Alþýðublaðið - 06.11.1960, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 06.11.1960, Blaðsíða 13
r Jóhann Árnason er eính þriggja elztu manna í Dagsbrún. Hann var í efldiínunni þegar íslenzlcur verkalýóur barSist fyr ir réttindum sínum á fyrstu tugum þessarar afldar. Jóhann er áttræður f dag og af þvi tilefni hafói Atþýóublaóió tal af honum um lióna iíma. JÓHANN ÁRNASON til heira il-is að Lindargötu 43 A er átt ræður í dag. Hann er fæddur í Höfn í Leirársveit, en ólst upp á Kjalarnesi, á Útkoti, en mest þó að Esjubergi. 1906 fluttist hann til bæjarins Qg hefur unnið við höfnina síðan, allt til nú í sumar cr hann varð að hætta vegna sjón- depru, en er að öðru leyti :hinn hraustasti. Hjá Eimskip hefur hann unnið frá 15. apr- íl 1915 og er því einn af elztu starfsmönnum þess. Það munu því fáir jafnfróðir honum um sögu verkamanna við eyrina. þær miklu breytingar, sem orð ið hafa á starfsháttuir. og launakjörum þeirra og öllum þeim gífurlegu breytingum, sem orðið hafa á bænum og bæjarlífinu yfirleitt — Tókst þú ekki snemma þátt í verkalýðshreyfingiinni, Jóhann? — Jú, ég gekk í Dagsbrún strax á sama árinu og það var stofnað, en það var 1906. Við erum aðeins þrír meðlim- ir Dagsbrúnar á lífi frá þess- um tíma, þsir Pétur Magims- son, Ingimundur Einarsson og ég. Við vorum brennandi af áhuga í Dagsbrún þá og allir fundir fjölsóttir. Flestir okk- ar fóru þá á hvern einasta fund. Ég man eftir því að fyrsti fundurinn, sem ég kom á. var í gömlu hesthúsi við hliðina á B' ydeshúsi, sem stóð á horni Aðalstrætis og Austur strætis. FéTagið var stofnað af brýnni nauðsvn, menn voru alveg varnarlausir gagnvart vinnuveiténdum og sömdu um kjör sin siálfir í hvert eití sinn. Kaupið var því mjög mis jafnt, en hó auðvitað alltaf lágt. Það var því eitt fyrsta verk Dagsbrúnar að meðlim- irnir ákváðu að vinna ekki fyrir lægra kaup! en 30 aur- um á tímann. en áður höfðu menn ekki fengið nema 25 aura eða enn minna. Þetta hafðist í segn að lokum, en fyrst í stað var oft erfiðara að fá vinnu ef maður var í Dags- brún. Ég man eftir því eftir eitt fyrsta verkfall okkar 1908 eða 1909 að v°rkstiórinn sagði við okkur: Þ°;r fari út, sem ekki vilja vinna fyrir sama kaup og áður.“ Allir gengu út og við náðum rétti okkar. Það reyndi mikið á samtökin í þá daga. — Veiztu hver átti hug- myndina að stofnun Dagshrún ar? — Ég held að Ármann Jó- hannsson, mágur séra Bjarna, hafi byrjað á því að tala um að stofna félag til að vernda hagsmuni verkamanna. Þá unnu menn fyrir jafnvel að- eins 50 aura til einnar krónu kaupi yfir daginn. Verkamenn ihöfðu engin ráð til að leita réttar síns og að heita má stöð ugt atvinnuleysi gerði þeim mjög erfitt fyrir, því nægir voru um þá litlu vinnu, sem hægt var að fá. Menn buðu því stundum út úr neyð vinnu sína fyrir sama og ekkert bara til þess að fá þó eitthvað. Það var því í raun og veru lífs- nauðsynlegt fyrir verkamenn að hafa félag með séi-. Það hafði fljótt á að skipa afbragðs forustumönnum, sem við fáum aldrei fullþakkað, eins og þeim Ólafi Friðrikssyni, Héðni Valdimarssyni og Jóni Bald- vinssyni. Jón var sá bezti samningamaður, sem Dags- brún hefur nokkru sinni haft -—• Var atvinnuleysi mikið? — Á sumrin fóru margir úr bænum í síld, til sjós eða í kaupavinnu og verkamenn því færri í bænum. Þar að auki var þá meira unnið við bygg- ingar og því oft sæmilegt að gera. En á veturna var ástand ið afleitt. Skútunum var þá lagt inn á Sund, svo þær sköp uðu enga atvinnu, það var því ekki um aðra atvinnu við höfn ina yfir veturinn að ræða en vinna við e:tt eða tvö skip,sem komu hingað á vegum Sam- einaða. Annars var kaupið eig inlega ekki svo afleitt, hefði bara verið næg vinna. Menn fengu þá 30 aura fyrlr tímann, en sykurpundið kostaði heldur ekki nema 9 aura, nú held ég að það kosti um 10 kr. Ég hef búið í þessu húsi hérna, Lindargötu 43 A, síðan 1908 og borgaði þá 9 kr. í húsaleigu á mánuði Það var bara at- vinnuleysið, sem allt ætlaði að drepa. — Hvenær fór þetta að skána? iSvona var ástandið eigin- lega framundir fyrra stríð. Fyrst þegar togararnir fóru að að koma um 1912, fór ástandið að skána að einhverju ráði, en þó fyrst og fremst á stríðsár- unum fyrri, þegar vinna jókst að mun. — Var nokkur ákveðinn vinnutími? —- Ég veit ekki hvort hægt er að segja að svo hafi verið, þegar ég byrjaði á eyrinni. í byggingarvinnu var þó venju lega unnið í 10 tíma á dag, byrjað klukkan sex á morgn- ana og unnið tii 7 eða 8. Smám saman færðist vinnutími í fast horf og 1909 samdi Dags- brún um að öll vinna eftir kl 6 skyldi teljast eftirvinna og vera 5 aurum idýrari. Ákveð inn matartími komst ekki á fyrr en 1915, þegar kaupið hækkaði í 45 aura, a. m. k. komst hann á hjá Eiraskip þá. Áður höfðu menn engan mat- artíma, fengu þó auðvitað smá stund til að gleypa í sig mat- inn, en enga kaffitíma Þá var venjan sú, að mönnum var færður matur og fyrir kom að fólkið vissi ekkí hvar mað- ur var og maturinn kom ekki fyrr en seint og síðar meir eða jafnvel aldrei. Eitt sinn var hann sendur til Erglands með togara, og það merkilega var að hann kom aftur með togar- anum eftir nokkrar vikur, — Vann ekki kvenfólk á eyr inni í þinni tíð? — Jú, það vann við upp- skipun á kolum og salti. Þá var allt borið á bakinu frá skipunum og upp á bakkann. En sú vinna lagðist niður, þeg ar kolakraniiin kom einhvern tíma í fyrra stríði. Manstu ekki eftir ýmsu merkilegu frá fyrstu verkföll- unum? — Ég tók þátt í verkföllun- um af lífi og sál og stóð marg- ar vaktir með Ólafi Friðriks- syni. Sérstaklega man ég eftir Blöndalsslagnum. Það var 1916 eða 1917 að við áttum í verkfalli. Sigfús Blöndal ætl- aði þá að skipa út salti meðan á verkfallinu :stóð. Hann hafði fengið nokkra menn til að moka á bíla Inni í pakkhúsinu. Húsið var umkringt af verk- fallsmönnum og vorum við margmenntir og ætluðum að meina bílunum inngöngu. Sagði Sigfús þeim þá að aka á okkur, þar sem við stóðum þarna. Það var reynt, en bíl- arnir voru þá bara teknir á loft og bornir til baka. Lög- reglan og bæjarfógeti ætluðu að hindra okkur í þessu, en við tókum hraustlega á móti og þeir urðu að hætta við svo bú'ð. Enginn slasaðist sem betur fór, en við vorum hreyknir yfir þessum sigri okkar og samningar tókust litlu seinna. Ég man líka vel eftir rússneska drengnum, sem Ólafur Friðriksson tók að sér. Þá biðum við heima hjá Ólafi til að verja hann og pilt inn, en engin átök urðu við það mál. Það var bara pólitisk ofsókn. — Hefur þú ekki tekið bein- an þátt í stjórnmálunum? —- Ég hef verið í Alþýðu- flokknum frá því fyrsta. Mér finnst að hann hafi verið meiri baráttuflokkur þá, enda voru vinstri öflin sameinaðr' þá en nú. Alþýðuflokknum þakka ég meira en nokkrum öðrum flokki þær miklu fcreyt ingar, sem orðið hafa til bóta á kjörum verkamanna, ekki sízt almannatryggingarnar. — Kaupandi Alþýðublaðsins hef ég verið frá upphafi. Dags- brún sýnist mér nú ekki nema svipur hjá sjón, en segja má sem betur fer, að kringum stæðurnar séu allt aðrar nú. — Svo við snúum nú að öðru, Jóhann. Við hvaða störf hefur þú lengst verið á eyr- inni? — Fyrst í stað vann ég allt- af í uppskipunarbátunum, sem fluttu vörurnar frá skip- unum upp að bryggju. Þá lögð ust skipin ekki að. Eftir að skipin gátu farið að ieggjast upp að. var ég í lest, þar til núna fyrir tólf árum að ég fór að vinn í áhaldahúsi Eim- skips. Nú starfar aðeins einn þeirra manna við Eyrina. sem þar voru þegar ég byrjaði. Er það Þórarinn Jónsson á Melnum. Hann vinnur enn þótt orðinn sé 91 árs, Við þökkum Jóhanni fyrir fróðlegt spjall og lítum inn til konu hans, Helgu Bjarna- dóttur, sem verður 84 ára nk. þriðjudag’. Undanfarin 11 ár hefur hún verið rúmföst vegna lömunar, en er hress og heii- brigð að öðru leyti. Hjá þeim býr líka dóttir þeirra hjóna, Aðalheiður. Alþýðublaðið vill nota tæki færið og óska þessum áttræða öðlingi til hamingju á afmæl- isdaginn og árna honum' heilla. Hann er einn hinna dugmiklu manna eldri kyn- slóðarinnar, sem voru heil- steyptir í baráttu sinni fyrir betra lífi og unnu jafnframt störf sín af alúð og skyldu- rækni. Þeir, sem yngri eru standa í mikilli þakkarskuld við slíka menn. Með erfiði sínu og baráttu lögðu þeir fram dýrkeyptan skerf til þess þjóðfélags og þeirrar velmeg- unar sem við búum við nú í dag. E.G.H. Alþýðublaðið — 6. nóv. 1960 J3

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.