumir farþeg-
anna hafa lent í einhverj-
um erfiðleikum, sem ekki
verður nánar farið út í
hér að þessu sinni, en sagt
er frá komu fólksins í for
ystugrein blaðsins í dag. I
næsta blaði verða ef til
vill fleiri fréttir af fyrstu
sumargestunum. já
Selkópar flegnir
lifandi
Haft hefur verið eftir sviss-
neskum dýraverndunar-
manni, Franz Weber, að ver-
ið geti, að um helmingur
þeirra 92.000 selkópa, sem
drepnir voru við austur-
strönd Kanada á vertíðinni í
ár, hafi verið flegnir lifandi.
Það er bannað samkvæmt
kanadískum lögum, og nú
vill Weber ,að veiðimönnun-
verði stefnt fyrir rétt. — Þá
hefur hann einnig skorað á
Sameinuðu þjóðirnar, og
aðrar alþjóðastofnanir, að
þær komi því til leiðar að
selveiðar verði bannaðar við
Nýfundnaland í ár ,svo unnt
verði að kanna, hve stór sela
stofninn þar er.
Töluvert var um það i mars
mánuði sl., að fólk í Kanada
mótmælti seladrápinu, og
var víða efnt til sérstakra
mótmælaaðgerða. já