Alþýðublaðið - 06.11.1960, Side 2
•Uljornr. GISU J. Astþórsson (áb.j og Benedlkt Gröndal. — fulltruar m-
/ájómar: Slfivaldl Hjálnarsson og IndriSi G. Þorsteinsson. — Fréttastjóri:
ijðrgvin Guðmundsson — Simar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasín.
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðuhlaðsins Hverfis-
l*ta 8—10. — Áskriftargjald: kr. 45,00 á mánuði. í lausasélu kr. 3,00 eint
ttgofandi: Alþýðuflokkurinn — Framkvæmdastjóri Sverrir Kjartanssor,
Viöurkenning Finnboga
DEILUMÁL verður að leysa, annað hvort með
, íriði eða ófriði.
Þetta er óhjákvæmilegt lögmál í samskiptum
þjóða. Friðsamir menn vita, að deilur geta ekki
haldið áfram endalaust og þær verður að leysa
j eða losna við á einhvern hátt. Það eru aðeins
• ofbeldismenn eða umboðsmenn þeirra, sem blása
; á elda úlfúðar og reyna að halda deilumálum ó-
; leystum.
Landhelgismálið er mikið tilfinningamál með
: íslenzku þjóðinni. Hún hefur í baráttu sinni fyrir
; efnahagslegu sjálfstæði og öryggi rekið sig illi
i lega á hagsmuni stórveldis og þolað af því órétt.
: Enda þótt þykkja sé í þjóðinni, skilja hugsandi
, menn, að finnist ekki frdðsamleg lausn málsins
tnæstu vikur, verður ófriður í íslenzkri landhelgi
um ófyrirsjáanlegan tíma. Þess vegna er það
: siðferðisleg skylda íslenzkra yfirvalda að kanna,
1 (hvaða kosta er völ, og leggja þá síðan fyrir þjóð
j ina. Hingað til höfum við vonazt eftir lausn á veg
um Sameinuðu þjóðanna. Sú von hefur brostið
'! og við stöndum einir.
Með þessu er alís ekki sagt, að íslendingar eigi
að semja, hvað sem tautar. Utanríkisráðherra
jhefur lýst yfir afdráttarlaust, að skilyrði hugs*
anlegrar lausnar sé alger og óafturkrefjanleg við
urkenning Breta á 12 mílum. Það eru vanstilling
armenn, sem vilja auka sunduiþykkju með lands
ffólkinu, er stimpia ráðherra fyrirfram í þessu
, máli, áður en nokkuð er vitað, hvað málefnalega
! liggur fyrir.
Hitt er vitað, að kommúnistar hafa allt annað
takmark í landhelgismálinu en aðrir landsmenn.
Þeir vilja nota það til að halda íslandi í deilum
, við vestrænar þjóðir, draga landið úr samtökum
þeirra og opna það fyrir stórauknum áhrifum og
. síðar yfirráðurn kommúnismans.
Allt þetta fékkst í raun réttri staðfest í ræðu
: Finnboga Eúts Valdimarssonar á alþingi á föstu-
dag. Hann sagði efnislega, það sem er efst í huga
kommúnista: De.ilan má gjarna halda áfram. Það
gerir ekkert til, þótt lífi íslenzkra sjómanna verði
Iiætt. Það gerir ekkert til, þótt við missum fleiri’
markaði — Rússar hafa bjargað slíkum vandræð
•um áður.
Vélsetjari óskast
Alþýðuhlaðið
JÓN SIGURÐSSON-' Verður sambandi
verzlunar- og skrifstoíu-
iólks veift viðtaka í ASÍ?
ÞESSI spurning er á vör-
um margra um þessar mund
ir og því fleiri, sem nær
dregur Alþýðusambands-
þingi.
Þing A. S. í. á að koma
saman 15. þ. m. Svo ekki er
ýkja langt þar til spurning-
unni verður svarað, því inn
tökubeiðni Sambands verzlun
arfólks, verður að sjálfsögðu
rædd og afgreidd á öðrum
degi þingsins, eða í síðasta
lagi á þriðja degi.
Ef allt væri með felldu, er
spurning þessi óþörf, svo
sjálfsagður er réttur þessara
launþegasamtaka til þess að
fá inngöngu í heildarsamtök
hins vinnandi fólks, en bæði
er það, að á undanförnum
þingum, hafa samtölc verzlun
arfólksins fengið heldur kald
ar kveðjur frá meirihluta
sambandsstjórn og Alþýðu-
sambandsþinga, að ekki er
óeðlilegt þótt spurningunni
sé varpað fram.
Þar við bætist svo það, að
manna í milli er það haft
eftir sumum þeim er nú
skipa meirihluta stjórnar A1
þýðusambandsins. að þeir
munu beit asér gegn því, að
sambandið fái inngöngu í
A. S. í.
Inntökubeiðnin mun kom
in fyrir nokkuð löngu síðan
til stjórnar Alþýðusambands
ins og rétt mun það vera að
málið hafi verið rætt þar.
Venjan hefur verið sú, að
þegar inntökubeiðni berst frá
féiagi rétt fyrir sambands-
þing, er henni vísað til þings
ins, þótt sambandsstjórn hafi
vald til þess að veita félagi
viðtöku milli þinga.
Að sjálfsögðu ræðir sam-
bandsstjórn þó málið.og tek-
ur ákvörðun um, hvort hún
mælir með eða móti inntöku
toeiðninni, við þingið.
Sambandsstjórn mun hafa
á fundi tekið þetta mál fyrir,
menn ekki orðið á eitt sátt
ir og ákvörðun tekin um
það, að vísa málinu til um-
sagnar milliþingsnefndar í
skipulagsmálum samtakanna
er kosin var á síðasta þingi
Alþýðusambandsins.
Fundur hefur ekki ennþá
verið haldinn í skipulags-
nefndinni og liggur því álit
hennar ekki fyrir.
» Ég tel mikið gerræði fram
ið, ef þessari starfsgrein
launþega verði meinuð inn
ganga í heildarsamtökin og
þá um leið haldið utan
þeirra verndar og þeirra rétt
inda er verkalýðssamtökun
um hafa verið veitt og þau
áunnið sér með áratuga
baráttu.
Má þar t. d. nefna, að
— verzlunar- , og skrifstofufólk
nýtur ekki þeirra réttinda
og hlunninda er atvinnuleys
istryggingarnar veita, vegna
þess að þau eru ekki í Alþýðu-
sambandinu.
Hvers á þetta fólk að
Er það svo vel launað eða
það vel stætt f járhagslega, að
því sé engin þörf slíkra trygg-
inga? Síður en svo.
Um langan tíma hefur
skrifstofu- og Verzlunarfólk
verið tálið með því lægst
launaða. bó mikið hafi áunn
izt til bættra kiara og auk-
inna réttinda, síðan skipu-
lagi samtaka þess var breytt
í það horf sem þau eru nú,
þ. e. ,,hrein“ launþegasam-
tök.
Ekki er hæet að bera því
við, að samtök verzlunar-
og skrif«tofufólks aeti ekki
fengíð að vera í alþýðusam-
bandinu. bví þau föigi þar
ekki heima.
Á áninum 1934 os 1935
var mikið revnt af hálfu al-
þýðusambardsins, að koma
'bvj til leiðar, að skinulag
Verzlunarmannafél. Revkja-
víkur vrð; brevtt, svo hægt
væn að taka bað 1 albvðu-
sambandið. en er bað tókst
ekki. var að bví horfið 1935,
að stofna V^rzlunarmannafé-
aeið er tekið \rar í samband
ið og átti fulltrúa á þineum
þ“ss, að mig minnir síðast
1938.
Árið 1937 var Verzlunar-
mannafélagi ísafiarðar veitt
viðtaka í albvðusambandið
os nú eru að minnsta kosti
fiögur féiöcr verzlunar-
og skrfstofufóiks í albýðu-
sambandinu. <>n bau eru:
A. S. B., fé'ag afgreiðslu-
stúlkna í brauða- og miólk-
sölubúðum ocr féldo- verzl-
urnar- og skrifstofufólks á Ak
ureyri, Siglufirði, Árnessýslu
og félagið í Rangárvalla-
sýslu var í sambandinu til
skamms tíma.
Ekki hef ég getað orðið
þess var, á undanförnum
þingum samtakanna, að full-
trúar þessara félaga, hafi
ekki átt fyllilega samstöðu
með öðrum fulltrúum á þing
um og verið hlutgengir við
umræðna og afgreiðslu mála
á sambandsþingum, enda
hagsmunir þeirra sömu og
annarra launþega.
Ekki er hægt að færa rök
fyrir synjun um upptöku
með tilvísun til annarra
landa, þar sem þróun skipu-
lagningar og starfs verka-
lýðssamtaka er lengra á veg
komin en hjá okkur.
Alls staðar sem ég til þekki
og hef haft sournir af, eru
samtök verzlunar- og skrif
stofufólks' ns í beildarsamtök
um v’ðkomandi lands og’
hafa alltaf verið talin eiga
þar heima og fyllilega hlut-
geng og hlýtur það sama að
verða hér.
Ef ekki, hljóta einhver
annarleg sjónarmið að ráða.
Sumir hafa giskað á, að
meirihluti stjórnar A. S. í.
muni beita sér gegn inntcku
þessara samtaka, vegna þess
að :ekki sé réttur pólitískur
litur á meiriihluta sjórnar
landssamtaka verzlunarfólks
ins, en að sjálfsögðu er það
ekki frambærileg ástæða og
hefur því sú ágizkun vonandi
ekkert við að' styðjast.
Ég fæ mig ekki til að trúa,
að á þinginu verði um það
deilur, hvort veita teigi seim
tökum verzlunarfólksms við-
tökur eða ekki. Svo ótvíræð
ur sem réttur þess er til inn
Framhald á 14. síðu.
Útgerbormenn
og aðrir ísnotendur
Afgreiðum með stuttum fyrirvara ,,INSTANT:£
ísframleiðsluvélar.
Afkastamöguleikar frá 350 kíló til 3000 kíló yfir
sólarhring.
Isframleiðsluvélar þessar eru mjög ódýrar x
rekstri miðað við framleiðsluafköst.
Leitið upplýsinga og tilboða.
Einkaumboð fyrir ísland:
SIG. SVEINBJÖRNSSON H.F., Reykjavík.