Alþýðublaðið - 04.10.1960, Blaðsíða 9
TínriimiiiiiiriiiífTiir
ÞAÐ er ekki satt,
allt a3 því hrópaði
hann. Hann sleppti tak
inu á grönnum öxlum
hennar, hörfaði frá
henni og starði á hana,
skelfdur, þögull.
Hún stóð steinþegj-
andi fyrir framan
til hennar án þess að
segja til nafns, — n«kk
uð svo lágkúrulegt,
— nokkuð svo hund-
ingjalegt, — þú ert
ekki þannig, ég veit,
sagði hann og starði
fast á hana. Augu
hennar, sem andartak
mættu hans, hvörfluðu
undan aftur. Hún
hneigði höfuðið ennþá
lengra niður.
— Hvað hefur hún
gert þér? æpti hann, —
góði guð, hvað þetta er
ljótt, alveg tiígangs-
laust, — ljótt. Hún
hefði aldrei þurft að fá
að vita neitt um okk-
ur — um þetta hér, það
var um það samið frá
byrjun, var kannski
ekki syo? Svaraðu
mér?
— Jú, það var um-
samið, hún kinkaði sljó
lega kolli.
— Og ég, sem hélt ég
gæti treyst þér. Ég sem
hélt, að ég hefði loks
fundið manneskju,
sem — guð í himnin-
um, hvað ég hef verið
heimskur!, hrópaði
Játning
hann, með drúpandi
höfði, handleggirnir
héngu máttlausir nið-
ur. Jeanne d‘Arc á bál
inu, hugsaði hún án
nokkurs hiturleika.
Varir hennar herptust
saman. Bráðum er því
lokið, hugsaði hún,
bráðum.
— Það er ekki satt,
endurtók hann með
iijndarlegiíj j/onle<yqi í
röddinni. — Þú hefur
ekki gert þetta? Ég
trúi því ekki, sagði
hann og trúði því samt.
— Ég skil það ekki,
sagði hann og hann
virtist svo örvænting-
arfullur, að hana lang
aði skyndilega til að
koma við hann, strjúka
með hendinni, hvítt ör
væntingarfullt andlit
hans. En hún stóð graf
kyrr og þögul.
— Ég hefði trúað því
um hverja sem var
aðra, sagði hann og fór
að ganga Um gólf, ná-
fölur og stífur í fram
an með kreppta hnefa.
— Hverja sem var
aðra. En ekki um þig.
Þú ert ekki þannig,
heyrirðu það! Að skrifa
nafnlaus bréf til kon-
unnar minnar, hringja
að þú ert ekks þannig,
hrópaði liann og stanz
aði fyrir framan hana.
Nei, ég er ekki þann
ig, hugsaði hún, — eða
er ég það? Fólk getur
leiðzt út í margt/ —
eíhnigi hið allra lág-
kúrulegasta, — en það
skilur hann ekki.
— Geturðu ekki svar
að, manneskja, hrópaði
hann og hristi hana aft
ur til, svo höfuð henn-
ar dinglaði fram og
aftur. —1 Þú hlýtur þó
að geta varið þig? Eða
að minnsta kosti gefa
skýringu? Hvað var
það, sem kom þér til
að gera þetta eftir all
an þennan tíma?
Hvað fékk mig til að
gera það? Skugga af
brosi, litlu gleðilausu
brosi, brá á andljit
hennar.
— Ég gæti lamið
þig, hvæsti hann, ef
ekki — ef ekki —
— Ef ekki hvað?
spurði hún, og það var
það fyrsta, sem hún
sagði allan þann tíma,
sem hann hafði ætt
um, hrópað og rifið í
hár sér.
— Ef ég hefði ekki
slíkan viðbjóð á þér,
hann, ákafur.
Já, hvað þú hefur
verið heimskur, hugs-
aði hún. Jeanne d‘Arc
á bálinu, Jeanne d‘Arc.
— En svona eruð þið
allar saman, sagði
hann grimmdarlega, —
þú hefur aðeins mis-
reiknað þig, vina mín.
Þú hélzt víst, að aðeins
ef konan mín vissi það,
þá værirðu búin að kló
festa mig. —
Skyndilega lyfti hún
höfðinu og sagði und-
arlega skýrri og ákveð
inni röddu:
— Nú skaltu fara.
Hann sneri sér við í
dyrunum og sagði
harmþrunginn:
— Hvernig gaztu
gert það?
Hún heyrði fótatak
hans niður stigann og
að útidyrahurðinni var
skellt aftur. Hann lét
víst lykilinn einhvers
staðar, hugsaði hún
sljólega. „Hvað hefur
hún gert þér? „Hvað
hún hefur gert mér?
— Tekið hamingju
mína, líf mitt, tekið
allt frá mér með því
einu að vera til. Guð
veit, að ég GÆTI hafa
skrifað þessi bréf, ég
gæti hafa gert það, sem
verra var . . .
<Zt*t
E
B*
h"
! i B i B 8 0
Ungbarnafafnaður
í miklu úrvaii
Ungbarnabolir
Bleyjubuxur
Bleyjur, tvíofnar
Ungbarnapeysur
Verð frá kr: 22,60
Samfestingar
Sokkabuxur
Útigallar
0 B K
B
a
B
B
B
■
B0
H
a
aH
_H
Johnson's:
barnapúður
barnasápa
barnakrem
barnaolía
eyrnapinnar
_H H H H H H H
ibihhihb
VERZLUNIN
© m
Laugavegi 70
Sími 14625
H H ■
ORÐSENDING FRA
Stjörnuljósmyndum
Eins og að undanförnu önnumst við allar myndatökur
í verksmiðjum, heimahúsum og á stofu, Flókagötu 45.
Heimamyndatökur unnar eins og á stofu. Þeir við-
skiptavinir sem hafa fengið prufur frá okkur fyrr e'ð'a
síðar eru vinsamlega beðnir að senda pantanir sínar
stem fyrst ef þeir óska eftir að fá fullunnar myndir
fyrir jól.
STJÖRNULJÓSMYNDIR
Flókagötu 45 Sími 23414. •—- Elías Hannesson.
Dansiléii Heiðars Ársfvaidssonar
Kennsla í barna, unglinga.,
fullorðins og hjónaflokk
um hefst í Vonarstræti 4,
sunnud. 9. okt. Kenndir
verða nýju og gamlu dans
arnir, aðeins kennt um
helgar.
Innritun og upplýsingar í
síma 10 11 8 daglega frá
1—3 og 8—10 e. h. .
Guðbjörg Hlíf
Heiðar Ásvaldsson.
£
(ritari)
óskast að Náttúrugripasafni íslands frá næst
komandi áramótum eða nú þegar. Vélritunar
og málakunnátta nauðsynleg. Umsóknir send
ist Náttúrugripasafninu fyrir 10. október næst
komandi.
Alþýðublaðið
4. okt 1960