Alþýðublaðið - 04.10.1960, Blaðsíða 14
1
Kaupum krukkur
með skrúfuðu loki undan
barnamat á kr. 1,00 stk.
Tómstundabúðin.
Blóma- og græn-
melisskállnn
við Nýbýlaveg og
Kársnesbraut.
Falleg blóm — Ódýr blóm
Blómstrandj pottablóm og
fallegur vínviður,
Nellikkur og rósir, dag-
lega grænmefii með haust
verði.
Opið aila daga frá
kl. 10—10.
Rafmapsperur
fyrirliggjandi:
15, 25, 40, 60
75 og 100 vatta.
Getum enn afgreitt á gamla
verðinu. — Sendum gegn
póstkröfu.
Marz Trading Company h.f.
Klapparstíg 20 - Sími 17373
Guðlaugur Einarsson
Málflutningsstofa
Aðalstræti 18.
Símar 19740 — 16573.
Lesið AiþýðublaðiS
Framhald af 4. síðu.
hana endurborna í þeirri
þjáningu, sem það líður.
V.
Guðmundur Daníelsson er
svo mennskur, að ég mundi
ekki taka það í mál að hafa
hann öðru vísi, þó að ég ætti
þess kost að breyta honum.
Ilenn hefur eiginlega ekki
fleiri galla en svo, að hann má
engan missa. Hann hefur held
ur ekki svo yfirþyrmandi
kosti að það sé nauðsyn vegna
samfélagsins og daglegrar um-
gengni að svipta hann ein-
hverju af þeim. Hann er svo
mennskur, að allt sannmann-
legt á í honum félaga, bróður
— og forsvarsmann ef í nauð-
ir rekur. Ég held, að þetta sé
heilladís og ættarfylgja þeirra
frænda hans. Sigurður Daní-
elsson á Kolviðarhóli, föður-
bróðir hans, var gæddur þess-
um yndislega mannleika. Ég
kom þar einu sinni hrakinn að
kveldi í vonzku veðri. Hver
smuga var yfirfull, setið yfir
rjúkandi krásum í hverju
horni, svo að vart varð þver-
fótað um gólf. Þá kom Sig-
urður Daníelsson á móti mér,
bauð mig velkominn, afsak-
aði þrengsli, en_ kvað allt
myndi bjargast. Ég sé hann
fyrir mér, hvar hann nam
staðar á þröskuldi milli
stafa, litaðist um þægilega
sætkenndur og orðaði fyrir
mig stefnuskrá húmanismans
— mannleikans — betur en
gert hefur verið áður eða síð-
an. Hann mælti:
Allir verða að lifa -— og Sig-
urður á Hólnum líka.
Það er upphafin tillitssemi
í þessum tállausu orðum, líkn-
sön og úrræðagóð. Og djúp
sjálfsvirðing, karlmannlegt og
einart áskyn síns eigin gildis,
sjálfsins, sem er örlög bundið
samfélagi lifenda.
Sagan er um Sigurð á Hóln-
um. Hún gæti eins verið um
Guðmund Daníelsson frænda
hans. Þetta er horfið, sem
markar afstöðu hans til fólks-
ins, sem hann mætir á lang-
ferðaleiðumlífsins. Þetta ervið
horf hans við þeim persónum,
sem hann skapar í bókum sín-
um og eiga örlög sín öll, líf og
dauða, sæmd eða vansæmd í
höndum hans. Drengskapur
skálds speglast í horfi hans
við þeim persónum sínum,
sem hann verður að leggja á
þyngstu byrðarnar, persónu-
klofninginn, afkáraskapinn.
afbrotin þjáninguna — og hé-
gómaskapinn. — Guðmundi
Daníelssyni ferst vel við allt
þetta fólk, skilur það, hefur
samúð með því, brosir kannski
dálítið stundum. Brosir kank-
vísri hlýju í bækur sínar. —
Hann er trölltryggur vinur.
Það er alltaf hátíð í Holti, þeg-
ar hann kemur, ekki sízt ef
hann hefur meðferðis handrit
að nýrri bók og les okkur á
kvöldin. Það liggur illa á öll-
um, þegar hann fer úr Holti,
nema silungnum í ósnum. Og
það er hlakkað til, þegar hann
kemur næst.
VI.
Guðmundur Daníelsson
fæddist 4. okt. 1910 í Gutt-
ormshaga í Holtum, eins og
áður segir. Foreldrar hans
voru Daníel Daníelsson bóndi
þar og kona hans Guðrún Sig-
ríður Guðmundsdóttir. Guð-
mundur ólst upp á heimili for-
eldra sinna, en missti föður
sinn rúmlega tvítugur og varð
þaðan af mjög að spila á eigin
spýtur. Foreldrar Guðmundar
voru greindarfólk, dugandi og
reglusöm, vinna mjög í heiðri
höfð á heimilinu — og nokk-
uð hart gengið að. Guðmund-
ur lagði á margt gjörva hönd
framan af árum, sveitavinnu
hvers konar, vegavinnu, sjó-
mennsku. Hafa þessi störf og
kynnin við þá menn, er þau
stunda, orðið Guðmundi
drjúgt búsílag í bækur hans.
Guðmundur kvæntist árið
1939 Sigríði Arinbjarnardótt-
ur frá Hvammstanga, og eiga
þau þrjú gervileg og mann-
vænleg börn. Sigríður er af-
bragðskona að kostum og allri
gerð, og heimili þeirra, Blátún
á Eyrarbakka, eitt hið
skemmtilegasta, sem ég gisti.
Svo munu og fleiri mæla.
Ég óska skáldinu Guðmundi
Daníelssyni innilega til ham-
ingju á þessum tímamótum og
þakka honum og konu hans
vináttu og ógleymanleg kynni,
um leið og ég bið þeim og
börnum þeirra allra heilla og
blessunar.
Holti 3. okt. 1960.
A-listi /
FRAMA
KOSNING fulltrúa á 27. þing
Alþýðusambands íslands fer
fram í Bifreiðasli(jórafélaginu
Fram dagana 4. og 5_ október
frá kl. 1 til 10 e. h. báða dag-
ana. Kosningin fer fram í skrif
stofu félagsins, Freyjugötu 26.
A-listi er borinn fram af
stjórn og trúnaðarmannaráði fé
lagsins, og er hann skipaður
andstæðingum kommúnista.
A-listinn er skipaður eftir-
greindum mönnum:
Bergsteinn Guðjónsson, Bú-
staðavegi 77, Hre)yfill. Andrés
Sverrisson, Álfhólsvegi 14 A,
BSR Óli Berghollt| Lúthersson,
Bergstaðastræti 51, Landleiðir.
Garðar Gíslason, Gnoðarvogi
38, Bæjarleiðij'. Armann Magn
ússon, Marargötu 5, Hreyfill.
Jens Pálsson, Sogavegi 94, BSR.
Gestur Sigurjónsson, Lindar-
götu 63, Hreyfill.
rLeica7 ijósmyndavél með rnormal linsur fil sölu.
Ljósop vélarinnar er 1.5. Vélin er vel með farin, og
selst ódýrt. Upplýsingar á auglýsingaskrifstofu Al-
Iþýðublaðsins.
Pl
§*ssgg|g Flugféíag
M Piii íslands.
Millilandaflug:
S ««•: «Hrímfaxi fer til
:<
íft-v. Æ Glasgow og K,-
hafnar kl. 8 í
“ yæntanleg
ur aftur til R..-
____ " víkur kl. 22.30 í
kvöld. Gullfaxi
fer tn Qslóar,
Khafnar og Hamborgar kl.
8.30 í fyrrarpálið. Innan-
landsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (2 ferð-
ir), Egilsstaða, Flateyrar,
Sauðárkróks, Vestm.eyja og
Þingeyrar. Á morgun er á-
ætlað að fljúga íþl Akureyr-
ar, Húsavíkur, ísafjarðar og
Vestmannaeyja.
Ríkisskip.
Hekla kom tU R.-
víkur í gær að
austan úr hring-
ferð. Esja fer írá
Rvík í dag aust-
ur um land í hringferð.
Herðubreið er á Austfjörð-
um á norðurleið. Skjald-
breið fer frá Rvík á morgun
vestur um land til Akureyr-
ar. Þyri'll fór frá Bergen í
gær áleiðis til Seyðisfjarðar.
Herjólfur fer frá Vestmanna
eyjum kl. 22 í kvöld til
Reykjavíkur.
Skipadeild SÍS.
Hvassafell fer í dag frá
Hangö til Helsinki. Arnar-
fell fór frá Khöfp 1' þ. m. lil
Rvíkur. Jökulfell lestar og
losar á Vestfjörðum. Dísar-
fell er væntanlegt til Rvíkur
í dag frá Vestfjörðum. Litla-
fell kemur til Rvíkur í dag
frá Akureyri. Helgafell er í
Onega. Hamrafell fór í gær
frá Hamborg áleiði's til Ba-
tum.
Jöklar,.
Langjökull lestar á Vest-
fjörðum. Vatnajökull er á
leið fil Leningrad.
Sameinaða.
Henrik Danica er í Fær-
eyjum og er væntanlegur til
Reykjavíkur þann 7. okt.
Hafskip.
Laxá er í Riga.
Eimskip.
Dettifoss er í Rvík. Fjall-
foss fór frá Lysekil 2/10 til
Gravarna, Gautaborgar, Ant
werpen, Hull og Rvíkur.
Goðafoss fer frá Siglufi'rði í
dag til Norðfjarðar, Seyðis-
fjarðar og Fáskrúðsfjarðar.
Gullfoss fer frá Khöfn í dag
til Leith og Rvíkur. Lagar-
foss fór frá Vestmannaeyjum
í gærkvöldi til Keflavíkur
og Rvíkur. Reykjafoss kom
íil Helsinki 2/10. Fer þaðan
til Ventspils og Riga. Seiíoss
ko,m til Bremen 2/10. Fer
þaðan til Hamborgar. Trölla
foss fór frá ísafirði' í gær-
kvöldi til Siglufjarðar, Ak-
ureyrar, Seyðisfjarðar og
Norðfjarðar. Tungufoss for
frá Hull 2/Í0 til Rvíkur.
Afmæli.
75 ára er í dag Konráðína
Pétursdóttir, Klapparst. 9A.
Konráðína er gift Guðmundj
Þórarinssyni.
Kvenfélag Laugarnessóknar,
Munið fundi'nn í kvöld kl.
8.30 í kirkjukjallaranum,
Skuggamyndasýning, 'kafíi-
drykkja o. fl. Félagskonur
fjölmennið!
Orðsending
frá Kvenfélagi Óháða
safnaðarins: Drætti, sem át|ti
að fara fram í happdrætti
félagsins 1. okt., er frestað
til 15. okt. nk.
Kennsla í norsku og sænsku
í háskólanum. í haust talia
til starfa við Háskóla íslands
tveir nýir sendikennarar í
Norðurlandamálum, þeir
Odd Didriksen cand. mag. í
norsku og Jan Nilsson fil.
mag. í sænsku. Þeir munu
hafa námskeið í háskólanum
íyrir almenni'ng í vetlur.
Frétt frá orðuritara.
Forseti íslands hefur, að
tillögu orðunefndar, sæmt
frú Önnu Klemenzdóttur,
fyrrv. forsætisráðherrafrú,
Laufási, Reykjavík, riddara-
krossi hinnar íslenzku fálka
orðu.
Finnsk stúlka
óskar eftir að komast í
bréfasamband við íslenzkan
pilt eða sitjílku. Finnska
stúlkan er 16 ára og skrifar
sænsku, finnsku og þýzku.
Þeir, sem vildu sinna þessu,
geta sótt bréf stúlkunnar á
ritstjórn Alþýðublaðsins. —•
Heimilisfang hennar og nafn
er; Leena Toivonen, 5 D. In-
okka, Imatran Yhteislyseo,
Imatrankoski. Finnland.
Tónlistarskólinn
verður settur á morgun,
mi'ðvikudag, kl. 2 í skóia-
húsinu að Laufásvegi 7.
12.55 „Á ferð
og flugi.“ 19.30
Erlend þjóðlög.
20.30 „Ilugur
einn það veit“,
bókarkaflj eftir
Karl Stlrand
lækni (höí. flyt
ur). 20.50 Tón-
leikar. 21.30 Út
varpssagan Bar
rabas. 22.10 í-
þróttir. .22.25
Lög unga fólksins. 23.20
Dagskrárlok.
LAUSN HEILABRJÓTS:
Aldrei.
34 4. okt. 1960
Alþýðublaðið