Lögberg-Heimskringla - 26.10.1990, Side 8
8 • Lögberg-Heimskringla • Föstudagur 26. október 1990
í messunni rifust þeir um Njálu
Margrét Björgvinsdóttir ræðir við Karólínu Gunnarsson
Viðtal þetta var fyrst birt í Heima
er Bezt í maí 1988
Karólfna Gunnarsson
Það hafa margir heimsótt Karólínu
Gunnarsson í Winnipeg, og er mér óhætt
að segja að allir fari léttir í bragði af
hennarfundi. Aldrei talarhún tæpitungu
eða slær ryki í augu nokkurs manns.
Karólína býr við River Avenue á bökkum
Assiniboinárinnar sem liðast í ótal
bugðum um miðborg Winnipeg. Hún er
hætt störfum fyrir nokkrum árum en
hugðarefni erumörg. Stofumar erufullar
af bókum og dillandi hlátur Karóh'nu
mætir manni við útidyrnar.
Blaðamennskan var ævistarf hennar,
ogvannhún lengst afvið dagblaðið Free
Press sem er stærstablað sem gefið er út
í Manitoba. Síðar var hún ritstjóri
Lögbergs-Heimskringlu. Þegar viðtal
það sem hér fer á eftir var fest á spólu,
vorukosningarframundan ífylkinu. Ég
spurði hana fyrst hvað henni væri efst í
huga í sambandi við þessar kosningar.
„Égvonabaraað sósíalistamirvinni“,
sagði hún og hló hátt. „Þeir em mínir
menn“. Og þar með vildi hún ekki ræða
meira um það. Þá spurði ég hana hvað
hún væri að gera oghugsaþessadagana.
„Ég geri svo lítið, geri bara eiginlega
ekkert nema lesa bækur - gamlar
skmddur. Annars er ég að hugsa um að
þýða eitthvað - úr íslensku á ensku, er að
leita mér að krassandi draugasögu. Ég
hef stundum gert það að þýða
draugasögur. Þær era svo skemmtilegar
og magnaðar. Sumt af því hefur tekist
heldur vel, en það er orðið langt síðan, og
ég veit ekki einu sinni hvar þetta dót er.
Það birtist mest í íslensku blöðunum
hér. Éghef þýttýmislegt en engu haldið
saman. Það er auðvitað skömm að því“.
Við vikum talinu að starfi hennar hjá
Free Press.
„Það vom mín skemmtilegustu ár“,
segirhún. „Alltvar skemmtilegt. Öllum
kom vel saman og allir vildu hjálpa h ver
öðmm. Meira að segja vom margir af
okkar bestu vinum við dagblaðið Trib-
une, sem var keppinautur okkar. Þá
vomblöðin tvö hér í Winnipeg. Þá rifust
allir og öllum kom vel saman. Nú er
Tribune hætt og var mikill skaði að því.
Mér hefur líka alltaffundist að þegar tvö
blöð sameinast, þó það hafi ekki verið í
þessu tilfelli, þá deyi bæði. Það er hreint
sjálfsmorð. Ég var einn af ritstjómm
bændablaðsins og átti að sinna
sérstaklega málefiium kvenna, en var
samt send um allt sem fréttaritari og
fékkst við hin óhkustu mál. Ég fékk
skemmtilegverkefni ogvar
alltaf ánægð“.
Gekkstu á blaðamann-
askóla?
„Nei það gerði ég nú
ekki, hafði dundað við að
skrifafrá því ég varkrakki.
Nú, áður en égfór fastráðin
til Free Press, vann ég við
vikublað í smábæ í Sas-
katchewan, þar sem íbúar
voraum tvöþúsund, envið
þjónuðum nærliggjandi
þorpum og sveitum. Fyrir
stríð hafði ég skrifað
greinar og pistla fyrir
útvarpið. Annarsbyijaði ég
á smásögum. Það var nú
eiginlega þegar ég var
krakki. Þá skrifaði ég
jólasögu fyrir bamablaðið
Sólskin, en svo neitaði ég
alveg að senda hana til
blaðsins, þó pabbi legði
mjög hart að mér. Mamma
hvatti mig að vísu ekki. Ég
veit ekki hvers vegna.
Henni hefur kannski þótt
sagan léleg.
Sem sagt, hún var aldrei
send. Ég var svo komin
undir tvítugt þegar égfór á
helgarblaðiðhjáFree Press
og seldi fyrstu söguna
mína. Ég gekk fyrir
ritstjórann - og mikið var
ég feimin. Hann sagði við
mig, „komdu aftur á
þriðjudaginn, þá verð ég
búinn að lesa hana“. „Já,
en þetta er jólasaga“,
svaraði ég. „Þá verð ég að
lesa hana strax“, sagði
hann. „Svo kom ég næsta
dag og hann sagði mér að
þeir væm að setja söguna
mína. Hann sagðist ætla
að borga mér fimm dollara
fyrir hana. Ég sagði honum
að éghefði verið ánægð með
að sjá hana bara á prenti
og fá ekkert borgað. En
þetta var nú svo sem ekki
hátt verð sem þeir borguðu hjá þessu
rika blaði. En ég var ánægð. Ætli ég hafi
ekki verið komin undir tvítugt þegar
þetta var“.
Hvemig var skólagöngu háttað á
þínum imgdómsárum?
„Ég gekk nú skelfing h'tið á skóla
nema barnaskóla og verslunarskóla.
Eins og ég segi þeim, þá er ég alveg
ómenntuð (hlær hátt). En það var nú
svona í þá daga. Það var ekki meira að
hafa í sveitunum. Og hreint ekkert við
því að segja. Fólkið menntaði sig sjálft
eftir bestu getu.
Nokkm eftir að ég hætti hjá Free
Press, tók ég að mér að ritstýra Lögbergi-
Heimskringu. Konur áttu að hætta hjá
Free Press sextugar en karlar sextíu og
fimm og Guð og karlmennimir vita á
hverju það misrétti var byggt“. Og
Karólína spyr hvort ég haldi ekki
ömgglega að Guð sé karlkyns. „En
annars ætti ég ekki að kvarta
því ég fékk undanþágu og
vann á blaðinu þar til ég var
sexti'u og sjö ára og mátti
aldeilis vera ánægð með
það“.
Já, Karólína tók við
ritstjóm Lögbergs-Heims-
kringlu, sem er íslenskt
vikublað, gefið út í Winni-
peg. Égspurðihvemighenni
hefði líkað það starf.,, J a það
var nú nokkuð erfitt skal ég
segja þér. Blassaðir karl-
amir sem stóðu ÍTamarlega
í málum Islendinga í Winni-
peg, þeir vom með nefið niðri
í öllu. Stundum var ég ósköp
þreytt á þeim og þessari
endalausu afskiptasemi. Ég
skal nefiia þér eitt dæmi. í
þorskastríðinu rann mér
virkilega í skap við Bretana
og gat ekki setið á mér að
skrifa nokkuð harðorðan
leiðara í blaðið. En veistu, í
þá daga mátti ekki skipta
sér af neinni pólitík, og
þannig er það raunar enn.
Það er dauðadómur yfir einu
blaði. Svo varð einn af
þessum körlum al veg vitlaus
og spurði mig hvort ég gerði
mér grein fyrir að þetta yrði
þýtt og lesið yfir í breska
sendiráðínu. Ég sagðist
verðamjögfegin, þvítil þess
væri leikurinn gerður. Þá
spurði hann mig hvort ég
værikommúnisti. Égsagðist
ekki vita það. Svo sagði ég
að ég vissi varla hvað
kommúnisti væri. „Veist þú
það?“ spurði ég hann. Hann
svaraði því ekki, svo að ég
sagði: ,,Ég veit hvað
kommúnisti er, það er sá
sem er þér ekki sammála”.
Hann svaraði því ekki
heldur“.
Framhald í næsta
blaði
Yfirlýsing Bandaríkjaforseta:
Leifur Eiríksson
var sonur Islands
Dagur Leifs Eiríkssonar verður haldinn hátiðlegur í Bandaríkjunum
á þriðjudag, 9. október, eins og gert hefur verið síðan 1964. Athygli
vekur að í yfirlýsingu George Bush forseta í tilefni dagsins er í
fyrsta sinn tekið skýrt fram að Leifur hafi verið Islendingur en áður
hefur hann verið sagður norskur. Yfirlýsingin fer hér á eftir.
Þegar Leifur Eiríksson steig á
land í Norður-Ameríku fyrir nær
þúsund árum ruddi hann braut sem
síðar var farin af mörgum kynslóð-
um hraustra evrópskra landkönn-
uða og trúboða. Hann efndi einnig
til fyrstu tengslanna, sem nú hafa
staðið í aldir, milli þjóða þessa
meginiands og íbúa Norður-Evrópu.
Leifur Eiríksson var sonur Éiríks
rauða, er hafði forystu fyrir fyrstu
Evrópumönnunum sem námu land
á Grænlandi, og talið er að Leifur
hafi snúið aftur til lands forfeðra
sinna, Noregs, árið 1000. Sam-
kvæmt Eiríks sögu rauða snerist
ungi siglingakappinn þar til krist-
innar trúar. Síðar fékk Ólafur kon-
ungur Tryggvason hann til að snúa
aftur til Grænlands og stunda þar
kristniboð. Og enn vatt Leifur upp
segl.
I einni af mörgum ferðum sínum
um úthöfin kannaði „Leifur heppni“
hluta Norður-Ameríku. Margir fleiri
fylgdu í fótspor hans, í von um að
sjá sjálfir hin auðugu og fögru lönd
sem hann hafði nefnt Helluland,
Vínland og Markland.
Frá því að Leifur Eiríksson fyrst
steig á land á meginlandi Norður-
Ameríku hafa kynslóðir norrænna
karla og kvenna komið til Banda-
ríkjanna og fært með sér auð ein-
staks menningararfs síns. Innflytj-
endur frá íslandi, Grænlandi, Nor-
egi, Danmörku, Svíþjóð og Finn-
landi hafa auðgað land okkar og
bætt sínum eigin köflum við sögu
þróunar Bandaríkjanna sem ávallt
er verið að rita.
í hvert sinn sem við minnumst
Leifs Eiríkssonar, þessa hrausta
sonar Islands og sonarsonar Nor-
Stytta Leifs Eiríkssonar við
Hallgrímskirkju í Reylyavík.
egs, 9. október fögnum við einnig
glæstri norrænni arfleifð þjóðar
okkar. Siglingakappinn hugprúði,
með neista trúboðans, við tengjum
nafn hans svo oft við ævintýri og
rómantík og hann er okkur einnig
kært tákn um sterk og varanleg
bönd sem eru milli íbúa Banda-
ríkjanna og vina okkar á öllum
Norðurlöndunum.
Sameinað Bandaríkjaþing ákvað
2. september 1964 að biðja forset-
ann að lýsa 9. október á hveiju ári
Dag Leifs Eiríkssonar. Þess vegna
lýsi ég, George Bush.’forseti Banda-
ríkjanna, 9. október 1990 Dag Leifs
Eiríkssonar og gef viðeigandi emb-
ættismönnum skipun um að draga
fána þjóðarinnar að hún við allar
opinberar byggingar þann dag. Ég
hvet einnig íbúa landsins til að nota
tækifærið og kynna sér betur hinn
auðuga arf Norðurlandabúa í
Bandaríkjunum og forna sögu meg-
inlands okkar.
ICELfiNDIC EXERCISE
e-^Ú/r- tf/géa (T.
$& tK
OM A9 VÚ VtKQlK
A9 V5Í?A ÁFtf AM \
Q&G/\ \)IG&b
1. I’m afraid you have to keep on wea/ing the prison
unHorm, Sigga Vigga
0 KöKfvWSSllÓtfANfV Vlt'ilTOI,
AFlbtf A9 Vú SfA9
£Á9/N \ A9 'b'ÍKjÚKA
Lsi
K.
i\’
A9 VEKA WE/i.f'íoKT-
Mú<b trM 9f?40MuM o,
v XUKfv/QSSTJO'KAN'b
2. The warden dreamt again that you were determined to escape.
How is it possible to run a whole prison according to the waiden’s dreamsl